Vikan


Vikan - 21.12.1967, Qupperneq 39

Vikan - 21.12.1967, Qupperneq 39
þar sern Voru litlai' myndastytt- ur aí fjárhirðunum og vitring- unum frá Austurlöndum. Það skrjáfaði í pökkunum, þegar fólkið hreyfði sig. Loks hélt hann að allir væru farnir. Hann litaðist um í kirkj- unni til að fullvissa sig um það. Hann varð undrandi þegar hann sá Bob Tobruk krjúpa á bekkn- um fyrir aftan sig. „Halló Ralph,“ hvíslaði hann. „Ég þarf að tala dálítið við þig.“ Ralph fór út úr kirkjunni og beið eftir Tobruk á tröppunum. „Þú eltir mig,“ sagði hann önugur. „Nei, alls ekki.“ „Hvað viltu mér?“ „Fleming leynilögreglumaður heimsótti þig, var það ekki?“ „Hvaða máli skiptir það?“ Bud Tobruk andaði að sér fersku næturloftinu og sagði: „Þú hefur vonandi ekki sagt honum neitt.“ „Eins og hvað?“ „Það sem okkur fór á milli í morgun. Um gimsteinana, þú veizt.“ „Ég sagði honum ekki neitt.“ „Það er gott.“ „Hættu bara að elta mig á röndum." Hann gekk burtu og vildi helzt losna við þau öll með tölu. Þau fóru í taugarnar á honum. Honum var ljóst, að hann gat ekki dvalist í þessari borg öllu lengur. Þegar hann hafði pakk- að niður sínum fátæklega far- LILUU LIL-JU LILJU LIUJU LILJU BINDI ERU BETRI Fást í næstu búð SIGMAR & PÁLMI Hverfisgötu 16A, sími 21355 Laugaveg 70 - Sími 24910 angri morguninn eftir, kom Mavis í heimsókn. Hún var bet- ur klædd nú en daginn áður og mikið máluð. „Hvernig líður þér, Mavis? Ég hitti vin þinn, þennan Tobruk í gærkveldi.“ „Hann sagði mér frá því. Hann sagði, að þú hefðir haldið, að hann væri að elta þig.“ „Var hann ekki að því?“ „Við erum vinir þínir, Ralph.“ „Það fór lítið fyrir vináttu þinni síðustu tvö árin, sem ég sat inni. Þú heimsóttir mig aldr- ei.“ „Bud vill, að þú hjálpir hon- um við að finna aftur þessa gimsteina.“ „Ég kæri mig ekkert um það. Ég hef ekki verið frjáls nema í tvo daga. Það er engu líkara en þið viljið koma mér undir lás og slá strax aftur.“ „Veiztu eitthvað um þessa gimsteina?“ „Það virðast allir halda það.“ „Kom einhver leynilögreglu- maður til þín?“ „Já, hann virðist fylgjast með hverri hreyfingu minni. Og þessi vinur þinn eltir mig hvert sem ég fer. Hvað á þetta eigimlega að þýða?“ „Við erum bara að reyna að hjálpa þér.“ „Sér er nú hver hjálpin! f fjögur ár hef ég setið bak við lás og slá, Mavis, og hef beðið eftir að losna úr prísundinni. Ég bjóst ekki við að þurfa að sitja inni í fjögur ár. En þegar hin langþráða stund rennur loksins upp, gerist þetta! Ég ætla ekki að hjólpa þessum vini þínum að græða svo mikið sem grænan eyri.“ „Þá hefur hann líka rétt fyrir sér. Það varst þú, sem stalst gimsteinunum!“ „Ég hefði aldrei átt að hafa samband við þig. Ég veit ein- faldlega ekki, hvers vegna ég gerði það. Sennilega af eintómri forvitni.“ „Hann hefur rétt fyrir sér! Hann er þá raunverulegur leyni- lögreglumaður. Sjáðu til, ég sagði honum frá bílfarminum af ilmvatni, sem þú stalst. í marga daga braut hann heilann um það, hvers vegna í ósköpunum þú hefðir gert það. Loks komst hann að þeirri niðurstöðu, að þú hlytir að hafa gert það til þess að draga athyglina frá öðru og stærra afbroti, sem þú hefðir framið um leið. Hann fór á bóka- safnið til þess að lesa blöðin frá þessum tíma. Þá rakst hann á frétt um þetta gimsteinarán og morð. Þá mundi ég allt í einu eftir því, að þú hafðir ver- ið fjarverandi nóttina áður en þú varst dæmdur, sjálfa jóla- nóttina. Þú mgttir ekki fara úr borginni, en samt gerðir þú það. Ég var alveg hissa á því, að þú skyldir koma aftur. Ég hélt, að þú hefðir stungið af. En segðu mér, Ralph: Hvar faldirðu þá? „Farðu! Ég hef ekki hugmynd um, hvað þú ert eiginlega að tala um.“ „Við þurfum ekki að hafa Bud með í þessu. Við getum bara verið tvö, ég og þú eins og áður.“ Það verður aldrei eins og áð- ur, hugsaði Ralph og ásakaði sjálfan sig fyrir að hafa komið í þessa borg aftur. „Ég er að fara, Mavis,“ sagði hann. „Einn?“ „Já, einn. Leynilögreglumenn eru á hælum mér. Þú og þessi Tobruk elta mig á röndum. Ég er ekki óhultur hér. „En það eru að koma jól, Ralph." „Það koma jól á hverju ári.“ „Er þá öllu lokið okkar í milli?“ „Já, það er öllu lokið.“ Hann læsti töskunni sinni. „Skilaðu kveðju til Tobruks. Og sendu mér línu, ef ykkur skyldi takast að finna gimstein- ana!“ Hann greiddi fyrir hótelher- bergið, gekk niður á strætis- vagnastöðina og keypti sér far- miða. Fáeinar snjóflyksur féllu hægt til jarðar og dauf vetrar- sólin gæðist í gegnum þunnar skýjaslæður. Hann keypti sér farmiða til Kansas City, sem var eins langt í suðri og hann hafði efni á að fara. Hann ákvað að bíða eftir vagninum. Leynilögreglumaður- inn Fleming var hvergi sjáan- legur og ekki heldur Mavis eða vinur hennar. Það voru tíu mínútur, þar til vagninn mundi koma og aðrar tíu mínútur, þangað til hann átti að leggja af stað. Ralh tók að rölta í hægðum sínum. Fyrr en varði gekk hann götuna, sem lá upp að kirkjunni. Enn var góð stund til hádegis og kirkjan var tóm. Hvergi var nein hreyfing sjáanleg nema flökt ljóssins frá altariskertunum. Hann gekk hljóðlega niður eftir hliðarstúkunni, stóð andar- tak hreyfingarlaus fyrir framan jötuna og hinar skrautlega mál- uðu myndastyttur. Þessar myndastyttur voru nokkuð stór- ar, sumar næstum tvö fet á hæð. Hann virti þær fyrir sér fullur aðdáunar, eins og dýrlingur. Fjögur ár voru mjög langur tími, en hlutir eins og þessir breyttust ekki. Hann teygði sig eftir einum af vitringunum frá Austurlöndum. Hann var næst- um búinn að grípa utan um hann, þegar hann heyrði rödd Bud Tobruks fyrir aftan sig. „Yertu kyrr, Ralph!“ „Ég átti von á þér, Tobruk. Er Mavis með þér?“ „Hún er úti í bíl; gætir þess að vélin sé í gangi þangað til ég kem aftur.“ Tobruk var með byssu í hend- inni, en hún var lítil og Ralph L 0 X E N E - og flasan fer 5L tb! VIKAN 39

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.