Vikan


Vikan - 28.12.1967, Blaðsíða 37

Vikan - 28.12.1967, Blaðsíða 37
Husqvarxia Hitaplata. Rafmagnspanna. Stroujárn HUSQVARNA ÞJÓNUSTA GIINNAR ASGEIRSSON H. F. Suðurlandsbraut 16 — Laugavegi 33 — Sími 35200 gerðar hans, skapgerðar, sem var svo full af ímyndunarafli, sem sló aðra út af laginu og naut þess um leið. Hún hafði ekki kynnst sjálfri sér, fyrr en í þeirri áköfu baráttu, sem lífið hafði neytt hana til að taka þátt í, baráttu, sem hún varð að heyja ein. Því hún myndi alltaf verða ein. Þótt hún hefði tvívegis verið gift og þótt hún hefði fætt af sér börn, hafði tilviljunin hagað þvi þannig að örlög hennar voru að vera ein. Hún hafði verið ein til að stýra lifi sínu, og ákveða hvort hún ætti að fara þetta eða hitt, og hún hafði verið ein af því að velja og taka eina leið fram yfir aðra. Aldrei gæti hún hallað sér að öxl ein- hvers með augun lokuð og hugsað: — Hverju máli skiptir þetta allt? Þú stýrir mér, þvi ég er konan þín og þinn vilji er einnig minn vilji. Einmanaleikinn hafði neytt hana til að taka ein allar ákvarðanir. Og nú rann það upp fyrir henni að hún var þreytt á þvi, því slíkt er óeðlilegt konum. Þegar Angelique var hingað komin í hugsunum sínum brást hún hart við. Hversvegna ætti hún allt í einu að finna til þreytu vegna örlaga sinna, í nótt? Fram að þessu hafði ekkert gerzt til að sanna Það að hún væri fædd til að vera auðmjúk. Og myndi henni geðjast að því að láta ieiða sig núna? Þegar allt kom til alls vissi hún mun betur en flestir karlmenn, hvernig hún átti að sjá fótum sinum forráð. Ok hjónabandsins hefði verið henni óþægileg byrði. Maitre Berne myndi bráðlega biðja liana að giftast sér. Nú sem stóð var hann særður og það gaf henni nokkurt forskot, en ef hann eiskaði hana og bæði hana að giftast sér hverju myndi hún þá svara? Henni fannst hvorttveggja óhugsandi að segja já eða nei, því henni hraus nugur við þeirri tilhugsun að binda sig, en hún þarfnaðist einn- ig vináttu hans og einnig að finna að hún væri elskuð. — Þetta er okið, sem ég þrái, hugsaði hún. — Ok ástárinnar. En er það til án fjötra? Svo kipptist hún við. — Hvaða vitleysa! Ég hata ástina og vil ekkert hafa með hana að gera. Nú sýndist henni augljóst hvað um hana yrði. Hún yrði áfram ein. Hún yrði áfram ekkja. Þetta voru örlög hennar: Að vera ekkja, bundin sinni gömlu ást, sem myndi fylgja henni til dánardægurs. Hún myndi lifa heiðarlegu lífi. Hún myndi gera sína elskuðu Honorine hamingjusama og dá- samlega. Þegar þau kæmu til Vestur-Indía yrðu þau svo önnum kaf- in að skipuleggja sitt nýja líf, að henni ynnist ekki tími til að láta sér leiðast. Hún ætlaði að vingast við alla, sérstaklega börnin, og með þvi ætlaði hún að uppfylla sitt kvenmannshlutverk, sem er að gefa og hlynna að verðandi lífi. Og hvað Rescator snerti, gat hún nú ekki komizt hjá að reikna með honum. Um hríð hafði henni heppnazt að ýta honum úr huga sér, en nú var ímynd hans skýrari en nokkru sinni fyrr. Hann var of nærri henni. Um hríð hafði hún ímyndað sér að hann væri dáinn, en hann var ekki dáinn. Tilvist hans hér um borð var of áþreifanleg fyrir Angelique, til að hún gæti leitt hjá sér þá staðreynd að á vegi hennar myndu verða margskonar átök og hættulegustu átökin sennilega við hána sjálfa. Nú vissi hún, sem betur fór, hversvegna hjarta hennar og imynd- unarafl höfðu verið gripin svona miklum fögnuði. Hægt og hægt hafði hún laðazt að þessum sviksamiegu hillingum, vegna þess hve fas hans og hegðun minnti á manninn, sem hún unni. Hún mundi ekki láta það viðgangast að skipstjóri Gouldsboro gerði hana að leikfangi sínu. Svefninn var að koma að lokum. — Það er alls engin líking, sagði hún við sjálfa sig, einu sinni enn, áður en hún sofnaði. — Nema......... já, hvað er það? Næst þegar hún sæi Rescator ætlaði hún að virða hann vandlega fyrir sér. Þetta var ekki eingöngu henni að kenna, heldur einnig vegna þess- arar likingar og vegna minninga hennar, að þrátt fyrir allt var hún ofurlítið ástfangin af honum. 3. KAFLI Næsta dag bað Maitre Gabriel Berne hennar. Hann var með fullri meðvitund aftur og sýndist á góðum batavegi. Þótt vinstri handleggurinn væri í fatla var hann til muna likari sjálf- um sér, kinnarnar höfðu fengið sinn heilsusamlega lit og augun voru róleg og stöðug, þar sem hann lá upp við koddann, sem Abigail og Séverine höfðu búið til handa honum, úr moðinu frá geitunum og kúnum. Um morguninn kom Márinn, sem þjónaði í einkaíbúð Rescators með silfurpott handa særða manninum, fullan af angandi mat, flösku af víni og tvo brauðsnúða, ásamt kveðjum húsbónda sins. Þegar þessi hávaxni Arabi kom inn á milliþilfarið, datt allt í dúna- logn. Hann virtist kunna því vel og brosti í allar áttir, svo skein í hvítar tennurnar, sérstaklega hafði hann gaman af forvitni barn- anna sem hrönnuðust að honum. — I hvert skipti sem nýr maður af áhöfninni kemur hingað inn, fæ ég okki betur séð, en hann sé fulltrúi nýs kynþáttar, sagði Maitre Gabriel og starði þungbrýnn á eftir Máranum. — Það eru fleiri litir á þessari áhöfn en búningi dansmeyjar. —■ Við höfum ekki séð neina Asíumenn ennþá, en ég kom auga á Indíána, sagði Martial æstur en spenntur. — Já, já, ég er viss um að hann hlýtur að vera Indíáni, hann var klæddur eins og liinir sjó- mennirnir en hann var með tvo tíkarspena, og skinnið á honum er rautt eins og múrsteinn. Angelique lagði mataráhöld við hliðina á særða manninum. — Þú ert meðhöndlaður eins og mikilvægur gestur. Kaupmaðurinn tautaði eitthvað í lágum hljóðum og þegar hann sá að Angelique ætlaði að fara að mata hann, rauk hann næstum upp úr öllu valdi. Framhald i næsta blaði. ENNÞA ERU HINAR VELÞEKKTU VERÐIÐ ER VÍÐA LÁGT EN HVERGI LÆGRA. PILKI NGTON‘S postulíns-veggflísar A GAMLA VERÐINU 0G VERÐA ÞAÐ. Á: * BÖÐ * ELDHÚS * 0G HVAR SEM ER LITAVER Grensósvegi 22 og 24, horni Miklubrautcir, símar 30280 & 32262 52. tbi. vikan 37

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.