Vikan


Vikan - 08.08.1968, Blaðsíða 19

Vikan - 08.08.1968, Blaðsíða 19
Athygli heimsins virðist nú loksins vera farin að beinast að hinu hryllilega stríði í Nígeríu og er nú farið að gera ráðstafanir til að binda á það endi, livernig sem gengur. Síðan ófriður þessi hófst í fyrrasumar hafa að sögn að minnsta lcosti tvö hundruð þúsund manns látið lífið, eða eins margir og í Víetnam-stríðinu á þremur árum. Nígeríustjórn liefur fengið gnægð vopna frá Bretum og liússum og egypskir flugmenn fljúga herflugvélum henn- ar. Bíöfrumenn hafa hins vegar aðeins fengið lítilsháttar stuðning frá Portúgölum og upp á síðkastið hafa Frakk- ar farið að taka svari þeirra. Hér er brugðið upp nokkr- um svipmyndum úr stríðinu. Ojukwu, leiðtogi Bíöfru, flytur ræðu. Ræðustólinn prýðir fáni liins unga ríkis, í rauðum, svörtum og grænum lit með rísandi sól í miðju. Ilerflugvélar Nígeríustjórnar, sein sagðar eru mannaðar egypzkum flugmönn- um, liafa valdið óbreyttum borgurum í Bíöfru miklum hörmungum. Hér er verið að leita að fólki, sein grafizt hefur undir rústum í loftárás. ■ Allir sem vettlingi geta valdið leggja á flótta, berandi með sér það sem þeim er kærast, þegar her stjórnarinnar í Lagos nálgast. Her Nígeríustjórnar er að mestu skipaður hermönnum norðan úr landi, sem eru Múhameðstrúarmenn og liata ákaft liina kristnu íbóa. Þessi litla stúlka var óvenju lieppin, eftir því sem gerist um fórnarlömb loftárása. Hún grófst undir rústum, en var grafin upp heil á húfi. “■tbl- VIKAN 19

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.