Vikan - 28.12.1967, Blaðsíða 19
■ ■
HÆTTULEGT.. HÆTTULAUST.. HÆTTU
* Reykingar auka haettuna á kransæðastíflu.
☆ Reykingar geta valdið erfiðum hjartasjúkdómum.
☆ Reykingar stuðla að æðakölkun.
☆ Reykingar auka blóðsykurinn. (Sönnun fyrir þessu hafði
komið fram við sænskar rannsóknir 1930, en nú þótti mál
til að hampa þessu á ný).
☆ Reykingamanni er hættara við að fá króníska barkabólgu.
☆ Reykingamaður á á hættu að fá amblyopia toxica, en svo
nefnist augnsjúkdómur einn.
☆ Karlmenn, sem reykja mikið, geta orðið ófrjósamir.
Þessu næst sagði einhver, að síusigarettur (filter) væru
hættulausar, hvar eftir annar kvaddi sér hljóðs og sagði síu-
sígarettur lífshættulegar. Á tímabili var Chesterfield hættu-
minnsta sígarettutegundin, og þegar fjöldinn hafði vanið sig
á Chesterfield var gefinn út listi yfir hættulegustu sígarett-
urnar. Þar var Chesterfield efst á blaði.
Narebach læknir í USA sagði, að það væri aldrei of seint
að hætta að reykja og að rannsóknir sýndu, að drægi úr allri
óáran og hættu á alvarlegum veikindum, ef reykingamaður-
inn hætti alveg.
í svars skyni skaut annar upp kollinum og sagði, að þetta
með að hætta að reykja væri mikið vandamál. Það gæti haft
svo slæm éhrif á geðheilsu viðkomandi, að það endaði með
sjálfsmorði.
Og það dró að sjálfsögðu kjarkinn úr þeim, sem höfðu ákveð-
ið að hætta að reykja.
1966 var gleðin einnig úti fyrir pípumenn. Þá kom á daginn,
að það var heldur ekki hættulaust. Menn geta fengið húð-
krabba í varirnar af píputotti. Og til enn meiri hrellingar
fyrir reykingamenn almenn, var tilkynnt, að hver reykt síga-
retta stytti lífið um 14,4 mínúlur. Og læknarnir, sem tilkynntu
þetta alvarlegir í bragði í sjónvörpum og á fundum, svældu
á meðan í sig hvert kortérið eftir annað með alvörusvip.
Þegar pípurnar höfðu fengið sína afgreiðslu, var næst ráð-
izt af heift á síusígaretturnar. Þær höfðu fram til þessa verið
tiltölulega meinlausar, en nú urðu þær öllum öðrum hættu-
legri. En um leið var nokkur huggun af því, að tveir sænskir
vísindamenn báru fram þá kenningu, að reykingar hefðu enga
hjartasjúkdóma í för með sér.
í maí 1967 uppgötvuðu Bandaríkjamenn eiturgas í sígarettu-
pappírnum. f bréfunum utan um tóbakið í sígarettunum er
að sögn gas, sem er 200 sinnum eitraðra en það, sem nazistar
notuðu í gasklefana frægu á stríðsárunum. Um sama leyti kom
á markaðinn reyksía, sem fullyrt var að drægi til sín öll skað-
leg efni úr sígarettunni.
Og í ágúst í ár var okkur tjáð, að 105. hverja sekúndu dæi
maður af völdum reykinga í heiminum, og svo loks þessi pró-
fessor Doll í London, sem heldur því fram að það þýði ekkert
að hætta að reykja. Unninn skaði verður ekki aftur tekinn.
Við þessa yfirlýsingu hans ætlaði allt um koll að keyra, og
strax daginn eftir voru fyrirsagnir blaðanna um þetta efni:
VÍST ER TIL BÓTA AÐ HÆTTA AÐ REYKJA. En niður-
staða sérfræðinganna er dálítið óljós enn. f leikmannsaugum
er hún eitthvað á þessa leið: Próf. Doll hefur rétt fyrir sér, en
fyrri skýrslur eru líka réttar.
Og nú veit reykingamaðurinn ekki í hvorn fótinn hann á
að stíga. Læknar og vísindamenn eru af eðtisfari hljóðlátir
og hógværir menn, en um þetta mál hafa of ólíkar raddir
kveðið sér hljóðs. Það er erfitt að vita hvað er rétt og þó ekki
rétt — og þó. . . .
Að endingu nýjustu fréttir á þessu sviði: Sá sem er 25 ára
núna og reykir ekki, getur reiknað með að verða 74 ára. Ef
hann byrjar svo að púa 1—9 sígarettur á dag, verður hann
aðeins 69 ára. 68 ára verður hann ef hann reykir upp undir
19 sígarettur, en 67 ef hann reykir milli 20—39 sígarettur á
dag. En það er bágt með þá, sem reykja 40 og þar yfir. Þeir
ná ekki að taka á móti ellilífeyrinum sínurn. Þeir deyja drottni
sínum 65 ára í síðasta lagi.
Annars getið þið reiknað ævina út sjálf, með 15 mínútur í
mínus fyrir hverja reykta sígarettu, og við skulum ganga út
frá 74 ára meðalaldri miðað við tóbakslausa ævi....
*
52. tbi. VIKAN 19