Vikan


Vikan - 28.12.1967, Blaðsíða 25

Vikan - 28.12.1967, Blaðsíða 25
[. — En Modesty Blaise og Willie. Garvin eru ekki starfsmenn okkar, né neins annars. Ráðherran leit á hann. — Engan orðhengilshátt, Tarrant. Ég hef hitt Modesty stuttlega við ákveðið tækifæri og ég veit um þau tvö. Ég hef lesið skýrslurnar um Gabriels- málið. — Ég held að það sé rétt að undirstrika það, ráðherra. Þau eru ekki okkar starfsfólk. — Við höfum varla efni á þeim, varnar, þegar kemur að árásinni — sem hún dagsetur. — Gerir hún það? — Já. í frjálsu dulmáli. Númerið á þessum ímyndaða undirliðsfor- ingja er lykillinn. Selby leit upp frá skeytinu. — Burtséð frá því að S. Pepys gæti verið Samuel Pepys, sá frægi dag- bókarhöfundur og sjóhermaður í þokkabót, sé ég enga merkingu [ þessu. Mér þykir leitt, ef ég opin- bera í þessu heimsku mína. Það myndi hann grípa til sinna kurteis- legu undanbragða til að komast hjá því að segja berum orðum, að Tarrant væri að sóa tíma ráðherr- ans. — Það sem ég efast um, hélt Selby áfram, er að Modesty Blaise hefði getu til að meta hernaðarhlið þessa máls. Ég [mynda mér, að það verði ekki annað en nýtt Grfsaflóa- mál, þegar allt kemur til alls, van- mátta tilraun, sem hefur ekki stór- kostlegar afleiðingar. Að sjálfsögðu inn er kona, sem ekki er starfsmað- ur okkar, og fortíð hennar gerir áreiðanleik hennar afar vafasam- an. — Ég álít að nú gerið þér málið of einfalt, ráðherra. — Nei. Aðeins einfalt, Tarrant. Selby brosti vingjarnlega. — Ég get ekki sent her inn í Kuwait öðruvísi en við séum beðnir um það. Ég get ekki stofnað hinum fremur þunn- skipaða her okkar í óreiðu með því að gefa fyrirskipun um undirbúning Við vorum farin að slást þrátíu sekúndum eftir að ég kom inn í kofann. Og taktu eftir því! Eg stöðvaði hana! Mundu það, ég stöðvaði hana! sagði Selby þurrlega. — Engu að síður fengust þau fúslega til að láta, sem þau væru málaliðar, og í fyllingu tímans hurfu þau. — Já. Tarrant hafði ekki minnzt á Fraser í skýrslunni né það sem gerðist í Tangier. f fyrstu vissi hann ekki hvaðan á hann stóð veðrið, þegar Fraser hringdi, óhuggandi og sagðist vera að vakna af deyfilyfja- svefni og Modesty og Willie væru horfin. En svo hafði Fraser hugs- azt að gæta að, hvort Lucille væri í skólanum. Þar af leiðandi hafði René aðgætt, hvort það stæðist að Modesty Blaise hefði flogið til Frakklands með Lucille f læknis- skoðun, og Vaubois komst að því, að sagan var fölsk. Frá þeim tíma hafði Tarrant ver- ið miður sín af kvíða og óvissu. Nú kom þetta dulmálsskeyti utan úr loftinu og barst honum í hendur gegnum Mercycorps. — . . . þrjár vikur og ekki sézt urmull af þeim, var ráðherrann að segja. — Svo þú álítur, að þau hafi ráðið sig á mála, gengið alla leið og komizt að því, að tilgáta yðar var rétt, og hafi nú sent þessi skila- boð. Er það rétt? — Að mínu viti. — Gerið þá svo vel að þýða þetta skeyti fyrir mig. Selby las það upphátt. — Uppskurðurinn, operation, er leifturárás á Kuwait, sagði Tarrant. Hún staðfestir sjúkdómsgreiningu mína — eða hugmynd, — um það. Svo minnist hún á mótlyf til að koma í veg fyrir þetta, en það þýð- ir augljóslega, að til þess að koma í veg fyrir árásina á Kuwait, sé nauðsynlegt að hafa mjög sterkan liðsafla á staðnum og tilbúinn til var þó ekki að heyra á röddinni að honum þætti það leitt. — Við urðum að velta þessu dá- lítið fyrir okkur sjálfir, svaraði Tarrant kurteislega. — Pepys minn- ir á dagbók. Sömuleiðis dr. Lets. Þeir eru meðal þekktustu dagbóka- útgefenda f þessu la'ndi. Svo við gengum út frá því, að Modesty ætti við vasabók Lets og við tókum að velta eintaki af henni fyrir okk- ur. í henni er að finna nákvæm- lega uppgefinn tíma sólarupprásar og sólarlags á hverjum laugardegi ársins. Það þarf aðeins að skipta númerinu ( tvennt, 528625. Sólar- upprás er klukkan 5.28 og sólarlag klukkan 6.25, laugardaginn 11. september, eftir röskar fimm vikur. Ráðherrann lét brýr síga og lagði skeytið til hliðar. — Það getur ver- ið einhver dagurinn í þeirri viku, sagði hann. — Þau hefðu fundið einhverja leið til að skýra frá því, ráðherra. Modesty Blaise og Willie Garvin eru mjög hugmyndarík, það get ég fullvissað yður um. — Og þér takið þetta alvarlega? — Skilaboðin eru Ijós og undir- skriftin tekur af allan vafa um að Modesty Blaise sendi þau. — Það svarar tæplega spurningu minni. — Þvert á móti, ráðherra. Tarr- anf lét það eftir sér að láta bera á óánægju í röddinni. — Ég skil, sagði Selby. — Skeyt- ið er frá Modesty Blaise og þess vegna takið þér það alvarlega. — Hann þagði lengi og bætti við: — Kannske þér hafið rétt fyrir yður. Hjartað sé í brjósti Tarrants. Af hreimnum heyrði hann, að Selby lagði ekki mikinn trúnað á það. Nú mun ég mæla með því við forsætis- ráðehrrann, að við látum herafla okkar í Bahrein og Aden vera sér- staklega á verði um það leyti, sem þér tiltókuð. Ef eitthvað skyldi ger- ast, getur Kuwait fengið aðstoð okkar eins og það hefur fengið áð- ur, þegar Iraksmenn hervæddust meðfram landamærunum, eins og þeir gerðu fyrir nokkrum árum. — Mín tilgáta er, sagði Tarrant hægt og gætilega, — að þessi árás verði ekki vanmáttka, árangurslaus tilraun. Það gæti vel komið til, að Kuwait ynnist ekki ráðrúm til að biðja um aðstoð okkar, og öllu yrði herfræðilega séð lokið á nokkrum klukkustudnum. Modesty Blaise álítur það greinilega, og hún er ekki vön að kippa sér upp við smá- muni. Selby hugsaði sig um eitt andar- tak og svo hristi hann höfuðið. — Ytri ábendingar myndu verða allt of áberandi. — Ég hef talað um hina fræði- legu hlið þessa máls við Sperry hershöfðingja, sagði Tarrant. — Hann er í sama flokki og Liddell Hart og Fuller sem herfræðingur, og hann er sammála í því, að með þeim samgöngutækjum og skotfær- um, sem við ráðum yfir nú til dags, geti vel þjálfaður og vel útbúinn her lokið þessu af á tólf klukku- stundum. — Það kann að vera rétt hjá honum, sagði Selby. — En mergur- inn málsins er þessi, Tarrant: Allt er þetta byggt upp kringum hug- mynd, sem þér hafið fengið, og er ósennileg, svo ekki sé meira sagt, en nú er hún staðfest með þessu dularfulla skeyti, sem við vitum ekki hvaðan er sent, en sendand- í þeim mæli, sem með þyrfti, ef til- gáta yðar væri rétt. Þér vitið hve fáliðaðir við erum. — Ég veit, sagði Tarrant. — Og þess vegna held ég, að við ættum að gera Kuwait viðvart, sem gerir lítið gott, ef eitthvað, en einnig Bandaríkjunum, sem gæti gert mjög gott. — Þau myndu hlæja að okkur. — Ég held ekki. Þau hafa miklu gildari sjóði en við og þau hafa efni á að eyða peningum, tíma og mönnum, í að kanna ólíklega, en skemmtilega möguleika. Ég óska eftir leyfi yðar til að gera C.I.A. viðvart, og mér er sama þótt hleg- ið sé að mér. — Ef til vill er yður sama, sagði Selby kuldalega. — En ég er and- vígur þv! að hlegið sé að stjórn hennar hágöfgi. Tarrant reis á fætur. Það var til- gangslaust að ræða þetta frekar. Roger Selby var slunginn stjórn- málaskepna, full af sjálfstrausti. Hann hafði sjálfur vegið og metið áhættuna af því að láta til skarar skrfða og láta ekki til skarar skríða og hann hafði ákveðið sig. Fræði- lega séð setti Selby landið fyrst, flokkinn númer tvö og sjálfan sig númer þrjú, en hann var þess full- viss að við tveim fyrrnefndu aðil- unum væri bezt þjónað með stöð- ugum vegsauka hins þriðja. — Og þess vegna hafði hann kjörið það, sem hann áleit minni áhættuna. Tarrant velti því fyrir sér, hvar Modesty Blaise og Willie Garvin væru þessa stundina og hvað þau væru að gera, hvernig þau hefðu komið skeytinu út og hvað komið hefði fyrir barnið, Lucille. Hver sem Framhald á bls. 44. 52. tbi. VTKAN 25

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.