Vikan - 16.07.1964, Side 33
Við íslendingar höfum — sem
betur fer — alltaf eitthvað hita-
mál. Stundum er það kaupið,
stundum stjórnmál, stundum
Keflavíkurgangan, stundum
gjaldeyrissvik og stundum sjón-
varpið.
Það er ekki beinlínis meiningin
að blanda sér í hitamál, þótt við
segjum frá einni framför í tækn-
inni, eða kannske að réttara sé
að kalla það breytingu á tækn-
inni í sambandi við sjónvarp.
íslendingar eru búnir að frétta
það á löglegan máta, að verið
getur að alþjóða sjónvarp komi
hingað til okkar fyrr en varir,
og að við þurfum ekki að eiga
allt undir bandarísku og íslenzku
sjónvarpi. Sumir halda jafnvel
að um það verði ekki að kjósa
að jafnaði, heldur þurfi maður
að velja þegar í upphafi, hvort
maður stilli tæki sitt á Reykjavík
eða Keflavík. Og enn aðrir segja
að Keflavík skuli út ganga.
Víðast hvar í öðrum löndum,
geta sjónvarpseigendur valið á
milli 6—10 stöðva. f Bandaríkj-
unum má ég segja að þær séu
8 en í Evrópu er úrvalið meira.
Hér á íslandi sjáum við aðeins
fram á val milli þess íslenzka
og bandaríska.
Svo segja sumir að alþjóða-
sjónvarpið komi fyrr en varir,
og því ekki að gera ráð fyrir því?
Eða í það minnsta hugsað um
það?
Nú eru þeir farnir að framleiða
sjónvarpstæki, sem taka allar
þessar mögulegu stöðvar í einu.
Þau eru þannig, að á þeim er
einn stór skermur, eins og menn
nú þekkja almennt. En til hliðar
við hann — sitt hvorum megin
— eru aðrir „skermar“ pínu-
litlir þrír, fjórir, eða fimm hvoru
megin — allt eftir því hversu
dýr tæki maður vill kaupa. Á
þessum litlu skermum sér maður
öll hin „prógrömmin", og á þann-
ig hægara um að velja á milli
þeirra.
Svo getur líka farið svo, að
konan vilji sjá prjónaþáttinn,
maðurinn hnefaleikana, strákur-
inn káboy og stelpan „The Beatl-
es“. Nú, þá er ekkert hægara en
að hver sjái sitt. Auðvitað fær
konan prjónaþáttinn á stóra
skerminn — því hún ræður öllu
á heimilinu, og er þýðingarmesta
persónan. — Bóndinn getur látið
sér nægja að horfa á hnefaleik-
ana í smásjá, og sömuleiðis strák-
urinn og stelpan.
En nú er vandinn sá, að ákveða
;
Úrvalsrelðhjjól
fAlkinn d.B.S.
MUDGE
B. S.A.
HOPPER
Ávallt fyrirliggjandi
í öllum stærðum fyrir karla og konur,
yngri sem eldri.
FÁLKINN H. F.f REIÐHJÓLADEILD
VIKAN 29. tbl. — 33