Vikan - 16.07.1964, Síða 2
FER-DIR
VIKULEGA
TIL
SKANDINAVÍU
Flugfélagið býður yður
tíðustu og fljótustu ferðirnar
til Kaupmannahafnar.
Frá Kaupmannahöfn greinast
flugleiðir um alla Skandinavíu.
Munið einnig beinu ferðirnar
til Noregs annan hvern dag.
Stundvísi,hraði og góð þjón-
usta eru kjörorð okkar.
Tprryt Sa feft
RCA sjinvorpstáin
HIN ÞEKKTU OG VINSÆLU, AMERÍSKU RCA
SJÓNVARPSTÆKI - ER VAL HINNA VAND-
LÁTU.
RCA SJÓNVARPSTÆKIN ERU BÆÐI FYRiR
AMERÍKU OG EVRÓPU KERFIN.
EINS ÁRS ÁBYRGÐ Á MYNDLAMPA.
Georg Rmundason
Laugavegi 172 — Sími 15485.
I fullri alvöru
UTANGÁTTA-
UNGLINGAR
Þegar greinar eru skrifaðar um
land og þjóð og forvitnum eöa
fróðleiksþyrstum útlendingum er
svarað, þá er skýrt og greinilega
fram tekið, að skyldunám sé án
undantekningar frá því er þörn
byrja í barnaskóla og þar til ung-
lingarnir hafa náð 16 ára aldri.
Þvílík menningarþjóð. Þeir sem
ekki taka landspróf, þeir taka
gagnfræðapróf, eða ljúka prófi
frá verknámsdeildum. Allur
landslýður er með þessu gerður
vel bjargálna í danskri tungu
samkvæmt lífseigri hefð á ís-
landi, svo og ensku. og svo fram-
vegis o. s. frv.
En það virðist eitt að setja
fræðslulög á alþingi og annað að
framkvæma þau. Fræðslulög
virðast sett til þess að hægt sé
að segja útlendingum frá mennt-
unarstatus þjóðarinnar og um
leið logið því að sjálfum sér, að
skyldunám nái til 16 ára aldurs.
Sannleikurinn er nefnilega sá,
að fræðslulögin eru ekki alltaf
framkvæmd í dreifbýlinu. Kann-
rki veit menntamáiaráðherra
þetta ekki, né fræðslumálastjóri
né öll þau fræðsluráð og náms-
stjórar, sem enginn veit tölu á.
Sé svo, þá væri fróðlegt fyrir
þessa herra að vita það, að fjöldi
unglinga úti um landsbyggðina
hefur einskis náms notið utan
fjögurra vetra í barnaskóla. Og
það er ekki einu sinni alltaf um
hcila fjóra vetur að ræða, heldur
er sá námstími meira og minna
sundurslitinn þar sem taka verð-
ur námsdeildir inn til skiptis í
barnaskólana. Það væri þess-
vegna sanni nær að segja, að
barnaskólanámið væri samtals í
tveir vetur; einn kennari á hverj-
um stað og léleg kennslutækni.
Hingað á ritstjórn Vikunnar
bcrzt vikulega fjöldi bréfa frá
unglingum í Reykjavík og utan
af landi. Fræðsluyfirvöldin hefðu
gott af því að sjá sum þessara
bréfa, skrifuð af 14, 15 og 16 ára j
unglingum. Enginn getur ímynd-
að sér að óreyndu, hversu móður-
málskunnátta þeirra er bágborin.
Þegar þessi dreifbýlisbörn cru !
Framhald á bls. 47.