Vikan


Vikan - 20.12.1962, Side 33

Vikan - 20.12.1962, Side 33
það beinlínis fyrirbænir, eða hann öskraði svo tryllingslega, að felmtri og óliugnaði sló á alla, nema Jórunni gömlu, sem aldrei sást bregöa. Und- arlegast var þó æði það, sem á hann rann ef Torfi vinnumaður nálgað- ist rekkju hans. Hefði mátt halda að hann vissi þar fyrir svarinn fjandmann, sem einskis svifist og fyndi nálægð hans jafnan á sér, og eins þótt hann lægi í móki. Reis hann þá upp við dogg, furðu hart, hvessti á hann stingandi augun, trylltist af heift og þótt enginn skildi hvað hann hvæsti að honum milli samanbitinna tannanna, bauð í grun að kröftugri formælingar mundi hann ekki kunna. Var sízt að undra þó að Torfi legði á flótta, ekki meiri kjarkmaður, því að svo ægilegur var gamli Svartskeggjur þá ásýnd- um, að enginn nema Sigurbjörg hús- freyja þorði að koma til liðs við þau, Jón bónda og Jórunni gömlu, að ekki brytist hann úr höndum þeirra.“ ,,Jafnvel þegar hann mókti, sem sjaldan var til lengdar, vék ofsinn og baráttan aldrei að fullu úr svip hans, eins og aldrei kæmist á friður og sátt bak við rúnum rist og hvelft ennið og hinar hörðu, myrku brúnir, eða mikilúðleg, svartskeggjuð á- sjónan væri gríma ein og léti sem hún svæfi. Rólegastur var hann ef María sat hjá rekkju hans, og væri hann þá með nokkru ráði og veitti henni athygli, brá óðara fyrir hinni óttakenndu tilbeiðslu og undrun í svörtum augunum, eins og hann þættist ekki viss um hvort hún væri af þessum heimi. Kannski minnti hún hann á einhverja stúlku, sem hann hafði unnað, hver veit það ... Eða kannski var það madonnumyndin í kirkjunni heima. Ef til vill hefur þáð hvarflað að honum í óráðinu, að það væri sjálf guðsmóðir, sem laut að honum og þerraði svitadropana af enni hans, því að hann lokaði þá óðara aug- unum, eins og hann fyndi sig ó- verðugan að líta yndi hennar og hreinleika .. .“ „f fulla þrjá sólarhringa stóð þetta hatrammlega einvígi þeirra, Svart- skeggs gamla og sláttumannsins, linnulaust nótt og dag. Það er sagt um feigðarveður, að því ljúki með svikalogni og síðan þeim svipti- byl, sem mestur sé og strangastur; það sé lokaatrennan, þegar sá, sem ævinlega fer með sigur af hólmi, vegur svo hart að þeim, sem hann hefur merkta sér, að alla vörn þrýt- ur. Þannig lauk og þessari hólm- göngu í rekkjunni undir skarsúð- inni. Ekki er ósennilegt, að þeir hafi þekkzt nokkuð áður, sem þar áttust við; að Svartskeg'gur gamli hafi séð framan í fjanda sinn fyrr en í brimgarðinum og storkað hon- um víðar en á sandinum, og að það hafi jafnvel ekki verið í fyrsta skiptið, sem hann freistaði þeirrar ofdirfsku, að hrifsa herfangið úr kjúkukrumlum hans. Að minnsta kosti var sem honum byði í grun, að fjandi sá þættist eiga nokkurs að hefna og mundi engrar vægðar af honum að vænta, en eigi skyldi hann því hrósa sigri fyrr en í fulla hnefana." „Þriðju nótlina elnaði þeim svart- skeggjaða enn sóttin. Þó að ætla mætti, að mjög hefði þá verið af honum dregið, var óráðsæði hans þá mest, átök hans við fjanda sinn aldrei harðari. Fór Jón bóndi eigi úr fötum alla þá nótt og vék ekki frá rekkju hans, en vinnukonurnar tvær vöktu með honum til skiptis, því að ekki var á eins meðalmanns færi að hafa í höndum við Svart- skegg í æðisköstunum. Jórunn gamla var og á stjái öðru hverju, því að ungi maðurinn, sem nú fyrst var að vakna til meðvitundar, þurfti og sinna muna með. Aðrir í bað- stofunni sváfu, eða reyndu að sofa, en fæstum mun þó hafa orðið draumvært þá nótt, þrátt fyrir þreytu og vökur að undanförnu." „Undir fótaferðina um morgun- inn dró úr helstríði hins gamla garps. Hryglustunur hans lægði, kliðdimmt og ofsaþrungið tuldur hans þagnaði, umbrot hans kyrrð- ust og það varð annarlega hljótt í baðstofunni. Nokkra hríð lá hann með lokuð augun, andardráttur hans var ekki erfiðari en að ætla mætti að þreyttum manni hefði runnið í brjóst. Jón bóndi þóttist vita að hverju færi og bað Sigurbjörgu klæðast án tafar og vera sér til að- stoðar, ef með þyrfti." „Andrá síðar lauk hinn gamli garpur upp augunum. Þau voru hyldjúp og myrk, æði þeirra slokn- að, tillitið fast og íhugult. Hann horfði fyrst á Jón bónda, virti hann fyrir sér undrunarlaust, eins og hann hefði búizt við því að sjá hann sitja þarna. Svipaðist síðan rólega um skarsúð, sperrur, rekkjur og pall, og varð ekki séð að honum væri það umhverfi framandi, eða kæmi á óvart að vakna þar til ráðs og rænu, heldur virtist honum ljóst hvernig á því stóð og allur aðdrag- andi í minni. Engu að síður var sem augu hans leituðu þar einhvers að eitthvað skorti á þá veruleikamynd, sem hann hafði stöðugt greint bak við skynvillusvið óráðsins og æðis- sýnir þær, sem að honum sóttu. Loks staðnæmdust þau við rekkj- una undir súðinni hinum megin, þar sem félagi hans lá. Eftir það var sem þau þyrftu einskis framar að leita. Karlmannleg, æðrulaus ró færðist yfir seltubrennda og veður- barða ásjónu hans, eins og hann gæti sætt sig við að lúta í lægra haldi, fyrst honum hafði tekizt að sjá svo um að fjandi sinn hefði, þrátt fyrir allt, ekki fullan sigur. Eða þá fullvissan um að friðþæg- ingarfórn sín hefði verið þegin, því að varir hans tóku að bærast eins og í hljóðri bæn ...“ „ÞESSA nótt hafði gengið á með éljum og snörpum vindhviðum og látið hátt í ljóra öðru hverju, en slíkt var svo alvanalegt, að enginn tók eftir því eins og á stóð. Ekki heldur í þetta skiptið; það veitti enginn því athygli nema Jón bóndi ura- 9 oss Dura-GIoss varaliturinn heldur sínum uppruna- lega litblæ — hann er mjúkur án þcss að vera feitur. Fullkomnið snyrtingu yðar með silkimjúkum Dura-GIoss varalit — og hinu sterka djúpgljá- andi Dura-Gloss naglalakki. — Hvorutveggja fáanlegt í 18 tízkulitum, sem gefa yður ótak- markaða möguleika til fjölbreytni. HALLDÓR JÓNSSON Heildverzlun. — Hafnarstræti 15. — Símar 12586 og 23995. Sigfússon, þegar hvein í ljóranum og élið buldi á þekjunni, það fór ekki framhjá þjálfaðri gaumgæfni annálaskrásetjarans að áttin hafði breytzt. Og því var það að hann gat gert sér nokkra grein fyrir or- sök þess eftir á, er garpurinn gamli hrökk allt í einu upp af bæninni, æðið kviknaði aftur í augum hans og svipurinn trylltist. Um leið reis hann upp við dogg, festi augun á Jón bónda, hóf með sinni hreim- sterku röddu og sefjandi leik frá- sögnina af þeim félögum sínum þrem, liggjandi í skaflinum, og mundi hafa brotizt fram úr rekkj- unni ef Sigurbjörg húsfreyja hefði ekki brugðið við, bónda sínum til liðs. Áttu þau fullt í fangi með að halda honum í rekkjunni þótt bæði væru, svo hart brauzt hann um; augun loguðu af heift og æði, orða- flaumurinn breyttist í reiðileg hrygluöskur.“ „Fyrr en nokkurn varði hafði gerzt svo hljótt í baðstofunni, að hvinurinn í ljóranum skar í eyru. Sigurbjörg húsfreyja dró hönd sína seinlega úr frostbólginni greip hins gamla garps, og var enn eigi laust það sem hann hélt þótt fallinn væri, höi-faði um skref frá rekkjustokkn- um, föl og fá, og þegar Jón spurði hana hvort eitthvað gengi að henni, var sem hún heyrði það ekki. Og það var fyrst þegar fingur bónda hennar höfðu lokað hinum myrku, brostnu sjónum sem horfðu óravegu út um gaddfreðna þekjuna, að hún kom til sjálfrar sín aftur.“ „Nokkru síðar var Svartskeggur gamli lagður á fjöl við hlið þeura, félaga sinna, úti í skemmu eftir að Jórunn gamla hafði þvegið lík hans og gert því til góða, Þau voru víst mörg, strandmannalíkin, sem hún veitti hinzta umbúnað á sinni löngu ævi, flest þó sjórekin og mörg meira eða minna sködduð. En hún auð- sýndi þeim öllum sömu móðurlegu umönnun, sömu virðingu. Hún var eins og moldin, sem hlúði jarðnesk- um leifum þessara útlaga að lokum, henni voru allir jafnir.“ „Moldin — henni eru allir jafnir og allir jafnir fyrir henni. Og víst eru dauðanum allir jafnir, en aftur á móti tel ég nokkurt vafamál að allir séu jafnir fyrir honum, þó að margur taki sér þá setningu í munn og haldi spakmæli. Þetta kann því að hljóma sem öfugmæli af vörum manns, sem gegnt hefur prestsembætti fulla mannsævi, og ekki komizt hjá að hafa flestum öðrum nánari kynni af valdi dauð- ans og gera sér grein fyrir því. Að 7 óskar öllum viðskiptavinum sínum nær og f jær Sölufélag garðyirkjuznanna gleðilegra jóla, árs og friðar með þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu. VIKAN 33

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.