Vikan


Vikan - 15.02.1968, Side 16

Vikan - 15.02.1968, Side 16
FRAMHALDSSAGA 2. HLUTI EFTIR J. D. McDONALD FO RSAGA: Lucille Phelps finnst drukknuS í Tylftarvatni. Hún hafði yfirgefið mann sinn fyrir tæpu ári og tekið saman við Skip Kimberton, roskinn braskara. Hann hafði beðið hana að geyma fyrir sig skjóðu fulla með peningum, sem hann hafði stolið undan skatti. Eftir lát hennar leitar hann árangurslaust að skjóðunni í íbúð hennar. Þaðan snýr hann í þungum þönkum heim til sín og fær sér neðan í því. Hann tæmdi glasið og þvoði það. Svo fór hann aftur í gegnum setustofuna, gekk að stóru hljóð- heldu hurðinni hurðinni, sem lá fram í fremri skrifstofuna. Skell- irnir í ritvélinni þögnuðu snögg- lega þegar Jezebel Jackman stökk á fætur í skelfingu og greip um hálsinn. Frú Nimmitz var við hornborðið með reikni- vél. Hún hristi höfuðið. — Herra Kimberton, þótt þér kæmuð í gegnum þessar dyr fjörutíu sinn- um á dag myndi Jezzie fá slag jafn mörgum sinnum. — Ég vissi ekki einu sinni að þú varst þama inni, sagði Jezzie. — Var að koma aftur, sagði hann. Hann gekk yfir í stóru hornskrifstofuna sína, og Jezzie fylgdi fast á hæla hans með hendurnar fullar af skjölum. Hún lokaði dyrunum á eftir sér. Hann settist við borðið og sagði: — Hvaða ótíðindi hefurðu handa mér í dag? Að vanda lét hún hann hafa það léttvægasta fyrst, og beið eftir fyrirmælum um leið og hún hafði rétt honum hvaðeina. Svo skrifaði hún eitthvað á blokk- ina sína. Jezebel Jackman var hundrað og áttatíu sentimetrar á lágum hælum, stór, geislandi, samvizkusöm stúlka, nýlega tví- tug. Hún hafði dökkgullið, hrokkið hár, stór lavanderblá augu, stórar hvítar tennur og ótrúlegan lífsþrótt. Hún var ein- stakur íþróttamaður. Og í allri þessari geislandi, næstum ótrú- legu heilbrigði var eitthvað sem var næstum eins og yfirþyrm- andi við hana. Hún bjó með móð- ur sem var nöldurskjóða og föð- ur, sem var svo lítill, svo hrör- legur að hann var næstum ósýni- legur. Hún var einkabarn. Hún hafði unnið fyrir Skip Kimber- ton í þrjú ár. Síðustu tvö árin sem einkaritari hans. Hún var fljót, velvirk, vel gefin og ein- staklega trygg. Hún vann á dag- inn og á kvöldin þjálfaði hún sig í allskonar íþróttum. Kvöld nokkurt, um það bil sex mánuðum eftir að hún varð einkaritari hans, fékk hann hana til að vinna eftirvinnu. Hann hafði gengið til að líta eftir því hvernig henni gengi með skýrsl- una sem hún var að vélrita. Hann hafði litið yfir öxl henn- ar, ofan á ritvélina og án þess að hafa nokkurn huga á að gera hosur sínar grænar fyrir henni, aðeins til að láta í ljósi velvild sína, hafði hann lagt höndina á sterka öxl hennar. Það var eins og hún skryppi saman og yrði öll minni undir snertingu hans, ósköp lítil, kyrr og hrædd. Hann sleppti henni þegar í stað og gekk framfyrir borðið. Hún var náföl og nötraði. — Hvað er að þér? spurði hann. — Ég vil ekki að þú gerir svona, sagði hún mjóróma. — Ef þú gerir svona verð ég að hætta. — Ég gerði ekkert, andskota- kornið! — Þú snertir mig. Strákarnir káfa á mér og ég rek þeim utan- undir, en ég yrði að hætta ef þú gerðir það. — Ég meinti ekki neitt. Hún virti hann fyrir sér og smám saman kom liturinn aftur í andlitið. Hún rétti úr sér. — Er það nú víst? — Já. — Ég þoli bara ekki að það sé káfað á mér. — Ég skal ekki gera það aft- ur, Jezzie. Aldrei aftur. — Af hverju ertu leiður, Skip? — Ég er ekkert leiður. Ég er bara að hugsa. Eftir þetta vandræðaatvik tók hann að veita henni nánari gæt- ur og komast að því að þessi stóra, geislandi vera, var að því er virtist, svo ólæknanlega hvor- ugkyns að annað eins þekktist ekki í öllu héraðinu. En hún átti hundruð vina. Hún um- gekkst hundruð glaðra vina á íþróttaleikvöngunum, en að því er virtist átti hún aldrei stefnu- mót. Þótt honum fyndist þetta sóun mikillar lífsorku var hon- um á hinn bóginn léttir að því að þetta var þó að minnsta kosti ekki stúlka, sem hann myndi tapa í hjónaband. Hún sökkti sér ofan í starfið. Hennar líf var að vinna fyrir Skip Kimberton og hún virtist einstaklega ánægð með það. Hún færði honum síðustu frétt- ina: — Gus Hernandez biður þig að hringja í sig, hann sagði að það væri áríðandi, ef til vill hef- ur hann frétt eitthvað af.... — Gott. Náðu í hann fyrir mig. Þegar Jezzie gekk út úr skrif- stofunni, flaug sú beiska hugsun að Skip að hann hefði betur lát- ið Jezzie hafa bláa pokann. Hún hefði falið hann, aldrei opnað hann, aldrei minnzt á hann, al- drei spurt um hann. En það var ekki sanngjarnt á þessu stigi málsins að fara nú að álíta að minna væri á Lucille treystandi. Af þeim tveimur hafði Lucille verið miklu gáfaðri og ólíklegri til að láta snúa á sig eða lokka sig í gildru. Gus kom fljótt í símann. Hann var vel á verði. — Skip, ég veit að þú ,hefur nóg um að hugsa í dag, en ég hef sett mig í sam- band við suma af vinum okkar. Ég held að ég geti með fullri vissu sagt núna að það lítur út fyrir að allt ætli að ganga okkur í haginn og upphæðin, sem þeir eru að reyna að fá í gegn núna er aðeins tíu þúsundum yfir síð- asta sáttatilboði mínu. Réttir menn ætla að leggja mjög hart að sér á morgun og þetta fer yfir rétt borð að þessu sinni og ég held að ég ætti að gefa þeim já á þessum grundvelli. — Já, eins og þér sýnist. — Og við höfum níutíu daga til stefnu, áður en við þurfum að borga. Eins og ég hef sagt við þá taka þeir gulleggið og gæsina um leið, ef þeir neyða þig til að gera fulla grein fyrir hverju og einu. Þú ert líklegur til að gjalda væna skatta á næst- unni. — Þú sérð um það, ég sam- þykki. — Skip, ég votta þér samúð mína varðandi Lucille, hún var yndisleg kona. — Þakka þér fyrir Gus. — Þegar við höfum komið þessum skattmálum frá væri ekki svo vitlaust fyrir þig að fara burt. f skemmtiferð eða eitthvað. Vertu rólegur, ég skal láta þig vita um leið og ég frétti eitthvað. Harvey Walmo gekk hægt í áttina til skrifstofu sinnar frá jarðarförinni. Þetta var snemma kvölds. Loftið var svalt og sólar- móða. Þetta var sá tími ársins sem honum féll bezt við. Þetta var í lok annatímans. Allt Tylft- arvatn var í hans umdæmi og þetta var sumarvatn, á sumrin var þarna krökkt af fólki og allt sem því fylgir. Þegar kom fram á haustið hvarf það mjög snögg- lega á braut, hraðbátarnir sáust ekki lengur á vatninu, né held- ur vatnaskíðamennirnir, og segl- bátarnir. Lómarnir og endurnar komu aftur. Þá tóku þjófnaðir enda og ofbeldi og slys, drukkn- 16 VIKAN 7'tbL

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.