Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 02.07.1964, Qupperneq 41

Vikan - 02.07.1964, Qupperneq 41
þegar guS var að skapa heim- inn, og spurði Svisslendinginn, hvernig hann vildi hafa landið sitt. Svisslendingurinn svaraði: — Ég vil hafa það með Alpa- landslagi, háum íjöllum og djúp- um, grösugum dölum, skoppandi ám og lækjum, vaxið miklum og fallegum gróðri, og svo vil ég hafa mikið af góðum mjólkur- kúm. Guð fór að beiðni Sviss- lendingsins, en þegar hann var búinn að því, var hann þreyttur og þyrstur. Svo hann settist nið- ur við borð Svissarans og sagði: — Nú er ég þreyttur. Vertu nú svo værm að láta mig hafa mjólk- urglas. Svissarinn snaraðist burt, kom aftur með fleytifullt glas af mjólk, setti það á borðið hjá guði, hneygði sig djúpt og sagði: -— Þetta verða tveir frankar, herra minn. Skyldu Svisslendingar og ís- lendingar vera ósvífnustu þjóðir heims? Þegar við vorum á leið til bæjarins eftir Þingvallaferð í júlí í fyrrasumar, ókum við beint inn í sólarlagið. Nokkru nær Þingvöllum en sólarlaginu, en þó utarlega á heiðinni, sjást þrír bæir norðan við veginn. Þetta eru Stíflisdalur I og II, og Fellsendi. Vegurinn heim að þessum bæjum skyldi ekinn af ýtrustu varkárni, og varla ráðlegt að reyna það á vambsíðum Ameríkana. En á há- fættum Þjóðverja er þetta engin frágangssök. En ætlir þú að kom- ast að bænum, sem er fyrir innan Stíflisdal, og sézt ekki af vegin- um, skaltu setja bílinn þinn þar sem hann er ekki fyrir heima í Stíflisdal, og nota þína eigin fæt- ur. Því það er langt heim að Selkoti og ekki farandi nema á dráttarvélum eða fjallabílum. Selkot er norðaustur af Stíflis- dal, inni á Kjósarheiði. Þetta er afskekktur staður, en bæjarstæð- ið er fallegt, og útsýnið öllum boðlegt. íbúðarhúsið stendur enn, og nokkrir kofar, en mest af úti- húsunum er hrunið. Rétt ofan við bæinn er grafreitur. Um- hverfis hann er hlaðinn stein- veggur, og innan veggjanna vaxa hundasúrur, biðukollur, sóleyjar, dagstjarna, Alaska lúpínur, ven- usvagn, reyniviður, ribsrunnar og gras. Stór randafluga sveimaði yfir þessari gróðursæld og átti góðan dag í sólinni. í miðjum grafreitnum er legsteinn, sem á stendur: „Hvílir hér duft í dánarbeði, en andinn lifir í æðra veldi. HELGA PÁLSDÓTTIR F. 12. marz 1876 D. 12, jan. 1949 RAGNHILDUR LÝÐSDÓTTIR F. 16. febr. 1887 D. 3. febr. 1953“ Þetta voru konur Sveins Ingv- arssonar, þess sem síðast bjó í Selkoti, og við hittum nú á Kára- stöðum. r Ef þér viljiS veita yður og gestum yðar úrvals máltíðir, fullkomna þjónustu og hlýlegt umhverfi þá veljið þér örugglega NAUSTIÐ VIKAN 27. tbl. —

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.