Vikan - 28.12.1967, Blaðsíða 5
hafi verið í Hveragerði um tíma.
Ég segi þeim, að við séum systra-
börn, eins og við erum.
Nú finnst mér einn þeirra fara
að ærslast við mig. Við fljúg-
umst á svolitla stund. Þá kyssir
hann mig á kinnina. Að því loknu
hættum við áflogunum.
Þegar að því kemur, að þeir
taka saman dót sitt og búa sig
undir að fara, finnst mér einn
þeirra rétta dóttur minni um-
slag með peningum. Það voru
600 krónur- Síðan kemur einn
þeirra til mín og réttir mér sam-
anbrotið blað. Sá hét Guðmund-
ur, en aldrei vissi ég, hvað hinir
hétu. Ég fietti blaðinu sundur.
Innan í því eru fjórir bláir vasa-
klútar og 50 krónur í peningum!
Mér finnst, að þetta eigi að vera
greiðsla fyrir þjónustu við þá.
Mér þykir þetta anzi lítið fyrir
bæði mat og húsnæði. Ég leita
betur í blaðinu, hvort ekki leyn-
ist þar eitthvað fleira, en þá
vaknaði ég.
Hvernig er svo skriftin og hvað
lesið þið úr henni? Ég vonast
eftir ráðningu sem allra fyrst.
Með beztu kveðjum-
Ein ákaflega berdreymin.
Þetta er athyglisverður draum-
ur, en engan veginn auðráðinn.
Við skulum samt reyna við hann,
en þú skalt ekki taka ráðning-
una of alvarlega:
Maðurinn, sem þú ætlaðir að
hýsa og fæða, táknar ósk, sem
þig hefr lengi langað til að láta
rætast. En aðstæður þínar hafa
verið þannið í langan tíma, að
þú hefur ekki átt þess kost með
góðu móti. Samt gerir þú tilraun
til þess. Þér er IJóst, að hún muni
hafa erfiðleika í för með sér, en
þeir erfiðleikar reynast þrisvar
sinnum meiri en þú hugðir (Karl-
mennirnir urðu allt í einu þrlr).
Þú færir mikla fóm til að ósk
þín rætist (Sagan um hlómin og
garðyrkjumennina). Um tíma er
útlit fyr>r, að allt ætli að fara
vel (Áflogin og kossinn). En fóm
þín var færð í eigingjörnum til-
gangi -—- til þess eins að verða
sjálfri þér til góðs. Slíkt er í
rauninni alls engin fóm, heldur
eintóm eigingimi- Sá tími kem-
ur, að þú iðrast gerða þinna. Þeg-
ar allt kemur til alls finnst þér
þetta ævintýri varla hafa verið
ómaksins vert (Greiðslan fyrir
þjónustuna). Nafnið Guðmundur
er góðs viti í draumi, og hlátt er
litur jafnvægis og hugarhægðar.
Þetta táknar það, að þú munir
sætta þig við orðinn hlut og verða
reynslunni ríkari eftir frum-
hlaupið.
MJÓI VEGURINN.
Kæri Póstur!
Við erum hér tveir ungir og
frískir menn, sem leitum á náð-
ir ykkar. Við höfum séð í Póst-
inum, að þið reynið að ráða úr
hverjum vanda. Við vonum, að
þið getið hjálpað okkur. Við
höfum báðir orðið fyrir því
óláni að hrasa á mjóa veginum
og þurfum að gjalda þess með
frelsi okkar. Og þar af leiðandi
sitjum við í hegningarhúsinu að
Skólavörðustíg 9 hér í bæ- — En
það sem okkur langar til að
biðja þig um er það, hvort þið
getið komið okkur í bréfasam-
band við fólk á aldrinum 18—
30 ára í gegnum blað ykkar, án
þess að nöfn okkar séu birt. Við
erum báðir þeirrar skoðunar, að
það gæti orðið okkur siðferðis-
styrkur að komast í bréfasam-
band við ungt, rétthugsandi fólk,
ef einhverjir telja sér ekki mis-
boðið að skrifast á við okkur.
Og hver veit nema einhverjum
takist að vísa okkur inn á mjóa
veginn aftur með því að senda
okkur línu. Áhugamál okkar er
allt, sem er utan við múrinn.
Með fyrirfram þakklæti fyrir
birtinguna.
Fyrir nokkru birtum við bréf
frá fanga, sem óskaði eftir að
komast í bréfasamband við fólk
„utan við múrinn“ með hjálp
Vikunnar. Við hirtum bréf hans
og viðbrögð lesenda við því
urðu snögg. Lengi á eftir
streymdu bréfin til fangans, svo
að liann hefur sennilega haft
nóg að gera síðan. — Fyrst við
hirtum bréfið frá honum, finnst
okkur rétt að birta ofangreint
bréf líka- Þeir sem vilja skrifast
á við þessa ungu menn, sendi
bréfin til Vikunnar og merki þau
FANGARNIR TVEIR. Við mun-
um sjá um að koma bréfunum
til þeirra.
*
*
JA, VID ERUM SAMMAIA
„Hún er bceði
fallegri
og
fullkomnari“
CENTRIFUGAL
WASH MODEL 620
EINUM HNAPPI
veljið þér þvottakerfið, og
C.W. 620
(T) ÞVÆR,
©
©Sfi
© MARGSKOLAR,
©i
HITAR,
SÝÐUR,
I ÞEYTIVINDUR
AHAN ÞVOTI
—Öll ffll-
nnnq Sápuskammtar settir í strax — vélin skolar Alveg f|Q[)f|||P ðflUfl þeim sjálfkrafa niður á réttum tíma hljóður ljOllljUl
f Qfirnlaflll ^ekur siúlf 'nn sérstakt skolefni II f ullUlullll ef þér óskið að nota það | indir m Tvívirk, afbragðs |(J þeytivinding
j merkjaljós “8°"s festin ífl Þarf ekki að festast ||l niður með boltum
Oflll hlœlonhúðuð að utan — fínslípað, Sérlega 1011011111 ullll ryðfrítt stál að innan auðveld iGlllJlliy
: mmm fullkomnasta og fallegasta I UVllUlu vélin á markaðinum leið arvisir:
SÍMI 24420 - SUÐURGÖTU 10 - REYKJAVÍK.
Sendið undirrit. mynd af FONIX C.W. 620
með nónari upplýsingum, m.a. um verð og greiðsluskilmóla
NAFDl ........................................................
HEIMILI ......................................................
TIL Fönix S.f. pósthólf 1421, Reykjavlk
52. tbi. VIKAN 5