Vikan


Vikan - 02.07.1964, Page 19

Vikan - 02.07.1964, Page 19
oft er hálka eða jafnvel hríð á heið- inni, þótt blíðuveður og frostleysa sé niðri við Seljabrekku. Og Almanna- gjá er fljót að teppast. En þó er hún ekki eins slæm og hættuleg og veg- urinn í hallanum, austan við vatnið. Þar seitlar yfir veginn og frýs, og þá er ein gljá ofan í vatn. Og ekki er hægt að loka umferð um þennan spotta, þótt yfir hann frjósi, því börn úr Þingvallasveit eru í skóla á Ljósa- fossi, og það er heimavistarskóli með farskólasniði, þannig að börnin eru í skólanum 10 daga í einu en svo heima nokkra daga á milli. Og þrisvar í mán- uði skiptast forráðamenn barnanna á um að flytja þau og sækja, og þarf litlum getum að því að leiða, hvernig færi, ef bíll ylti þarna á svellglotta alla leið ofan í vatn með börn heill- ar sveitar. Svo kom séra Eiríkur heim, og þótt spurningabörnin — tvær telpur — biðu eftir honum, fórnaði hann okkur smástund. Við spurðum um bústofn- inn á Þingvallabænum. Þingvellir eiga mikið land, sagði Eiríkur. Þeim fylgir Hofmannaflöt, sem er mikið graslendi uppi undir Meyjarsæti, og Þingvallanefnd hefur ráðstafað því landi þannig, að það væri nytjað frá Gjábakka. í fyrra var enginn búskapur á Gjábakka, og Hof- mannaflöt því ekki slegin, en Ingólf- ur í Miðfelli heyjaði á Gjábakka. Þingvöllum fylgja einnig Leirurnar —• fyrir botni Almannagjár, — og þær hefur Markús í Svartagili slegið. Og íþróttavöllurinn undir Þing- brekku, svokallaðir Efri-vellir, hefur verið lánaður Jóhannesi í Heiðarbæ. En hvað viðkemur búskap á sjálfum Þingvallabænum, hafði séra Jóhann Hannesson kýr, því þótt skepnur séu ekki vel séðar innan þjóðgarðsins, hef- ur verið látið viðgangast, að þjóð- garðsvörður hefði nautgripi, því þar er einangrað á vetrum og nautgripa- rækt í sveitinni takmarkast við notk- -,un mjólkur á bæjunum sjálfum, en ráir aflögufærir. En gripahúsin eru farin að ganga úr sér, enda ekki upp- runalega gerð til langrar endingar, heldur byggð úr afgangstimbri, sem til féll við alþingishátíðina 1930, og sömuleiðis er leiðin til húsanna oft hættuleg, einkum á vetrum, þar sem yfir gjár er að fara. Meðal annars er þar ein gjá, sem Fjósgjá heitir, og er 26 metra djúp. Að vísu er brú yfir hana, en þetta er viðsjál leið í vetrar- myrkri og veðrum. Svo séra Eiríkur hætti að hafa kýr, en kaupir nú mjólk af Markúsi í Svartagili. Havð snertir veiðiskap frá Þing- vallabæ, hafa þjóðgarðsverðir lítið notað veiðiréttindin í vatninu. Séra Eiríkur sagðist nánast ekki hafa stundað veiði, enda væri það skoðun hans, að þar sem stangaveiði væri seld innan marka þjóðgarðsins, ætti að stilla netaveiði á því svæði mjög í hóf. Hins vegar hefði hann staðið að murtuveiði á haustin, og þótt hann yrði að kaupa mannskap til þess, væru nokkur hlunnindi að því. Og úr því við erum að tala um veiðiskap innan þjóðgarðsins, er rétt að skjóta því inn í, að veiðileyfi á svæðinu kostar nú 50 krónur fyrir stöngina yfir daginn. Séra Eiríkur gat þess, að umgengni um þjóðgarðinn væri mjög góð. Þang- að koma foreldrar með börn sín um helgar og reyna að eiga friðland. Und- an hreinlæti þessa fólks er ekki að kvarta, þótt raunar væri ástæða til að gera meira fyrir það, svo sem að koma upp almenningssalernum og vatns- leiðslum, þar sem erfitt er um vatn. Að vísu var Valhöll styrkt til þess að koma upp salernum fyrir almenning, en það er dálítið um hönd fyrir þá, sem búa í tjöldum inn með Leirum eða austur á Vellankötlu að hlaupa niður í Valhöll, þegar þeir þurfa að komast á salerni. Einu gestirnir, sem ekki eru vel séðir í þjóðgarðinum, eru unglingar, sem reisa þar fjöldatjald- búðir, þegar þeir leita sér útrásar að vorinu, þreyttir eftir skólasetu og prófspennu, og því hefur Þingvalla- nefnd ekki leyft að tjalda í þjóðgarð- inum fyrr en um miðjan júní. Nú orðið er um tvær leiðir að velja frá Þingvöllum til Reykjavíkur um Mosfellsheiði. Annars vegar er gamli vegurinn um Almanna- gjá, sem allir þekkja, og útlend- ingum þykir á við beztu Hitch- cock-myndir: Að demba sér allt í einu ofan í þessa glufu, þar sem liggur við að lakkið af bíilhliðunum verði eftir á klettaveggjunum. Hins vegar er ný leið, norðan gjár, en mér er sagt, að sá vegur ætli að verða erfið- ur. Á nokkrum kafla gleypir jarð- vegurinn endalaust ofaníburðinn, og virðist aldrei fullmettaður. Mig minn- ir, að í vor hafi 150 bílhlössum af ofaníburði verið hellt í þessa eilífðar- hít, til þess að reyna að gera veginn akfæran. En hvernig sem það er í pottinn búið; rétt þar sem vegirnir mætast vestan gjárinnar, er afleggj- ari til norðurs, heim að Brúsastöð- um. Við komum við á Brúsastöðum í fyrrasumar, og ég geri varla ráð fyrir, að fjöldi heimilisfólksins hafi breytzt til muna síðan. Þar búa bræður tveir, Ragnar og Jóhann Jónsson, og kona Ragnars, Gréta Jónasdóttir, ásamt tveimur börnum Grétu frá fyrra hjónabandi og öðrum tveimur, sem hún og Ragnar eiga. Fyrir tilviljun bar okkur að gerði sama dag og fleiri stéttarbræður frá Reykjavíkurblöðun- um, því daginn áður höfðu þrjú barn- anna farið fótgangandi — og án þess að láta vita um ferðir sínar — yfir að Stíflisdal, þar sem Jóhann var að heyja. Þau villtust af leið og komu niður all miklu fyrir vestan Stíflis- dal, en römbuðu síðan heim þangað, og orðin ærið þreytt. Þar fundust þau svo um kvöldið, eftir að stór hópur O Kárastaðir í Þingvallasveit. Húsið er byggt 1925, í gömlum burstastíl. Bræðurnir á Kárastöðum og Sveinn frá Selkoti. Hörður og Guðrún í Skálabrekku voru að setja niður kartöflur. Hér beint fyrir neðan er Regína hús- freyja með sonarson sinn. Nýja húsið í Skálabrekku. Það er mjög í stíl við bæjarnafnið, viðfeldin skálabygging undir brekkunni. var farinn að leita að þeim dauðaleit, og voru mjög fegin að komast heim aftur. Þeir Ragnar og Jóhann voru að heyja úti í Stíflisdal þenn- an dag, en Gréta tók vel á móti okkur. Hún og Ragnar voru þá nýlega flutt að Brúsastöðum ásamt Jóhanni, sem bjó áður 1 Stíflisdal og var þar einn. Bræðurnir hafa um 700 fjár og tvær kýr, en eins og er standa Brúsastaðir ekki einir undir þeim stofni, og því þurfa þeir að heyja afbæis. Hins vegar eru Brúsastaðirnir ágæt jörð til ræktunar, þurrlend og þarf sáralitla skurði. Brúsastaðir hefur sérstöðu meðal bæja í Þingvallasveit að því leyti, að þar er álagablettur. Hann má ekki heyja, ef • • • • VIKAN 27. tbl. 19

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.