Vikan


Vikan - 02.07.1964, Síða 10

Vikan - 02.07.1964, Síða 10
Hún brosti. Án þess að svara steig hún niður í kerlaugina og lagðist endilöng. Hún leit upp. Ljóst hárið á líkama hennar glitraði gegn- um vatnið eins og gullkrónur. Hún sagði lokkandi: — Þú verður að þvo mér. Ég veit ekki hvað ég á að gera. Þú verður að sýna mér það. Bond sagði örvæntingarfullur: — Þegiðu Honey. Og hættu að daðra við mig. Taktu sápuna og svampinn og byrjaðu að þvo þér. Andskotinn eigi þig! Þetta er ekki tími til að elska. Ég ætla að fá mér morgun- mat. Hann teygði sig í handfangið og opnaði dyrnar. Hún sagði lágt: — James! Hann leit aftur. Hún rak út úr sér tunguna. Hann gretti sig framan í hana til baka og skellti hurðinni. Hann fór inn í búningsherbergið og stanzaði á miðju gólfi og beið eftir því að hjarta hans róaðist. Hann nuddaði höndunum yfir and- litið og hristi höfuðið til þess að losna við hugsunina um hana. Til þess að snúa huganum að öðru, rannsakaði hann bæði herbergin vandlega með tilliti til útkomu- möguleika, einhvers, sem hægt væri að nota fyrir vopn, í leit að hljóð- nemum, eða bara einhverju, sem gæti bætt við þekkingu hans. Hann fann ekkert af þessu. Það var raf- magnsklukka á veggnum, sem sagði að klukkan væri hálf níu og við hliðina á tvíbreiðu rúminu var röð af bjölluhnöppum. Á þeim stóð herbergisþjónusta, rakari, hand- snyrting, þjónustustúlka. Það var enginn sími. Efst í hornum beggja herbergjanna var lítil loftrist. Um það bil tvö ferfet. Gagnslaus. Dyrn- ar virtust vera úr einhverjum létt- um málmi og málaðar í sama lit og veggirnir. Bond kastaði sér af öllum þunga á aðra hurðina. Það var ekkert lát á henni. Hann nudd- aði á sér öxlina. Þetta var fangelsi — íburðarmikið fangelsi. Það þýddi ekkert að deila um það. Þau voru föst í gildrunni Nú var aðeins um að gera fyrir mýsnar að gera sér eins gott af ostinum og hægt var. Bond settist niður við matarborð- ið. Á bakkanum var stór krukka með ananassafa ( fötu af möluð- um ís. Hann saup í sig safann og lyfti dúknum af öðrum diskinum. Þarna var eggjahræra á ristuðu brauði, fjórar baconsneiðar, grilluð nýru og eitthvað, sem leit út eins og svínasteik. Ymislegt fleira matar- kyns var á diskinum, marmelaði, hunang og jarðarberjasulta. Kaffið var sjóðheitt í stórri hitakönnu Rióminn var nýr. Út úr baðherberginu barst söng- ur stúlkunnar, sem söng Marion. Bond lokaði eyrunum fyrir söngn- um og byrjaði á egginu. Tíu mínútum síðar heyrði Bond baðdyrnar opnast. Hann setti frá sér ristuðu brauðsneiðina með marmelaðinu og huldi augun með höndunum. Hún hló: — Hann er ræfill. Hann er hræddur við stúlku. Bond heyrði hana rúmstera í skápn- um. Hún hélt áfram að tala, að mestu leyti við sjálfa sig: — Mér þætti gaman að vita af hverju hann er hræddur. Auðvitað mundi ég hafa hann eins og skot undir, ef við lentum í glímu. Kannske að hann sé hræddur við það. Kannske að hann sé ekki sterkur. Handlegg- ir hans og brjóst virðast svo sem nógu sterklegt. En ég hef ekki séð meira ennþá. Kannske að það sé ekki svo sterkt. Jú, það hlýtur að vera það. Það er þess vegna, sem hann þorir ekki að fara úr fötunum, svo að ég sjái. Hum, nú skulum við sjá, ætli að honum geðjist að mér í þessu? Hún hækkaði róminn: — James, vinur. Mundi þér geðj- ast að mér ( hvítum slopp með föl- bláum fuglum? — Já, fíflið þitt, sagði Bond gegnum hendurnar. — Hættu nú að þvaðra við sjálfa þig og komdu og fáðu þér að borða. Ég er að verða syfjaður. Hún rak upp óp: — O, ef þú átt við að það sé komið mál til þess að við förum ! bólið, skal ég auð- vitað flýta mér. Hún þaut um herbergið og Bond heyrði hana setjast gegnt honum. Hann tók hendurnar frá andlitinu. Hún brosti við honum. Hún var dá- fögur. Hár hennar var vandlega greitt aftur fyrir eyrað. Hörund hennar var ferskt og ungt og ham- ingja skein úr stórum, bláum aug- unum. Bond þótti vænt um brotna nefið. Það var hluti af hugsunum hans um hana og allt í einu datt honum í hug að ekki yrði allt sem fyrr, þegar hún yrði aðeins óaðfinn- anleg, falleg stúlka. En hann vlssi að það var ekki til neins að reyna að hafa hana ofan af því. Hún sat með hendur í skauti og sloppurinn opnaðist. Hann sá glitta í brjóst hennar og þar fyrir neðan sterkleg- an, litfagran magann. Bond sagði alvarlegur: — Nú skaltu hlusta á mig Honey. Þú ert dáfalleg, en svona er maður ekki í kímanó. Vefðu hann vandlega utan um þig, bittu hann vel og hættu að reyna að líta út eins og símavændiskona. Þetta eru engir borðsiðir. — Æ, þú ert leiðinlegur. Hún lokaði kímanónum svo sem tveim tommum betur. — Hvers vegna lang- ar þig ekki að leika þér? Mig langar að leika að ég sé gift. — Ekki við matborðið, sagði Bond ákveðinn. — Svona, éttu nú matinn þinn. Þetta er úrvalsmatur. Og svo er ég líka grútskítugur. Ég ætla að raka mig og fara í bað. Hann stóð á fætur, gekk umhverfis borðið og kyssti hana á ennið. — Og hvað leiknum við kemur, eins og þú kallar það, mundi ég frekar vilja leika mér með þér en nokk- urri annarri í heiminum. En ekki núna. Án þess að bíða eftir svari hennar, fór hann inn í baðherbergið og lokaði hurðinni. Hann rakaði sig og fór í bað, bæði kerlaug og steypibað. Hann var óumræðilega syfjaður. Svefn- inn kom yfir hann í öldum svo að við og við varð hann að hætta þvf sem hann var að gera og lúta með höfuðið niður á milli hnjánna. Þegar hann kom að því að bursta tennurnar, gat hann varla valdið tannburstanum. Nú þekkti hann merkin. Honum hafði verið gefið svefnlyf. f kaffinu eða ananassafan- um? Það skipti ekki máli. Það skipti ekkert máli. Allt sem hann vildi var að leggjast niður á flísa- lagt gólfið og loka augunum. Hann vafraði óstöðugur til dyra. Hann gleymdi þv(, að hann var nakinn. Það skipti ekki máli heldur. Stúlk- an hafði áreiðanlega lokið v(ð mat- inn sinn. Hún var komin í bólið. Hann vafraði til hennar og datt um JQ — VIKAN 27. tW.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.