Vikan - 15.02.1968, Page 12
r
— Varaðu þig á honum, sögðu gömlu, grísku hjónin. - Hann
er í ævintýraleit núna, og nýtur þess, en einn góðan veðurdag
hverfur hann. Þá fer hann heim til Englands, kvænist einhverri
snoturri stúlku. Hann er ekkert fyrir þig, Tanya!
V______________________________________________________________________X
Þau flugu ein til baka, eftir að
hafa ferjað tvenn nýgift hjón út
að kofaþyrpingunni við klettana ó
Spiros.
Tanya lá á heitu klefagólfinu og
lék sér við Gyp, hund af óþekktu
kyni, sem Roger Crane átti. Roger
sönglaði Ijóðræna vísu, og sinnti
stjórntækjum gömlu flugvélarinnar
með hálflokuðum augum. Hann
hætti að syngja og bölvaði í lág-
um hljóðum, þegar vélin datt nið-
ur um loftgat.
— Hefði það ekki verið þeirra
vegna, þá hefðum við getað verið
á Spiros allan daginn, sagði Tan-
ya ergileg.
— Ég hefi ekki séð þær í fimm
ár, sagði Roger. — Ekki síðan Matt-
ie frænka reyndi að gera mig að
góðum borgara, og Sheila fann það
út að ég var ekki nógu ríkur til að
verða eiginmaður hennar.
— Það er helzt að heyra að þú
hafir ekki sérlega mikinn áhuga á
því að hitta þær, sagði hún glað-
lega og reyndi að koma sér vel
fyrir milli olíutunnanna og hunda-
körfunnar.
Hann yppti öxlum. — Skyldur við
ættingiana. Mattie frænka er ætt-
ingi minn og Sheila er næstum því
ættingi, því að Mattie frænka hefir
alltaf haft hana í dóttur stað.
Frænka Rogers hafði sent honum
skeyti frá Aþenu, þar sem hún sagði
að þær væru á ferðalagi um grísku
eyjarnar og myndu verða í Lyceus
síðdegis á mánudag. Þar sem þær
hefðu nýlega komizt að dvalarstað
hans, vonaðist hún til að hann léti
ekki hjá líða að vera á staðnum.
Hann hafði lesið skeytið upphátt
fyrir Tönyu, og hlegið hryssings-
lega, þegar hann stakk því í vas-
ann. En Tanya gat ekki hlegið.
Þessar hátíðlegu setningar voru
hættulegar, að hennar dómi.
Lyceus sást nú, eins og depill í
fiarska. Hún kraup niður á gólfið
og horfði þangað milli sterklegra
axlanna og hárlubbans á Roger.
Brátt kæmi hún auga á hvíta gufu-
skipið undan meginlandinu.
— Við hefðum getað verið kyrr
á Spiros, sagði hún aftur.
— Já, allan daginn! Við hefðum
getað synt, drukkið ouzo og étið
okkur kútsödd af moussaka hjá
H
12 VIKAN
7. tbl.