Vikan - 16.07.1964, Side 32
ITALIA
I SEPTEMBERSÓL
Hópferð 13.-29. september 1964
FARARSTJÓRI: VINCENZO DEMETZ, SÖNGKENNARI.
FERÐASKRIFSTOFAN
Hverf isgötu 12
Reykjavík
Símar 17600 og 17560
Skipagötu 13
Akureyri
Sími 2950
bUPftar
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
ðllrútsmerkiö (21. marz — 20. apríl):
Nú er loksins að komast skriður á mál, sem þú
hefur beðið eftir með óþreyju. Þú getur lært mikið
af reynslu kunningja þinna og ættir að geta spar-
að þér nokkrar krónurnar með því að hagnýta þér
hana. Þú verður lítið heimavið, sérstaklega á kvöldin.
©Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þú færð girnilegt tilboð frá ókunnum aðila, sem þú
skalt íhuga vandlega. Gamalt deilumál gæti dregið
úr möguleikum þínum á vissu sviði. Ættingi þinn
einn hefur niðurdragandi áhrif á þig. Forðastu eins
og þú getur að umgangast hann svo hann dragi ekki úr þér
kjarkinn.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú hefur gott tækifæri til þess að launa einum fjöl-
skyldumeðlima þinna allt gamalt og gott, þú skalt
fyrir alla muni ekki sleppa því. Miklar líkur eru
á ferðalagi, ekki mjög stuttu. Ástarmálin munu
leika í lyndi hjá ölium þeim sem þannig eru sinnaðir.
Krabbamerkið (22. júni — 23. júlí):
Þér verður mikil þörf á að nota kænsku og dipló-
matiska hæfileika þína í samskiptum við yfirboð-
ara þína. Gamalt tilfinningamál kemur á ný róti
á huga þinn. Allt virðist þó vera við það sama og
áður, svo þú skalt gæta gerða þinna.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Óvænt færðu lof fyrir vel unnið verk. Ef betur er
a að gáð, geturðu látið ljós þitt skína á þessu sviði
og orðið betur ágengt. Þú hugsar oft til ákveðinn-
*** ar persónu, sem þú hefur ekki mikið umgengizt
í seinni tíð. Þú sérð ekki eftir að hafa samband við hana.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
©Þú færð verkefni, sem er nokkuð seinlegt og ekki
tekjudrjúgt. Þú virðist ekki hafa hagnað af því í
sama hiutfalli og strit, svo það væri skynsamlegt að
hafna því. Þú lendir á mannamóti þar sem verður
óvenju margt gamalla kunningja og félaga þinna.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Loforð, sem þú hefur nýlega gefið vini þínum, reyn-
ist þér erfiðara að efna en þig hefur nokkurn
tíma órað fyrir. Reyndu að miðla málum. Þú hefur
margar góðar hugmyndir í deiglunni, sem þú ættir að
reyna að útfæra betur. Þú skemmtir þér drjúgt um helgina.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Þú verður í samkvæmi mikilla fyrirmanna og kynn-
ist ýmsu, sem þú áttir ekki von á. Aðstaða þín til
að koma þér vel fyrir er mjög góð sem stendur, svo
þú ættir að láta einskis ófrestað til að styrkja grund-
völlinn. Eyddu frístundunum heima hjá þér.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
©Þú hefur verið argur og óánægður undanfarið og
fundizt allt ganga á afturfótunum. Snúðu nú við
blaðinu og hresstu þig upp. Ef þú notar skynsemina
verður þér vel ágengt. Reyndu að gera svolítið vist-
legra i kringum þig og gagnrýndu sjálfan þig fremur en aðra.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þú hefur fengið leiðinlegar móttökur og undirtektir
hjá persónu, sem þú væntir þér mikils af. Þér er
hyggilegast að hugsa ekki meira um málið í bili. Þú
átt í vændum ferðalag, sem þú ferð í á vegum at-
vinnufyrirtækis þíns. Föstudagurinn verður óvenjulegur.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar);
Verkefni, sem þér hingað til hefur verið leikur einn,
er nú að vaxa þér yfir höfuð, auk þess sem vonir
standa til að ennþá bætist við það. Þér er því nauð-
synlegt að breyta um starfsaðferðir í tíma. Kunningi
þinn leitar ráða hjá þér í vandamáli, sem gerir þér erfitt fyrir.
©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Einn vina þinna hefur snúið við þér bakinu sökum
rangra saka. Þú getur glatt þig við, að tíminn bætir
úr þvi og þið eigið eftir að bralla margt saman. Þú
ferð í skemmtilegt ferðalag, sem stendur í sambandi
við áhugamál þin. Taktu ekki neinar fjármálalegar ákvarðanir.
02 — VIKAN 29. tbl.