Vikan


Vikan - 20.12.1962, Qupperneq 35

Vikan - 20.12.1962, Qupperneq 35
y nýtt merki — ný snið Heildsölubirgðir: O. VALDEMARSSON OG HIRST H.F. Sími 38062. l!lllll!llllll!llllllllllll|l!HIII|||ll||l|llllllllll!ll!l!ll!lllli:il|llll(U|!lllllllllllll!l!llllllll!lllllllljllllllllllllllllllllllllllilll!!lllllllllllllill!lllllll!lllllllllllllllllllll!ll>llllllll!llli|iilllllllllllllllllllll!llilÍllllllllllll!llllll!lllllllllllll!]llllll!!ll!l!ÍIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII!ll!lllll!ll!l!llllllllllllllllllllllllllllll sjálfsögðu er ég ekki í vafa um að allir séu jafn látnir líkamlega, eins og það er kallað, þegar þeir hafa tekið andvörpin, og að því leyti til jafnir fyrir þeim slynga sláttumanni, eins og sálmaskáldið segir. En þar kemur og annað til greina, sem að vísu verður hvorki skilið né skýrt, en er til staðar engu að síður. Það er eins og sumir lifi eingöngu í sjálfum sér, aðrir að meira eða minna leyti einnig utan við sjálfa sig, í umhverfinu og þeim, sem þeir umgangast. Þótt undarlegt megi virðast, er sem maðurinn ráði ekki neinu um þetta sjálfur. Meira að segja, að það fari hvorki eftir fram- komu hans, breytni né afstöðu til annarra, og þó að ekki skeri úr um til hvorra hann telzt, fyrr en dauð- inn hefur lagt hann líkamlega að velli, er það allt annars eðlis en minningin. Ég get sagt þér sem dæmi, að ég hef bæði jarðsungið menn, sem höfðu orðið svo gersam- lega undir í átökunum við dauðann, að þegar ég nefndi nafn þeirra, lét það í eyrum sem hljóðnað bergmál af líkhringingu, og aðra, sem héldu enn svo fast í við hann þrátt fyrir andvörpin, lifðu svo Ijóst í þeim, sem þeir höfðu umgengizt og um- hverfinu, að mér þótti sem þeir mundu þá og þegar klappa á öxl mína og hvísla því að mér, að þarna hlyti að vera um einhvern misskiln- ing að ræða. Því fer þó fjarri, að ég sé nokkrum dulrænum gáfum gæddur umfram það, sem gerist og gengur, þó að síendurtekin reynsla kunni vitanlega að hafa gert mig næmari fyrir þessum á- hrifum." „Og Svartskeggur gamli hafði ekki einungis Veitt dauðanum hart viðnám, heldur var því líkast sem hann héldi velli fyrir honum, þótt fallinn væri. Allt heimilisfólkið vissi hann eins dauðan og menn geta dauðir verið. og lík hans liggj- andi á fjöl, bak við læstar skemmu- dyr. Engu að síður var sem það margt vissi hann samtímis alls stað- ar nálægan. Ekki sem draug eða afturgöngu, en á svipaðan hátt og maður veit mann nálægan sér, þótt hann líti hann ekki augum. Sá að- stöðumunur, sem nú var orðinn fyrir atbeina dauðans, var í raun- inni þeim svartskeggjaða í vil. Hann var ekki aðeins leystur frá þjáningum sínum og þrautum, heldur og þeim mannlegu takmörk- unum, sem aðrir á heimilinu voru háðir. Þó að sjón fólksins skorti skyggni til að fylgjast með ferðum hans, vissi það svört, stingandi augu hans hvíla stöðugt á sér, sjá hvaðeina, sem það hafðist að, jafn- vel hverja hugsun. Eins var rödd hans öllu meiri og sterkari fyrir það, að hún var þögnuð; ofsinn og harðneskjusvipurinn uggvænlegri, eftir að hann var horfinn sjónum; áhrif nálægðar hans máttkari, þar eð enginn lézt verða þeirra var. Að öðru leyti var ekkert undarlegt við þetta, fyrst hann gerði ekki bein- línis vart við sig; þetta var ekki annað, en sem maður varð að sætta sig við, meðan hann var enn á heimil inu.“ „Annað mál var svo það, hvað við tæki, þegar hann væri farinn; þegar lík hans lá ekki lengur á fjöl þarna í skemmunni. í rauninni var það sú spurning, sem reynt var að sniðganga, þegar heimilisfólkið vildi Björn & Halldór h.f. VELAVERKSTÆÐI. óskar öllum viðskiptavinum sínum nær og f jær gleðilegra jóla, árs og friðar með þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu. VIKAN 35

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.