Vikan


Vikan - 02.07.1964, Blaðsíða 9

Vikan - 02.07.1964, Blaðsíða 9
<J — ÞaS tókst í annarri tilraun, að eignast rauðhærSan strók. Jó, hann er víst dólitið likur mér, en fólki finnst hann samt líkari afa sínum, sem hann heitir eftir, Ragnari. Jónína er nýorðin tveggja óra, eg þá fékk hún þríhjól í afmælisgjöf. Hún er ennþá dálítið hikandi gagnvart þessu farartæki, en pabbi hennar gengur rösklega fram í að kenna henni á það. — Ætli ég verði ekki að fá það lánað hjá henni, meðan ég er billaus, sagði Ómar ,og hló. 'O' Hún er svo miklu stærri en íbúðin upp- frá. — Hvað hefurðu lengi starfað við að skemmta fólki? — Það eru orðin 6 ár. — Og hvað hefurðu komið oft fram á þeim tíma? — Það veit ég ekki. Ætli það sé ekki farið að slaga hátt í þúsund skipti. Annars er dauður tími, bæði á vorin og haustin, en svo í febrúar, þá hefur það komizt upp í 8 skipti á einu kvöldi. Það er bara svo vont að finna 8 félög, sem vilja fá mann með hæfilegu milli- bili — eitt strax og það áttunda ekki fyrr en alveg undir lokin. — Hefurðu alltaf jafn gaman af þessu? — Eg hafði voða gaman af þessu fyrsta árið, en dauðleiddist annað ár- ið. Svo varð þetta ágætt aftur. Ann- ars eru mestu áhyggjurnar af þvl að búa til efnið. Ég er að verða andskoti þurr núna. Mér dettur ekkert skemmti- legt í hug. — Þangað til á síðustu mínútunum, sagði Helga. — Já, þetta bjargast alltaf á síð- ustu stundu. Það hefur ekki brugðizt. Mér er það minnisstætt, þegar ég var að skemmta á Akureyri um daginn, og var alls ekki ánægður með það, sem ég ætlaði að fara með. En svo, rétt áður en ég átti að fara inn, datt mér í hug efni og bjó til þátt á stundinni, og hann vakti lukku. Annars er það svo merkilegt, að ef maður hefur eitthvað um menn innan þeirra fyrirtækja, sem maður er að skemmta, er alveg sama, hvað það er þunnt. Það er hlegið að því öllu. Ég man til dæmis eftir því, þegar ég var einu sinni að skemmta hjálparsveit skáta. Þá ætlaði ég að láta syngja með mér, og sagði fólkinu, að fyrst ætlaði ég að fara með textann, og svo ættu allir að apa eftir mér og syngja og hafa hátt, eins og bergmál. Ég skildi ekkert í því, að það fóru allir að skellihlægja. En svo var mér sagt á eftir, að þarna var ein- hver, sem hét Bergur, og þótti láta heyra dálítið mikið í sér. Eða þegar ég var einu sinni að fara með vísurnar um Möggu og Jón, þegar þau eignuðust fyrsta barnið, en þá sátu einmitt Magga og Jón við borð beint fyrir framan mig. Það ætlaði allt um koll að keyra, en ég vissi ekki af hverju. — En hvernig taka menn því, þegar þú hermir eftir þeim? — Yfirleitt mjög vel. Og það er oftast gaman að herma eftir mönnum, sem eru í salnum. Nema ég var svolítið nervös FramhaM á bls. 47.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.