Vikan - 08.08.1968, Blaðsíða 16
Hnn synour: If m on nm
*>'RÁ**'*
ANDRES INDRIÐASON
Dusty Springfield hefur undan-
farin ár verið meðal vinsælustu
dægurlagasöngkvenna í Bret-
landi. Hérlendis hefur þó lítið til
hennar heyrzt, ef undan er skilið
hið fallega lag „If you go away“
eftir franska lagahöfundinn Jac-
,1
ques Brel. Dusty hefur ekki sent
frá sér ýkja margar tveggja laga
plötur, og þær plötur slíkar, sem
hún hefur sungið á, hafa ekki
komizt langt upp eftir vinsælda-
listanum brezka. Síðast kom
tveggja laga plata frá henni í maí
1967 með laginu „Gimme Time“.
Það komst ekki ofar en í sautj-
ánda sæti á vinsældalistanum.
Hæggengu plöturnar hennar hafa
hins vegar selzt vel, en lagið „If
you go away“ er einmitt á hæg-
gengri plötu. Utan heimalands
síns er Dusty eftirsóttur skemmti-
kraftur, og mestan hluta ársins
er hún í einhverjum erlendum
stórborgum að skemmta, Sydney,
Texas eða Tokyo. Svo er þess að
geta, að bróðir Dusty, Tom
Springfield er vinsæll lagahöf-
undur og hefur m.a. samið flest
laganna fyrir The Seekers, þar á
meðal lagið „A world of our
own“, sem við þekkjum kannski
betur undir heitinu „Kveiktu
ljós“, sungið af blönduðum kvart-
ett frá Siglufirði.
Dusty Springfield í sviðsljósi.
Dusty og góður vinur — Paul
McCartney.
IVEÚSÍK við allra hæfi
— Okkar markmið er að gera
öllum til geðs, spila músik við
allra hæfi en einskorða okkur
ekki við- einhvern ákveðinn stíl.
Þetta segja þeir í hljómsveit-
inni Orion, sem skemmt hefur í
Sigtúni í sumar ásamt Sigrúnu
Harðardóttur. Orion er að þessu
leyti í sömu línu og Hljómsveit
Ingimars Eydal eða Sextett Ólafs
Gauks. Vinsældir þeirra Orion-
manna og Sigrúnar hafa líka far-
ið sívaxandi í allt sumar og er
það ein sönnun þess, að unga
fólkið kann vel að meta fjöl-
breytilega músik. En fjölbreytni
ein væri ekki nóg, ef ekki kæmi
meira til. Músikin í Sigtúni, þar
sem Orion og Sigrún hafa
skemmt í sumar, hefur verið
óvenju vönduð, og hafa margir
furðað sig á því, að tiltölulega
16 VIKAN 31-tbl-
óþekkt hljómsveit skuli detta al-
sköpuð niður úr skýjunum!
Hljómsveitin hefur aðeins leikið
á sumrin, þar sem allir liðsmenn
hafa verið í skóla, og það er fyrst
í sumar, að þeir félagarnir hafa
lagt músikina fyrir sig — enda
sinna þeir nú ekki öðru. Margir
muna eftir ágætum sjónvarps-
þætti Orion í febrúar sl. Þáttur-
inn var tekinn upp, er einn þeirra
félaganna, Sigurður Yngvi
Snorrason, var hér í jólaleyfi, en
hann stundar tónlistarnám í Vín-
arborg. Að öðru leyti var hljótt
um hljómsveitina sl. vetur. Sig-
urður Yngvi, sem leikur ó
rythmagítar er ásamt Stefáni
Jökulssyni unglambið í hljóm-
sveitinni. Báðir eru 18 ára. Stefán
er nemandi i Menntaskólanum í
Reykjavík, en auk þess sem hann
lemur húðirnar sezt hann við
píanóið af og til. Sólógítarleikari
hljómsveitarinnar er Snorri Örn
Snorrason, bróðir Sigurðar
Yngva- Snorri hefur nýlega lokið
flugnámi og tekur að líkindum til
við flugið í haust. Eysteinn Jón-
asson leikur á bassagítar. Hann
er nemandi í Kennaraskólanum.
Þeir Sigurður, Snorri og Eysteinn
leika allir með Lúðrasveit
Reykjavíkur, Sigurður á klarin-
ettu, Snorri á enskt horn og Ey-
steinn á trompet. Þeir segja, að
erfitt sé að koma þessum hljóð-
færum við, þegar þeir leika fyrir
dansi, en í sjónvarpsþættinum
höfðu þeir blásturshljóðfærin
með — og þau verða einnig með
í öðrum þætti, sem hljómsveitin
gerir fyrir sjónvarpið í ágúst.
Og síðast en ekki sízt er að
geta söngkonunnar, Sigrúnar
Harðardóttur. Hún hrósar þeim
félögunum á hvert reipi og segir
samstarfið vera alveg sérstaklega
gott. Sigrún er nú að undirbúa
aðra hljómplötu sína, sem tekin
verður upp um miðjan ágúst.
Fjögur lög verða á plötunni, og
er þegar búið að velja þau. Sig-
rún hefur haft í fleiri horn að
líta, því að hún hefur í sumar
lesið námsefni 5. bekkjar í
Menntaskólanum á Akureyri og
sezt því í sjötta bekk í haust, ef
allt gengur vel. Orion og Sigrún
ætla að skemmta úti á lands-
byggðinni í sumar og einnig í
Húsafellsskógi um verzlunar-
mannahelgina, en sennilega verða
þau komin til baka úr þeim ferð-
um, þegar þetta kemst á prent.