Vikan - 28.12.1967, Blaðsíða 4
DANSKAR 0 G NORSKAR
HARÐVIDARHURÐIR í ÚRVALS
GÆÐAFLOKKI
Ú T I H U R Ð I R VerS frá kr. 2.400.00.
Bílskúrshurðir með iárnum, læsingu og karmi.
VerS: Harðvið, kr. 11.900,00.
Verð: Furu, frá kr. 7.900,00.
Innihurðir úr harðvið með karmi lömum og læsingu.
Verð: Frá kr. 2.900.00.
FÁST í: EIK, TEK, MAHOGNI.
*
4
>F
4
4-
4-
4-
4-
4-
4-
4-
4-
4-
4-
4-
4-
4-
4-
4-
4-
4-
4-
4-
4
4-
4-
4-
4-
4-
5-
4
4
4
4
4
4
4
4
4
Tlánargötu 12 - sími 19669
SJÓNVARP OG HEIMAVINNA.
Kæra Vika!
Þú hikar aldrei við að taka til
meðferðar í Póstinum þínum hin
flóknustu vandamál lesenda
þinna og leysa þau af mikitli
snilld. Þess vegna datt mér í hug
að leggja fyrir þig vandamál,
sem er á góðri leið með að
sprengja mitt áður friðsæla heim-
ili í lofl upp. Þannig er mál með
vexti: Við hjónin keyptum okk-
ur sjónvarpstæki eins og svo
margir hafa gert. Konan mín var
ekki lengur samræðuhæf í
saumaklúbbnum. Þar var ekki
talað um annað en þetta og hitt
sem hafði verið í sjónvarpin:
Hvað sumt hafði verið hræðilegt,
en annað agalega smart. Hún
heimtaði sjónvarp til þess að
geta tekið þátt í samræðunum,
og því miður lét ég það eftir
henni. Ég lifði ekki af kaupinu
mínu, eins og raunar flestir fs-
lendingar, og verð því að vinna
aukavinnu heima nær öll kvöld.
sérstaklega eftir að ráðizt var í
þessi déskotans sjónvarpskaup.
Núnú: Sjónvarpið hefur eyðilagt
heimilisfriðinn. Krakkarnir neita
að fara í rúmið og horfa grút-
syfjuð og stjörf á þennan Dýrling
og þennan Harðjaxl eða hvað
þessi óhroði heitir nú atlur. íbúð-
in okkar er lítil. Ég hef ekkert
sérherbergi, og er vanur að vinna
aukavinnu mína í stofunni á
kvöldin. Það er alveg af og frá
að ég geti það nú. Hávaðinn af
sjónvarpinu ætlar mig alveg að
æra.
Kæra Vika! Leystu nú þennan
vanda, ef þú getur. Ég mun launa
þér þann greiða seinna, ef ég
fæ tækifæri til. Og að lokum,
fyrst pappírinn er ekki þrotinn
enn: Hverslags líf er það eigin-
lega að sitja og horfa á bíó á
hverju einasta kvöldi?
N.N.
Það má leysa þetta mál á afar
einfaldan hátt: Þú hættir að
vinna þessa aukavinnu þína á
kvöldin. Þú ert neyddur til þess,
þar sem ekkert næði er lengur
til þess á heimilinu. Þú situr
bara eins og hinir nelgdur við
tækið á hverju kvöldi. Það er
engin neyð fyrir þig: Það er
hara gaman að mörgum þessum
þáttum í sjónvarpinu, sérstaklega
inniendu framleiðslunni. Sjón-
varpstækið hefur væntanlcga
verið keypt með afborgunarskil-
málum. Þú færð rukkun í póst-
inum um næstu mánaðamót, en
lætur hana eiga sig. Það er sjálf-
gert. Þú færð að hafa sjónvarpið
í nokkurn tíma, en þá verður
það tekið af þér vegna vanskila.
Ef konan þín rekur upp rama-
kvein, leggurðu spilin á borðið
fyrir hana: heimavinna og sjón-
varp geta ekki farið saman í lít-
illi íbúð. Og án heimavinnu: ekk-
ert sjónvarp!
DRAUMUR UM AFSKORIN BLÓM.
Kæri Póstur!
Mig langar til að biðja þig að
ráða fyrir mig draum, sem mig
dreymdi aðfaranótt 3- desember.
Ég sá um daginn, að þið réðuð
draum fyrir konu og þá gerið
þið það Hka fyrir mig. Ég les
Vikuna alltaf og sel hana líka.
Draumurinn er þannig: Mér
fannst ég ætla að taka karlmann
í fæði og húsnæði um tíma.
Fyrsta kvöldið háttar hann í stof-
unni, en ég í svefnherberginu við
hliðina. Þá finnst mér ég heyra,
að það séu fleiri en einn karlmað-
ur 1 stofunni. Ég fer og athuga
málið. Þeir eru þá orðnir þrír.
Tveir sofa í flatsæng á gólfinu,
en sá sem ég ætlaði að lofa að
vera, í sófanum. Ég hugsaði með
mér, að það sé gott, að þeir hafi
haft með sér sængurfatnað-
Síðan dreymir mig, að einn
morguninn, þegar ég kem fram í
eldhús og ætla að laga kaffi
handa þeim, séu þeir búnir að
klippa ofan af blómunum mín-
um í stofunni og leggja þau á
gólfið í eldhúsinu, hverja tegund
út af fyrir sig. Ég skil ekkert í
þeim að gera þetta. Ég hugsa sem
svo, að þeim hafi ekki fundizt
þau falleg og mér finnst, að þeir
hafi gert þetta í góðum tilgangi.
Ég fer og spyr þá, hvers vegna
þeir hafi gert þetta. Einn þeirra
svarar á þá leið, að það eigi ein-
mitt að klippa blóm á þessum
árstíma. Þá verði þau svo falleg
með vorinu. Eftir þetta finnst
mér þeir hljóti að vera garðyrkju-
menn, og það segjast þeir ein-
mitt vera. Ég spyr þá, hvort þeir
séu frá Hveragerði og þeir játa
því. Þá spyr ég þá, hvort þeir
þekki Jónas S- Jónsson, garð-
yrkjumann. Jú, þeir segjast
þekkja hann og segja, að hann
4 VIKAN 52- tbI-