Vikan - 28.12.1967, Blaðsíða 13
Mick Jagger stjómaði upptöku á plötu
RoIIinganna.
Brian Jones ■—• í fangelsi.
Ný hæggeng
plafa fs*á
RoKIingum
Rollingarnir hafa hlið látið á sér kræla und-
anfarna mánuði. Þeir hafa þó lýst því yfir,
að þeir muni ekki leggja árar í bát, þótt einn
þeirra, Brian Jones, dúsi nú í fangelsi og
verði þar næstu niu mánuði. Eins og kunnugt
er af fréttum, var Brian dæmdur fyrir að
hafa talsvert magn eiturlyfja í fórum sínum;
einnig fyrir að halda svallveizlur í íbúð sinni,
þar sem eiturlyf voru um hönd höfð. Áður
en Brian var hnepptur í fangelsi, höfðu Roll-
ingarnir lokið upptöku nýrrar hæggengrar
hljómplötu, sem nú mun vera komin á mark-
að. Á plötunni eru níu lög, öll eftir Mick
Jagger og Keilh Richard að einu undan-
skildu, sem bassaleikarinn, Bill Wyman hef-
ur samið. Rollingarnir segjast ekki hafa
fengið neina utanaðkomandi hjálp við gerð
laganna og innspilun þeirra, og Mick Jagger
stjórnaði sjálfur plötuupptökunni. Flest lag-
anna eru æði nýstárleg og eitt er fimmtán
mínútur að lengd. Meðan á plötuupptökunni
stóð, komu Bítlarnir tíðum í heimsókn að
fylgjast með. „Þeir höfðu alltaf einhverjar
afsakanir á reiðum höndum,“ segir Mick, —
„eins og til dæmis: dyrnar voru opnar og við
gengum bara inn — eða — við höfum aldrei
verið viðstaddir plötuupptöku!" Ekki hefur
enn af hálfu Rollinganna verið boðuð út-
koma nýrrar tveggja laga plötu.
Hlióðfærahúsiö
i nýjjum
húsakynnum
Hljóðfærahús Reykjavíkur hf., opnaði verzl-
un sína í nýjum húsakynnum við Laugaveg
96, föstudaginn 3 nóv. Skömmu áður en
fyrri heimsstyrjöldin brauzt út kom dönsk
kona til landsins mcð íslcnzkum manni sín-
um Ólafi Friðrikssyni rithöfundi. Það var frú
Anna Friðriksson. Frú Anna hafði mikinn
áhuga á tónlist og réðst því í að stofna hljóð-
færaverzlun, þótt ýmsum þætti bjartsýni að
ætla sér að verzla með slíkar vörur eingöngu
á þeim tíma. Þetta var seint á árinu 1916. —
Er hljóðfærahúsiö því hálfrar aldar og lang-
e.lzta verzlun sinnar tegundar hér á landi. Ár-
ið 1926 tók Hljóðfærahús Reykjavíkur upp
þá nýbreytni að efna til hljómleikahalds með
innlendum og erlendum listamönnum og
komu margir heimsþekktir listamenn hingað
til lands á vegum fyrirtækisins. Kunnu bæj-
arbúar vel að meta þetta starf.
Á árinu 1932 færði fyrirtækið út kvíarn-
ar og var á því ári stofnsett deild með leð-
urvörur, og hefur hún verið rekin samhliða
tónlistardeildinni síðan.
Hljóðfærahús Reykjavíkur var um árabil
langstærsti útgefandi landsins á nótum. Enn-
fremur voru fyrstu islenzku liljómplöturnar
gefnar út á vegum þess. Starfssvið Hljóð-
færahúss Reykjavíkur er lieildsala og smá-
sala með allar tónlistarvörur.
Á löngum starfsferli hefur Hljóðfærahús
Reykjavíkur tekið að sér umboð margra
þekktra fyrirtækja. Sem dæmi má nefna
The Pye Rccords Ltd. í Englandi og gítar-
verksmiðjurnar frægu í Svíþjóð Levin og
Hagström.
Þá hefur fyrirtækið árum saman haft
einkaumboð fyrir hið heimsþekkta Lingue-
phone Institutc í Englandi sem gefur Út
Lingueplionenámskeið á hljómplötum á 30
mesttöluðu tungumálum heims. Hefur notk-
un þess við málanám aukizt geysilega hér á
landi á liðnum árum.
Innréttingar í hið nýja húsnæði verzlunar-
innar eru teiknaðar af Gunnari Magnússyni
húsgagnaarkitekt og smíði þeirra hefur ann-
azt Smíðastofan Kr. Ragnarsson að Nýbýla-
vegi 52, Kópavogi.
Núverandi framkvæmdastjóri fyrirtækisins
er Árni Ragnarsson.
52. tbl. VIKAN 13