Vikan - 11.11.1965, Qupperneq 2
í FULLRI flLVÖRU
FORO
LANDBUNAÐARBIFREIÐIN
MEÐ DRIFI Á ÖLLUM HJÓLUM
Lengd 386 cm. Breidd 174 cm. Hæð 181 cm.
Með handtaki má aftengja millikassann.
Hlífðarpanna undir skiptikössum.
Drif á öllum hjólum. Framdrifslokur.
12 v. rafgeymir. 38 amp. alternator.
Fóðrað mælaborð. — Djúpbólstruð sæti.
Stór afturhurð.
Lengd milli hjóla 233 cm. 6 cyl. vél. 105 hö.
Eitt handfang fyrir hátt og lágt drif.
53 ltr. benzíngeymir aftast í bílnum.
Gormafjöðrun á framhjólum.
Alsamhæfður gearkassi (skiptikassi).
Rafmagnsþurrka og rúðusprauta.
Leitið upplýsinga.
SVEINN EGILSSON H.F.
UMBOÐIÐ LAUGAVEG 105 SlMI 22466
Jafnvægi í
byggö landsins
Árlega eyðum við töluverðu fé
í að halda uppi byggð á hinum
ólíklegustu stöðum á landinu, að
því er virðist til þess eins að
þessir staðir fari ekki í eyði.
Þetta heitir að halda jafnvægi í
byggð landsins. En hverjum ger-
um við greiða með þessu?
Við erum líka alltaf að ræða
um fólksflóttann úr sveitunum
eins og hann sé einhver Grýla
með átta hala. Það þarf að greiða
niður landbúnaðarvörur svo og
svo mikið til þess að borga-
gammarnir láti sér detta í hug
að kaupa þær og neyta þeirra
og samt er mæðzt yfir óheyri-
legu verði á landbúnaðarvörum.
Og hverjum er gagn að þessu?
Vitaskuld verður að ákveða
einhver skilyrði, sem staðir
verða að uppfylla til þess að
lagt sé fé í að halda byggð á
þeim. Og það skilyrði verður að
vera það, að einhverjir vilji búa
þar; nógu margirtilþessaðbyggð
svari kostnaði. Annars verður
hún bara lögð niður. Þegjandi og
hljóðalaust, hvort sem einhver
fiskimið eru þar fram af eða
ekki.
Það er ekkert við því að segja,
að fólkið leiti úr sveitunum þang-
að, sem það fær betri og lífvæn-
legri kjör. Lofum því að „flýja“
sveitirnar. Þar kemur, að aftur
verður farið að drekka mjólk,
éta smjör og osta og feitt kjöt á
íslandi, og þá verður aftur arð-
vænlegt að búa í sveit. Þá „flýr“
fólkið aftur úr borgunum út í
sveitirnar og fær sér kýr og kind-
ur og ef til vill fáeinar hænur,
nokkra hesta og einn hund. Þetta
hlýtur að fylgja hinu æfagamla
lögmáli um framboð og eftir-
spurn.
Og það er brot á þessu lögmáli
um framboð og eftirspurn, að
leggja í ærinn kostnað til að
halda jafnvægi í þeirri byggð
landsins, sem ekki getur ballan- *
serað sjálf. Það á að skrúfa fyrir
alla fjárstrauma til þeirra byggð-
arlaga, í mesta lagi veita þeim •
fáu íbúum, sem enn hírast þar,
einhvern brottflutningastyrk í
staðinn fyrir að leggja veg til
þeirra svo þeir geti flutt burt
i eftir honum, og síðan ekki sög-
una meir. Þegar íbúafjöldinn er
orðinn svo mikill, að aftur verð-
ur þörf fyrir þessa staði, þá er
eftirspurn fyrir hendi, og þá
verður að sjálfsögðu hafizt handa
með að gera það sem nauðsyn-
legt er. En fyrr er út í bláinn að
vera að því.
S.H.
2 VJKAN 45. tbl.