Vikan


Vikan - 02.07.1964, Side 49

Vikan - 02.07.1964, Side 49
 þannig fyrir komið, að allir, sem sætu í þessu herbergi, sneru að auða veggnum. I þessu bili tók Bond eftir hreyf- ingu í dökku glerinu. Hann gekk yfir herbergið. Lítill fiskur þaut fyr- ir glervegginn hinum megin og á eftir honum annar stærri. Þeir hurfu eins og út af kvikmyndatjaldi. Hvað var þetta? Fiskabúr? Bond leit upp. Um það bil meter fyrir neðan loftið gjálfruðu litlar öldur á glerinu. Yfir öldunum var liturinn blásvartur og örlítil Ijós skinu hér og þar á þess- ari rönd. Það var stjörnumerkið Orion, sem kom honum á réttan kjöl. Þetta var ekki fiskabúr. Þetta var sjórinn sjálfur og næturhiminn- inn. Allur þessi veggur var gerður úr þykku gleri. Þau voru undir yfir- borði sjávar, og horfðu beint inn í sjóinn, tuttugu fet undir yfirborð- inu. Bond og stúlkan stóðu sem dá- leidd. Meðan þau horfðu, sáu þau tvo stóra krabba fyrir utan. Síðan kom hópur af ansjósum, stanzaði við gluggann eins og til þess að horfa inn og flýtti sér svo burt. Stærðar fiskur renndi sér fyrir gluggann. Hann varð fjólublár í skininu innan frá. Bond gekk að veggnum, dáleidd- ur af þeirri hugmynd, að búa hér við þessa hægu, síbreytilegu kvik- mynd. Stór skel var á hægri leið upp eftir glugganum. Það var meira líf í sjónum lengra frá, en sást illa. Það gæti verið gaman að sjá betur. Eins og svar við þessari ósk, ÞAÐERSPARNAÐUR í AÐ KAUPA GÍNU Óskadraumurinn við heimasauminn Omissctndi fyrir allar konur, sem sauma sjálfar. Stærðir við allra hæfi. Verð kr. 550,00 og með klæðningu kr. 700,00. Biðjið um ókeypis leiðarvísi. Fæst í Reykjavtk hjá: DÖMU- & HERRABÚÐINNI Laugavegi 55 og GÍSLA MARTEINSSYNI Garðastræti 11, sími 20672 komu tvö sterk kastljós innan frá, gegnum glerið og út í vatnið. Það iðaði af lífi. Bond sá, á þessum fá- einu andartökum, miklu meira af lífinu í sjónum, heldur en hann hafði séð á allri ævinni áður. Kastljósin slokknuðu. Bond sneri sér hægt við. Hann bjóst við að sjá dr. No, en enn var herbergið autt. Það virtist dautt og dofið í samanburði við iðandi dulúðina utan við gluggann. Bond leit aftur út. Hverju væri þetta líkt í litum sólarljóssins, þegar að hægt væri að sjá hverja hreyfingu að minnsta kosti tuttugu metra frá sér? Hverju væri þetta líkt í stormi, þegar öld- urnar skyllu hljóðlaust á glerinu? Hverju var þetta líkt á kvöldin, þegar að síðustu gullnir geislar sól- arinnar skrýddu efri helming her- bergisins og vatnið fyrir neðan væri fullt af iðandi fiskum og vatna- dýrum? Það hlaut að vera alveg sérstakur maður, sem hafði látið sér detta þetta í hug, og það hafði krafizt sérstakrar verkfræðisnilldar að koma þessu í kring. Hvernig hafði hann farið að því? Það var ekki hægt nema á einn hátt. Hann hlaut að hafa reist glervegginn nokkuð langt inni undir klettinum og síðan fjarlægt lag eftir lag, þangað til að sjórinn náði alla leið upp að glerinu. En hversu þykkt var glerið? Og hver hafði búið það til fyrir hann? Hvernig hafði hann komið því til eyjarinnar? Hversu marga kafara hafði hann notað? Og hversu mikið, í almátt- ugs nafni, mundi þetta hafa kost- að? — Eina milljón dollara. Þetta var þunn, bergmálandi rödd, og það vottaði fyrir amerískum mál- hreim. Bond snerist hægt á hæl og næst- um hikandi. Dr. No hafði komið gegnum dyr bak við skrifborðið. Hann stóð og horfði á þau, og það var vottur af brosi á vörum hans. — Ég bjóst við, að þið væruð að velta því fyrir ykkur, hvað þetta hefði kostað. Gestir mínir taka venjulega að hugsa um fjármála- hliðina eftir svo sem fimmtán mínút- ur. Var það ekki rétt? — Jú. Dr. No gekk hægt fram fyrir borð- ið og í áttina til þeirra. Hann brosti enn og Bond átti eftir að venjast þessu brosi. Það var frekar eins og hann rynni, en að hann tæki skref. Hné hans sáust ekki koma út í sloppinn og það sáust engir skór niður undan faldinum sem dróst með gólfinu. Bond tók fyrst eftir því hve grannvaxinn, beinvaxinn og hár dr. No var. Hann var að minnsta kosti sex tommum hærri en Bond, en vegna þess hve beinn hann var og óhreyfanlegur, virtist hann mun hærri. Hann var gersamlega sköll- óttur og höfuðið minnti mest á regndropa, eða þó öllu heldur olíu- dropa, því að skinnið var með sér- stökum, gulum blæ. Það var ómögulegt að geta sér til um aldur dr. No því Bond gat ekki séð neinar hrukkur í andlitinu. Það var skrýtið að sjá enni, sem var slétt eins og pússuð skel. Það var eitthvað eftirtektarvert við auga- brúnirnar, sem voru mjóar og svart- ar og beygðust örlítið upp eins og þær hefðu verið málaðar þannig. Undir þeim störðu svört, hallandi augu á Bond og stúlkuna. Það voru engin bráhár á þessum augum. Þau voru eins og hlaupin á tveimur litlum skambyssum, horfðu beint, óhikað og gersamlega tjáningar- laust. Fíngert þunnt nefið náði nið- ur undir munninn, sem þrátt fyrir stöðugt og óbreytilegt brosið, sýndi aðeins grimmd og vald. Kinnarnar hölluðust inn að neðan í áttina niður að hálsinum. Smám saman tók Bond eftir því, að það var sem dr. No hreyfði höfuðið aldrei sjálfstætt, það virtist eins og höfuðið og líkaminn væru í einni liðamótalausri heild. Þessi hávaxna granna vera, var einna líkust stór- um maðki, sem vafinn hefði verið í málmpappír, og Bond hefði ekki verið hissa, þótt hann hefði séð afganginn af maðkinum koma iðandi yfir gólfteppið fyrir aftan upprétta hlutann. Þegar dr. No átti eftir þrjú skref til þeirra nam hann staðar. Munn- urinn, sem var eins og sár í stóru andlitinu, opnaðist: — Ég vona að þið afsakið mig, þótt ég taki ekki í hendur ykkar. Djúp röddin var tjáningarlaus og tilbreytingarlaus. — Ég get það ekki. Hægt rétti hann handleggina í áttina til þeirra og ermarnar á sloppnum opnuðust: — Ég hefi engar hendur. Hann rétti fram stálkrókana og hélt þeim upp, svo að þau gætu séð þá. Svo krosslagði hann hendur aftur. Bond fann, að stúlkan við hlið hans kipptist til. Dökk augun beindust að henni. Þau runnu niður með nefi hennar. Röddin sagði: — Þetta er mín óham- ingja. Augun svifluðust aftur að Bond. — Þér voruð að dást að vatns- búrinu mínu. Þetta var fullyrðing ekki spurning. Menn njóta þess að hafa villidýr, skepnur og fugla í kringum sig. Ég ákvað að njóta þess einnig að hafa fiska. Mér finnst þeir miklu breytilegri og skemmtilegri. Ég er viss um að þið munuð bæði verða mér sammála. Bond sagði: — Ég óska yður til hamingju. Ég mun aldrei gleyma þessu herbergi. — Nei. Þetta var aftur fullyrð- ing, ef til vill með dálítið kald- hæðnislegum tón að þessu sinni. — En við höfum mikið að tala saman. Og mjög lítinn tíma. Gjörið svo vel að fá yður sæti. Viljið þið fá ykkur eitthvað að drekka? Sfgar- etturnar eru við stólana ykkar. Dr. No gekk að háum leðurstól og settist. Bond settist gegnt hon- um. Stúlkan settist milli þeirra, ör- Itfið til hliðar. Bond fann hreyfingu fyrir aftan sig. Hann leit um öxl. Lágvaxinn maður, kínnegri, með Ifkamsvöxt SíwjíésK APPELSÍN SÍTRÓ N L I IVI E Svalandi - ómissandi á hverju heimili SwrvffesK ______________________/ JÁ? NEI? HVENÆR? Þúsundir kvenna um heim allan nota nú C.D. INDICATOR, svissneskt reikn- ingstæki, sem reiknar nákvæmlega út þá fáu daga í hverjum mánuði, sem frjóvgun getur átt sér stað. Lækna- vísindi 56 landa ráðleggja C. D. IND- ICATOR fyrir heilbrigt og farsælt hjónaband. Skrifið eftir bæklingum vorum, sem veita allar upplýsingar. Sendið svar- frímerki. C. D. INDICATOR. Deild 2. Pósthólf 1238 Reykjavík. VIKAN 27. tbl. —

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.