Vikan - 08.08.1968, Blaðsíða 17
jm.
P0P8
Hér er skemmtileg mynd af
vinsælli unglingahljómsveit.
Hljómsveitin er Pops, en
myndina tók Sigurgeir Sig-
urjónsson fyrir okkur í nýju
sundlaugunum í Laugardal.
Strákarnir eru, frá hægri tal-
ið: Óli, Pétur, Benni og Birg-
ir. ☆
EFST í 13 ÁR!
Hljómplatan með lögunum úr
kvikmyndinni ,,Sound of Music“
hefur nú verið á brezka vinsæld-
arlistanum í þrjú ár og tvo mán-
uði. Lengst af hefur platan ver-
ið í efsta sæti en nú er hún í
fimmta sæti, og er fyrirsjáanlegt,
að hún mun verða á listanum enn
um langan tíma. Einstök lög af
þessari hæggengu hljómplötu
hafa verið gefin út á tveggja laga
plötum og náð geysilegum vin-
sældum, t.d. lagið Edelwe’ss, sem
margir söngvarar hafa sungið á
plötu. Sound of Music er án efa
einhver vinsælasti söngleikur,
sem nokkru sinni hefur verið
fluttur. Drjúgan þátt í þeim vin-
sældum, sem kvikmyndin hefur
notið, á Julie Andrews, sem leik-
ur barnfóstruna. Julie lék einnig
aðalhlutverkið í kvikmyndinni
Mary Poppins, og hún fór með
aðalhlutverkið í My fair lady,
þegar sá söngleikur var sýndur á
sviði á Broadway. Á myndinni
sjáum við hana í nýjasta hlut-
verki sínu í kvikmyndinni
,,Stars“ (Stjörnur)', en þar fer
hún með hlutverk Gertrude Law-
rence, sem var fræg, brezk leik-
kona áður fyrri- Komin er út
tveggja lag hljómplata, þar sem
Julie syngur tvö lög úr þessari
■ kvikmynd. Þau heita ,,Stars“ og
„Someone to Watch over me“.
Kvikmyndin var frumsýnd í
London 18. júlí sl.
3 yfirmenn - 2 óbreyftir
Um eitt skeið mátti heita að loku væri íyrir það
skotið, að óþekkt bandarísk hljómsveit gæti
haslað sér völl í Bretlandi og komið lagi á vin-
sældalistann þar í landi. En hljómsveitir eins og
t. d. Union Gap og 1910 Fruitgum Co. hafa sannað
að þessu er ekki lengur til að dreifa. Og banda-
rískum hljómsveitum þykir það rhikil upphefð
að komast með lag á vinsældalistann brezka.
Hljómsveitin Union Gap var svo til óþekkt í
Bretlandi, þegar lagið „Young Girl“ tók að
heyrast þar. Þó hafði hljómsveitin áður sent frá
sér annað lag, sem hafði náð líkum vinsældum,
vestan hafs. Það var lagið „Woman woman“, sem
að vísu kom einnig á brezkan markað en brezk-
um þótti lítið í það varið. Þau eru furðuleg
mörg heitin á bandarískum hljómsveitum, og
Union Gap er þar engin undantekning. Union
Gap er bær í Bandaríkjunum sem kom talsvert
við sögu í borgarastríðinu fræga. í samræmi við
það klæðast liðsmenn hljómsveitarinnar einkenn-
isbúningum frá þeim tíma, og aðalsöngvarinn og
lagahöfundurinn, Gary Puckett er ætíð kallaður
generáll! Aðrir liðsmenn eru liðþjálfi, undirfor-
ingi og tveir óbreyttir! Ekki hafa þeir þó þurft
að standa í mikilli baráttu hingað til þegar þess
er gætt, að á hálfu áru hafi tvær hljómplötur
þeirra selzt í meira en milljón eintökum hvor.
31. tw. VIKAN 17