Vikan - 08.08.1968, Blaðsíða 29
Skemmtanalífið í London býður upp á mikla
fjölbreytni. Björk og Anna Sigga völdu sér róm-
antískan stað sem heitir „The Beachcomber" til
þess að borða og dansa á fyrsta kvöldið í London.
Hann er ekki alveg auðfundinn, því það er
gengið niður marga stiga þar til komið er að
inngangi, sem varla er hægt að greina frá hellis-
munna. Þegar inn er komið er allt líkast ævin-
týri, veggirnir í forsal þaktir fiskabúrum með
marglitum fiskum og fjölbreyttum gróðri, en í
salnum eru skreytingar komnar langt að, alla
leið frá Polinesisku eyjunum. Þar eru úrskornar
guðamyndir og tágaskreytingar, og meira að
segja Ijósin skína gegnum andlit mótuð í basta-
skerma, misjafnlega svipfalleg, sum nokkuð
galdramannsleg. A matseðlinum mátti velja rétti
frá sömu slóðum og skreytingin var upprunnin
frá, og var það nýstárleg tilbreytni fyrir stúlkur
frá íslandi.
Westminster Abbey er ein sögufrægasta bygg-
ing Lundúnaborgar, og hún er einnig talin eitt-
hvert mesta listaverk miðalda bygginalistar. Þar
hafa flest allir konungar — og drottningar —
verið krýndir og þar eiga líka margir þeirra
sinn hinzta hvílustað. Það er ekki á hverjum
degi, að færi gefst á að skoða svona tignarlega
byggingu. Ferðamannahópar streyma þarna út
og inn, gagnteknir af sögu og helgi Westminster
Abbey. Björk langar til að festa þessa stund á
mynd, sem hægt er að taka fram á dimmum
vetrarkvöldum heima í Reykjavík og rifja um
leið upp þennan heita og viðburðarríka sólskins-
dag i stórborginni London.
»1 fí ^ F
MvV. tP iK
House of Parliament, þinghúsið, ber vitni um glæsilega for-
tíð Bretlands, einhver stærsta og íburðarmesta bygging, sem
reist hefur verið á Bretlandi siðan fyrir siðaskipti. I augum
■nargra Breta er þarna miðdepil! heimsins, og ferðamenn
standa agndofa andspænis svo stórfenglegri byggingu, að
minnsta kosti íslendingar, sem enn hafa ekki einu sinni litið
Halfgrímskirkju fullgerðaj Þarna er líka turn einn mikill,
sem allir kannast við og ber klukkuna frægu Big Ben.
Yfir ána Thames
eru margar og
miklar brýr, og
þær Björk og
Anna Sigga
hvila sig við
einn af skraut-
legum stólpum
Waterloobrúar-
innar með þing-
húsið og Big
Ben í baksýn.
3i. tw. VIKAN 29