Vikan


Vikan - 08.08.1968, Blaðsíða 2

Vikan - 08.08.1968, Blaðsíða 2
Fljúgið i sumarleyfið vel tryggð IÐGJOLD FERÐATRYGGINGA HAFA LÆKKAÐ VERULEGA FERÐATRYGGINGAR OKKAR ERU ÓDYRAR OG ViÐTÆKAR. ÞÆR TRYGGJA YÐUR FYRIR ALLS KONAR SLYSUM, GREIÐA DAGPENINGA VERÐIÐ ÞÉR ÓVINNU- FÆR SVO OG ÖRORKUBÆTUR OG FJÖLSKYLDU YÐAR DÁNARBÆTUR. MIÐAÐ VIÐ 100.000,00 KRÓNA TRYGGINGU í HÁLFAN MÁNUÐ ER IÐGJÁLD NÚ KR. 47.00 EN VAR ÁÐUR KR. 81.00 . FARIÐ EKKI ÓTRYGGÐ I SUMARLEYFIÐ. TRYGGIÐ YÐUR HJÁ AÐALSKRIFSTOFUNNI EÐA NÆSTA UMBOÐl. ÁRMÚLA3 SÍMI 38500 SAMVININUTRYGGINGAR Er sauðfé meiri ábyrgðarhluti en börnin Mikið hark hefur orðið í sumar eins og svo oft áður út af því eðli sauðkindarinnar að sækja í að éta grænan gróður. Arbæingar hafa meira að segja hert sig upp í smala- mennskur og notað bílskúra sína fyrir réttir, vonandi hafa þeir unnið fyrir að bera vesa- lings skepnunum grængresi og vatn í dýflissuna. Það land, sem Árbæjar- hverfið stendur á, er svo ný- lega sauðlaust, að sú kynslóð kinda, sem þar gekk sín æsku- ár til beitar, er enn í fullu fjöri. Það er því trúlegt, að fé sæki þangað aftur, jafn- vel þótt því væri ekið lengra til heiða upp á beitarlönd ann- arra hreppsfélaga. Mér finnst því hæpið, ef ekki ranglátt, að sækja eigendur þess til sakar, því við höfum ekki svo ódýrt vinnuafl hér að menn geti fylgt fé sínu til beitar allt sumarið eins og tíðkast til dæmis víða í járntjaldslönd- unum. Hitt er þó mun verra til af- spurnar fyrir þjóðféiagið, ef það er satt að sá sem verður fyrir ágangi kindar, eigi ský- lausa heimtingu á skaðabót úr hendi forsjármanns henn- ar, maður sá, sem verður fyr- ir stórskaða af völdum barns eða unglings innan 16 ára ald- urs, á ekki kröfu á skaðabót- um af hálfu foreldra eða for- sjármanns skemmdarvargsins, sem er undir lögaldri og því sjálfur laus allra mála- Mér er kunnugt um, að fólkið, sem sumarbústaðirnir voru eyði- lagðir fyrir í Lækjarbotnum í vetur leið, hefur enn engar bætur fengið né sér hilla und- ir þær. Var það þó sýnu meiri skaði að öllu leyti en þótt rollutetur nasli nokkrar viðju- hríslur. Er ekki eitthvað hér, sem ekki rímar? Og er ekki auð- veldara að ala börn upp í guðsótta og góðum siðum en ■ sauðheimskar kindurnar? S.H. V J 2- VIKAN 31- tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.