Vikan - 15.02.1968, Síða 19
ÞAÐ VAR LEE . RADZIWILL SEM
VAKTI MESTA ATHYGLI VIÐ HINA
TÍTT UMTÖLUÐU FRUMSÝNINGU
NUREJEVS Á BALLETTINUM HNETU-
BRJÓTURINN í STOKKHÓLMSÓPER-
UNNI. ALDREI HAFA SVO MARG-
AR MYNDIR VERIÐ TEKNAR AF
EINNI MANNESKJU í HLJÓMLEIKA-
HÖLLINNI VIÐ GUSTAF ADOLFS
TORG. HÚN ER LÍKA PRINSESSA,
SYSTIR JAQUELINE KENNEDY OG
TALIN MEÐAL BEZT KLÆDDU
KVENNA HEIMS. EN HÚN PÉKK
EKKI GÓÐA DÓMA SEM LEIKKONA.
Bouvier-systurnar, Jackie Kenne-
dy (38 ára) og Lee Radziwil (34
ára), virðast alveg fullnægja þörf
Bandaríkjamanna fyrir prinsessur.
Þær eru fagrar, ungar og ótrúlega
auSugar, og það er einhver menn-
ingarblær ( kringum þær, sem t. d.
sjaldan er kringum kvikmynda-
stjörnurnar og annað frægt fólk.
Það er yfirleitt ekki talað um Bou-
vier systurnar eins og venjulegt
fólk. Það er öllum Ijóst að Jackie
er þekkt um allan heim, kringum
hana hafa spunnizt eins konar þjóð-
sögur; Lee hefur prinsessutitil og
það gengur í augun á Bandaríkja-
mönnum.
Á dögunum kom hún til Stokk-
hólms til að vera viðstödd frum-
sýningu á ballettinum Hnetubrjótur-
inn, sem vinur hennar, rússneski
balletdansarinn Nurejev, setti á
svið, og það var hann, sem bauð
Lee til Stokkhólms. Slúðurdálkar
blaðanna hafa blásið þetta upp og
vilja halda fram að þarna sé um
eitthvað meira en kunningsskap að
ræða. En það eru nú til fleiri vin-
áttubönd en ástasambönd í þessari
veröld! Hún er fölleit og ffngerð
kona, klædd á þann einfalda hátt,
sem einkennir Bouvier systurnar.
Við frumsýninguna var hún í erma-
lausum, stuttum, hvítum kjól, hvít-
um silkiskóm, hárið slétt og andlits-
farðinn Ijós. Kvöldkápan var úr
hvítu, þykku ullarefni með röndum
úr hvítum minkaskinnum, (hún
sagði samt sjálf að það væru kan-
ínuskinn). [ fylgd með henni var
stjórnandi ballettsins við Covent
Garden, Frederich Ashton, en eftir
sýningu hélt Nurejev gestum sínum
og vinum hóf ( Operukjallaranum.
Fólk skiptist ( tvo hópa, þegar
um það er talað, hvor systranna
sé glæsilegri. Annar hópurinn held-
ur þv( fram að Jackie sé laglegri,
betur klædd, hlýlegri, glaðværari
og greindari en Lee. Hinn hópurinn
heldur því sama fram um Lee Rad-
ziwill. Þegar skoðaðar eru myndir
af þeim saman, finnst manni skrýt-
ið að Jackie, sem annars virðist
svo fíngerð, virðist vera stærri, jafn-
vel miklu hraustlegri en venjulega,
þegar hún stendur við hlið systur
sinnar. En þær eru ákaflega sam-
rýmdar. Þær hafa yfirleitt sömu
skoðanir um fólk, menntun og
menningu, ferðalög og listir. Jackie
hefur tekið systur s(na með sér, oft-
ar en einu sinni, þegar hún hefur
verið á skylduferðalögum sfnum,
eins og t. d. þegar hún fór til Ind-
lands.
Það er vitað um uppeldi þeirra,
það gat ekki verið betra. Þær ólust
upp á auðugu yfirstéttarheimili, þar
sem menntun var höfð í bávegum.
Þær stunduðu beztu skólana og voru
yfirleitt alltaf á réttum stöðum. For-
eldrar þeirra skildu, þegar Jackie
var tíu ára og Lee sex ára. En hinn
elskandi og aðlaðandi faðir þeirra
var samt alltaf reiðubúinn til að
hlusta á það sem þær höfðu að
segja. Lee byrjaði að lesa sálar-
fræði við bezta kvennaskóla Banda-
ríkjanna, skóla Söruh Lawrence, en
hætti námi þar og fór til Ítalíu til
að kynna sér listir og listasögu. Um
tíma skrifaði hún í Harpers Bazaar.
Það er ekki fínt lengur í Banda-
ríkjunum að auðugar stúlkur hafi
ekkert starf. Árið 1952 giftist Lee
Michael Canefield, sem var sonur
eins ritstjórans við Harpers Bazaar.
Þau settust að í London, þar sem
Canefield var sendiráðsritari, hjá
Winthorp Aldrich ambassador. Þau
eignuðust einn son, Anthony, en
skildu eftir fjögra ára hjúskap.
Lee varð um kyrrt í London og
þar hitti hún síðari mann sinn,
Stanislaus Radziwill fursta, sem var
19 árum eldri. Hann var pólskur
innflytjandi, hvíthærður, svarteygð-
ur, með svart yfirskegg og alveg
sérstaklega aðlaðandi maður. Hann
var líka vel auðugur, átti ekki
minna en sjötíu milljón krónur, sem
hann hafði grætt á fasteignasölu.
Hann er af einni elztu, ef ekki
allra elztu furstaætt heimsins. Það
er talað um fyrsta Radziwill furst-
ann um 1300. Pilsudski vildi fá
einn af ættingjum hans til að setj-
ast í hásæti árið 1926, þegar það
kom til tals að endurreisa konungs-
dæmi í Póllandi. Höll fjölskyldunn-
ar, Nieborow, er nú þjóðminjasafn
Póllands.
Janus, faðir Stanislaus, sem nú
er 83 ára gamall, býr einn í tveggja
Framhald á bls. 29.
7 tbl VIKAN 19