Vikan - 02.07.1964, Síða 4
NÝKOMIÐ !
KARLMAN NASKÓR
SNORRABRAUT 38 - SÍMI 18517
Hjálp! Hjálp!
Kæri Póstur!
Ég hef mikinn hug á að ganga
í bindindisstúku þar sem bannað
er að reykja og neyta áfengis,
getur þú hjálpað mér? Óska svars
fljótt.
Einn þrettán ára.
—----— Nú er úr vöndu að ráða,
vinurinn. Auðvitað fer þetta mik-
ið eftir því hvað þú ert langt
leiddur. Ef þú ert mjög illa far-
inn, skaltu leita læknis, en ann-
ars hefurðu úr töluverðu að
velja. Til eru barnastúkur innan
Góðtemplarareglunnar, Æsku-
lýðsráð hefur einnig slíka starf-
semi með höndum. Þá má nefna
skáta, K.U.F.M. og vafalaust eitt-
hvað fleira. Öruggasta lausnin er
að banna sér þetta sjálfur — og
standa við það.
AlþýSumenntun
í Englandi
Það var gaman að lesa grein-
ina um hann Ringó Starr í VIK-
UNNI, núna fyrir skemmstu. Ég
er enginn aðdáandi Bítlanna, en
er samt ekki svo forstokkaður
að neita alveg að viðurkenna þá,
því þeir eru í rauninni einkenn-
andi fyrir einstaklingadýrkun nú-
tímans, sakleysislega múgsefjun
og ósjálfstæði unglinga í hugs-
un.
Og ef það er satt, sem blaða-
maðurinn sagði í greininni, að
Ringó hefði álitið eintóma Eski-
móa á íslandi, sem byggju í snjó-
húsum o.s.frv., þá gef ég lítið
fyrir þeirra andlegu velferð, né
alþýðumenntun í Englandi.
Svona fýrar eru í rauninni alveg
eins og skrautlega máluð fúlegg:
Glæsilegir hið ytra (!!!) en ein-
tóm fýla fyrir innan.
Skordýrahatari.
-------— Rétt, kæri skordýrahat-
ari, alveg hárrétt. En vertu nú
ekki of forstokkaður, minn kæri.
Kannske það séu fleiri en þú,
sem skilja þetta — og jafnvel
unglingarnir ósjálfstæðu. Gerðu
þér það ljóst, að það er aðeins
skurnin, sem þeir hafa ánægju
af. Fæstir mundu kæra sig um
að kafa dýpra á þeim miðum.
„Ég er að speglera ...“
Tveir 15 ára snáðar spyrja
ýmissa spurninga um réttindi til
aksturs á skellinöðru. Þetta mun
vera nokkuð flókið mól, og ég
veit ekki betra ráð en benda þeim
á að hafa beint samband við Bif-
reiðaeftirlitið í Reykjavík, því ég
hef grun um að einhverjar breyt-
ingar standi til í sambandi við
þessi déskotans tæki.
En þeir eru sýnilega í vand-
ræðum með fleira en skellinöðr-
ur. Þeim tekst ekki vel með þá
fyrirtaks sögn, sem þeir skrifa
annaðhvort speglera — eða sbegl-
ura. Út af fyrir sig er margt vit-
lausara en þessar tillögur, skrif-
aðar eftir framburði. Annars er
sögnin dönsk og heitir — at
spekulere, sem mundi þýða á ís-
lenzku „að velta fyrir sér“. ís-
lenzka orðabókin gefur orðið upp
með spurningarmerki, sem þýðir
að vafasamt sé að það sé íslenzkt.
Þar er það skrifað „að spekúlera"
og orðið spekúlant (sá sem
spekúlerar) hefur þar ekkert
spurningarmerki við sig.
Glugg - glugg!
Góðan daginn, þið þarna á
Vikunni!
Við erum hér tvær stúlkur, sem
gluggum stundum í Vikuna.
Okkur langar að láta í ljós þakk-
læti okkar fyrir ferðagreinina í
nýútkomnu blaði ykkar. Við er-
um á leið til útlanda og kom því
greinin okkur mjög vel. Kærar
þakkir.
Dísa og Gréta.
--------Þakka ykkur fyrir bréf-
ið, þið þarna. Gott er að VIKAN
skuli þó einu sinni hafa gert
ykkur gagn. En að það skuli ekki
hafa verið oftar, er aðeins af
einni ástæðu: VIKAN er ekkert
glugg-blað. Það nægir sem sagt
ekki að glugga í hana stundum.
VIKAN er blað, sem þarf að les-
ast spjaldanna á milli — og sem
allir hafa ánægju af að lesa
spjaldanna á milli.
Reynið þið það nú einu sinni,
og vitið hvort þið finnið ekki
eitthvað fleira gagnlegt til að
glugga í.
„Það er röddin, sem
heillar!“
Vika mín!
Ég veit að þú bæði getur og
vilt hjálpa mér til að koma á
framfæri sérstöku þakklæti til
Ríkisútvarpsins fyrir óteljandi
ánægjustundir bæði fyrr og nú