Vikan - 16.07.1964, Qupperneq 5
Peningana eSa lífiS!
Nafnið Helena Rubinstein
minnir mann fyrst og fremst á
kvenlega fegurð, yndisþokka og
töfra hins veika kyns, en það er
ekki víst að allir hugsi á sama
hátt. Það er t. d. vafasamt að
Elizabeth Arden eða stjórnendur
Revlon fyrirtækisins falli í trans
ef minnst er á þetta nafn, — en
mundu kannske heldur vara
menn við að gerast of nærgöngul-
ir við madömuna.
En þetta vissu ekki þrír
hörku-gæjar, sem réðust inn í
íbúð madömu Rubinstein nú fyrir
skömmu, klæddir bláum nankins-
samfestingum og með dökk sól-
gleraugu fyrir augum. Það eina,
sem þeir sáu var veikbyggð, full-
orðin kona (hún er sögð 92 ára,
en aldur hennar er meira leynd-
armál en uppskriftir hennar á
snyrtivörum).
„Opnaðu peningaskápinn, eða
við kálum þér,“ urraði aðal-gæ-
inn. „Gerðu það bara“, hreytti
hún framan í hann. „Ég er búin
að lifa nógu lengi. Þið getið svo
sem drepið mig, en ég læt ykkur
ekki ræna mig“.
Þetta gerði gæjunum gramt í
geði, og þegar hún fór að hrópa
á hjálp og skrækja, þá hurfu þeir
fljótar en nokkur andlitshrukka
án þess að snerta við nokkru
verðmætu hjá þeirri gömlu.
SKÁLDALOKKAR
Lokkur úr hári Friedrich Chop-
in, hins fræga tónskálds, var ný-
lega seldur á uppboði og fór fyrir
sem svarar um 70 þúsund íslenzk-
um krónum. Chopinsafnið á Mall-
orca keypti. Tvö bréf, sem Chop-
in skrifaði ástmey sinni, George
Sand, seldust á ca. 45 þúsund.
Fyrir nokkru héldu enskir galdramenn fund, og sýndu hvor öðrum hvað þeir gætu. Galdra-
karlinn Maurie Vogel rak þá alveg í stanz, þegar hann sýndi þeim alveg nýtt atriði. Hann
stillti sér upp fyrir framan sjö skyttur, sem miðuðu á hann og skutu síðan allir í einu skoti.
Vogel kipptist til, en jafnaði sig furðufljótt, og skyrpti svo út úr sér sjö kúlum. Það var eng-
inn vafi á því, að skytturnar sjö notuðu alvörukúlur, — enda neitaði eiginkona galdrakarlsins
að vera viðstödd „líflátið11.
En við nánari athugun kom í ljós, að plankinn vinstra megin við Vogel hafði sjö kúlugöt, og
skytturnar viðurkenndu loks að hafa fengið „fyrirmæli" hjá Vogel.
Einfalt, minn kæri Watson!
Lifandi kúlugleypir.
Síðan Hvað ætli pabbi segi?
Hátt uppi.
Svona lagað getur maður nú orð-
ið séð aðeins i eld-eldgömlum bíó-
myndum, þegar menn voru cnnþá
að leika sér með flugvélar, sem
þurfti að draga í gang.
En þessi mynd cr alveg ný af
nálinni, og þetta er í fúlustu
alvöru, jafnvel þétt hún brosir
blessunin. Af liverju hún er að
þcssu, vitum við samt ckki, ncma
það sé vegna þess, að maðurinn
hennar hafi skipað henni að standa
þarna uppl nokkra rúnta, því það
er hann, sem flýgur. Ef ykkur
langar til að vita hvað hann hcitir,
þá er nafnið Lewis Benjamin, og
heimilisfang: Panshanger, England.
En til hvers þið viljið vita það, cr
mér hulin gáta. Ef þið hefðuð
spurt um hcnnar nafn, þá hefði ég
skiliö . . .
Brigitte Bardot hefur undanfarið verið að leita að stúlku ,sem gæti
komið í hennar stað í hættulegum atriðum, eða hlaupið í skarðið ef
hún skyldi fá flensu dag og dag. Það komu um 100 ungar stúlkur til
að sækja um stöðuna, en líklegust mun hún vera þessi bomba á mynd-
inni. Hún er 20 ára gömul, heitir Lady Chinchill og er prófessorsdóttir.
VIKAN 29. tbl.
5