Vikan


Vikan - 02.07.1964, Síða 3

Vikan - 02.07.1964, Síða 3
Útgefandi Hilmir h.í. Kitstjóri: Gtsii Sigurðsson (ábm.). Biaðamenn: Guðmundur Karlsson og Sigurður Hreiðar. Útlitsteikning: Snorri Friðriksson. Augiýsingast j#i: Gunnar Steindórsson. Ritstjórn og auglýsingar: Skipholt 33. Simar: 35320. 35321, 35322, 35323. Pósthólf 5330 Afgreiðsla og dreifing: Blaðadreiíing, Luugavegi 133, sími 36720. Dreifingarstjóri Óskar Karlsson. ■ Verð í lausasölu kr. 25. Áskriftarverð er 300 kr. ársþriðjungslega. greiðist fyrirfram. Prentun Hilmir h.f. Mynda- mót: Rafgraf h.f. ¥1K AH í NÆSTA BLAÐ! Á HEIMSSÝNINGU í NEW YORK. Ritstjóri Vikunnar hefur dvalizt nokkra daga á heim- sýningunni, sem er sú stærsta til þessa og auk þess talin hin skemmtilegasta svo af beri. Þar eitt mesta ævintýri, sem hægt er að upplifa á einum stað, þar sem gefin er tæknileg innsýn í framtíðina og talið er að 80 milljónir manna muni heimsækja sýn- inguna nú og næsta sumar. Grein í fjórum opnum eftir Gísla Sigurðsson. ★ HVERNIG Á AÐ KOMAST VESTUR — OG HVAÐ KOSTAR ÞAÐ. Upplýsingar um ferðir vestur, um hótelverð á Manhattan og hinn nýja farkost Loftleiða, sem flýgur á milli á hálfum sjöunda tíma. ★ BAÐFATATÍZKAN. Sama hvort á að lauga sig í Landmannalaugum, ísafirði, Nauthóls- víkinni eða á Ítalíu — það þarf baðfatnað og baðfatatízkan er alltaf að breytast. ★ EINKALÍF EIGINKONUNNAR. Smellin smá- saga. ★ NEYÐARKALL ÚR GEIMNUM. Þriðja grein í þessum greinarflokki. •k SÍÐAN SÍÐAST. Myndir og allskonar efni af léttara taginu. I ÞESSARi VIKU Hver á veiðiréttinn? Nú er það hér um bil úr sögunni að hægt sé að ná tali af stórlöxum yfir hásumarið því þeir eru allir í laxinum hingað og þangað. Nú er laxveið- in raunar orðin almenningssport og marga fýsir að vita, hver hefur réttinn á veiðinni í hinum og þessum vötnum og ám. Vikan hefur fengið leyfi hjá Ferðahandbókinni til aff birta grein- argott yfirlit um þetta eftir Þór Guðjónsson, veiði- málastjóra. Við birtum líka kort af bifreiðaslóðum á miðhálendinu eftir Sigurjón Rist. Einkalíf eiginkonunnar Hann var orðlnn þreyttur á þessu hjónastandi, en konan vildi ekki gefa honum skilnað. Svo hann varð að flytja að heiman, og slíta þannig samvistum. En skilnaðarlögin leiða stundum fórnar- lömb sín út í ótrúlegustu fyrirtæki, og stundum horgar sig betur að halda áfram að húa með sinni kerlingu og gera sig ánægðan með það, en að halda skilnaði tii streitu. Svo er ekki að vita, nema hún þurfi manns með. Skemmtileg smásaga. Svona er sumartízkan Léttir kjólar og bjartir litir einkenna sumartlzk- una í ár. Við birtum myndir af nokkrum kjólum sam- kvæmt sumartízkunni og iýsum þeim lítil- Iega um leið. Vikan heimsækir Úmar Ragnarsson Það er óþarfi að kynna Ómar fyrir lesendum. Hann hefur nú í hálfan áratug verið vlnsælasti skemmtikraftur landsins, að öllum öðrum ólöstuð- um. Enda reynum við ekki að kynna hann, við birtum hara stutt og skemmtilegt viðtal og mynd- ir úr heimilislífinu I serlunni VIKAN heimsækir . . . FORSÍÐAN Islenzkur listiðnaður hefur ekki verið ýkja fjölbreytt- ur til þessa, en tekur framförum með hverju ári. Á forsíðunni er ein merk viðbót: Kaffistell úr brennd- um leir frá Glit. Ragnar Kjartansson hefur búið til nokkrar gerðir, sumar með venjulegu sniði, aðrar mjög nýtízkulegar. Þessi kaffistell eru seld í Hús- gagnaverzlun Reykjavíkur. Kristján Magnússon tók myndina þar. VIKAN 27. tbl. — g

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.