Vikan


Vikan - 02.07.1964, Blaðsíða 37

Vikan - 02.07.1964, Blaðsíða 37
mívannBerys SrœSur er sonur minn? Monsieur de Barre, vilduS þér vera svo elskulegur að sækja liSsforingjann? Og þegar hinn sextán ára gamli liðsforingi kom, hélt móðir hans áfram: —• Philippe, þetta er de Sancé, frænka þin. Taktu hana með í dans- inn. Henni finnst áreiðanlega! meira gaman að vera með unglingunum en okkur. Angelique hafði þegar risið á fætur. Henni gramdist, hversu mjög hjarta hennar barðist. Ungi aðalsmaðurinn leit á móður sína með ó- dulinni gremju. Af hverju treðurðu þessari fuglahræðu upp á mig? sagði augnaráðið. Samt rétti hann út höndina og sagði milli samanbitinna tannanna: — Komdu, kæra frænka. Hún lagði netta fingur sína í hönd hans og það varð þögn í salnum, þegar hann leiddi hana í í áttina að danssalnum, þar sem hirðsveinar og aðrir, unglingar á hennar aldri skemmtu sér. — Rýmið til! Rýmið til! hrópaði Philippe þegar þangað kom. — Vinir mínir, leyfið mér að kynna frænku mína: Barónessu sorgarklæð- anna. Það varð almennur hlátur og ungu mennirnir komu þjótandi til þeirra. Hirðsveinarnir voru í furðulegum buxum með víðum lendapok- um, sem teknir voru saman fyrir ofan hnén, og á löngum, mjóum, drengjalegum fótunum báru þeir háhælaða skó. Angelique fannst þeir líta út eins og vaðfuglar. Ég er ekki broslegri i sorgarfötunum mínum, en þeir með þessar lendablöðrur, hugsaði hún. Einn piltanna hneigði sig fyrir henni og spurði: —• Dansið þér, Mademoiselle? — Svolítið. —• Einmitt! Hvaða dansa? —• La bourée, le rigaudon, la ronde...... — Ha, ha, ha, skellihló unglingurinn. — Philippe, hvers konar fugl er nú þetta? Nú skulum við efna til happdrættis, herrar mínir. Hver vill dansa við sveitapíuna? Nokkur sjálfboðaliði í la bourée? Allt i einu sleit Angelique sig lausa og flúði i leit að föður sinum. Loks heyrði hún rödd markgreifans gegnum lokaðar dyr: — Alls ekki! Alls ekki! Þú ferð hrapallega villur vegar, sagði hann í kvörtunartón. — Þú skalt ekki ímynda þér, að þaö sé auðvelt fyrir okkur aðalsmennina að fá undanþágu frá sköttum. Þar að auki hef hvorki' ég né de Condé prins vald til að veita slLkt. Sömuleiðis finnst mér, að þú, sem aðalsmaður, gerir sjálfum þér vanvirðu, með því að snúa þér að verkeíni, sem ber svona| mikinn keim af — þú fyrirgefur orðið — verzlun. — Verzlun eða verzlun ekki. Ég verð þa alltaf að draga fram lifið, mótmælti Armand de Sancé og Angelique létti, þegar hún heyrði hve rólegur hann var. -— En ég þá? hrópaði markgreifinn. — Heldur þú að ég hafi ekki mína erfiðleika? — Þú hefur allt aðrar tekjulindir en ég, kæri frændi. —• Veit ég vel, Armand. En hefurðu aldrei velt því fyrir þér, hvernig ég, hirðmaður með tvö mikilsverð embætti, fer að þvi að draga fram lífið? Heildarárstekjur mínar eru að meðaltali 160 þúsund livres...... — Ég væri ánægður með tíunda part af þvi, skaut baróninn inn í. —' Biddu aðeins. Ég hef, sem sagt, 160 þúsund livres í tekjur, en kostnaðurinn við konuna mína, liðsforingjaembætti sonar míns, húsið mitt I París, höllina mína í Fontainebleau, ferðir mínar með1 hirðinni, vextir af beinum lánum plús kostnaður við móttökuathafnir, föt, vagna, þjónustufólk og svo framvegis, gerir yfir árið um 300 þúsundi livres. — Þú tapar sem sagt 140 þúsund livres á ári? — Þú getur reiknað það sjálfur, kæri frændi. Og ég romsaði þetta aðeins upp fyrir þig, til að reyna að láta þig skilja, hvers vegna ég get alls ekki rekið erindi þitt við skattayfirvöldin. — En þú þekkir skattstjórann? — Ég þekki hann, en við hittumst ekki nú orðið. Hann er í þjónustu kóngsins og kóngarmóðurinnar. — Og hvað .... — Veiztu ekki, að de Condé prins er í ónáð hjá hirðinni, og ég er tryggur liðsmaður hans? — Hvernig ætti ég að vita það? Ég hitti þig fyrir aðeins fáeinum mánuðum, og Þá átti drottningin ekki tryggari þjón en prinsinn. VIKAN 8». tfol. —

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.