Vikan


Vikan - 02.07.1964, Blaðsíða 50

Vikan - 02.07.1964, Blaðsíða 50
Nýjustu tízku- litirnir gera varir yðar undur fagrar Yardley varalitirnir eru dásam- lega mjúkir og kremkenndir. Gefa vörum yðar töfrandi útlit. í hinu fjölbreytta Yardley lita- úrvali með nýjustu tízkulitunum, er liturinn yðar. Með þvi að nota Yardley varalit verður bros yðar yndislega bjart. YARDLEY VARALITUR eins og hnefaieikamaður, stóð við drykkiabakkann. Honn var klædd- ur í svartar buxur og vel sniðinn hvítan jakka. Svört möndlulaga augun í breiðu, tunglslegu andlit- inu, mættu augum Bonds en hvik- uðu þegar undan. Dr. No sagði: — Þetta er lífvörð- urinn minn. Hann er sérfræðingur í mörgum hlutum. Það er ekkert undarlegt við það þó að hann hafi komið mjög skyndilega. Ég fel allt- af ó mér það sem kallað er „walkie-talkie". Hann bennti hök- unni niður í hólsmólið á sloppnum sínum. — Þannig get ég kallað á hann, þegar ég þarf á honum að halda. Hvað má bjóða stúlkunni? Hann sagði ekki konunni yðar. Bond sneri sér að Honeychile. Augu hennar voru galopin og starandi. Hún sagði lágt: — Coca-cola, þökk. Bond fann til léttis. Að minnsta kosti ætlaði hún ekki að láta hanka sig á framkomunni. Bond sagði: — Og ég mundi gjarnan vilja fá wodka í Martini, ekki mjög sterkt — með sneið af sítronu. Hrist en ekki hrært. Og ég mundi heldur vilja rússneskt wodka en pólskt. Dr. No togaði örlítið meira í bros- ið. — Ég sé að þér eruð einnig mað- ur, sem veit hvað hann vill. Að þessu sinni mun óskum yðar verða fullnægt. Finnst yður ekki yfirleitt að það sé þannig. Þegar maður vill eitthvað, þá fær maður það? Það er mín reynsla. — Það er þannig með aukaatrið- in. — Ef það er ekki þannig með aðalatriðin, þýðir það að þér hafið ekki sterkan vilja. Einbeiting, það er allt. Dr. No þagnaði andartak, og hélt svo áfram: — En þetta er snik snak. Við verðum að tala saman. I staðinn skulum við heldur segja frá. Ég er viss um að báðir vilja heldur þann kostinn. Er drykkur- inn yðar eins og þér viljið hafa hann? Þið hafið þarna sígarettur, hafið nóg af þeim og er þetta rétta tegundin til þess að hugnast krabb- anum í yður? Þá er það í lagi. Sam, settu hristarann við hlið- ina á manninum og aðra flösku af coca-cola hjá stúlkunni. Ég gizka á að kilukkan sé nú tíu mínútur yfir átta. Við munum borða klukk- an níu stundvíslega. Dr. No rétti heldur betur úr sér í stólnum. Hann hallaði sér lítið eitt áfram og starði á Bond. Það var andartaksþögn í herberginu, nú skulum við segja hvor öðrum okk- ar leyndarmál. Fyrst, til þess að sýna yður að ég hefi ekkert að fela, skal ég segja yður mína sögu. Svo skuluð þér segja mér yðar. Það kom dökkur glampi í augu dr. No: — En við skulum segja sann- leikann. Hann dró aðra stálklóna út úr víðri erminni og hélt henni upp. Hann sagði: — Ég skal gera það. En þér verðið að gera hið sama. Ef þér gerið það ekki, sagdi hann og benti með klónni á augu sín, munu þessi sjá að þér eruð að Ijúga. Dr. No færði stálklóna nær aug- unum og sló laust á mitt sjáaldrið sitt hvorum megin. Hvort sjáaldrið út af fyrir sig svaraði með daufum skell. — Þessi augu, sagði dr. No, — sjá allt. 15. KAFLI. - DR. NO. James Bond tók upp glasið sitt og dreypti hugsi á því. Það virtist tilgangslaust að reyna að slá ryki í augu þessa manns. Saga Bonds um það, að hann væri fulltrúi Audubonfélagsins, var mjög veik, og hver sá, sem vissi eitthvað um fugla, gat séð í gegnum hana. Það var greinilegt, að það skálkaskjól myndi ekki duga hér. Hann varð að leggja allt kapp á að verja stúlkuna. Til þess að byrja með varð hann að vekja með henni öryggiskennd. Framhald í næsta blaði. 4 enginn y . G-8-4-3 4 A-10-7-2 * A-D-4-3-2 A A-Ð-2 y K-6-2 4 K-G-9-8-3 9-6 4 K-G-7-6-5-4-3 y A 4 D-5-4 4» K-7 10-9-8 D-10-9-7-5 6 G-10-8-5 Allir utan hættu norður gefur. Norður Austur 1 lauf pass pass pass pass pass Útspil hjartatvistur. Á nýafstöðnu Olympíumóti í bridge telfdu Bandaríkjamenn fram tveimur „nýliðum", að minnsta kosti hvað milliríkja- keppnir snertir. Það voru Robert Hamman og Donald Krauss, en hvað miklir nýliðar þeir eru, má ef til vill marka af ofangreindu spili. Eftir að Krauss hafði opnað á norðurspilin, gat Hamman ekki stoppað undir spaðaúttekt. Vest- ur spilaði út hjarta og suður var inni á ásinn. Jafnvel þegar mað- ur sér allar hendur er ekki auð- velt að sjá vinninginn, en Hamm- an fann samt vinningsleiðina. Suður Vestur 1 spaði 2 tíglar 4 spaðar pass Hann spilaði út spaðakóng; það var nauðsynlegt að halda vestri inni. Suður trompaði síðan hjartaútspil vesturs og spilaði því næst spaðagosa. Vestur var aftur inni og ekki hægt að neita því, að erfitt var fyrir hann að finna vörnina, þ.e. að spila meiri spaða. Hann spilaði því ennþá hjarta, sem suður trompaði. Nú hætti Hamman við trompið í bili, tók tvo hæstu í laufi og trompaði þriðja. Síðan spilaði hann trompi og nú fór austur inn og spilaði tígli, en það var bara of seint. Laufið í borðinu var frítt og suð- ur gaf tvo tígla niður í það og vann sitt spil. ★ 50 VIKAN 27. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.