Vikan - 08.08.1968, Blaðsíða 32
Ronson
BÁRÞURRKA HEIMILANNA
TILVALIN FERMINGARGJÖF
EINKAUMBOÐ:
I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F., REYKJAVÍK
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl);
Tillitsleysi umhveríis þíns veldur því að þú nýtur
ekki nauðsynlegrar hvíldar. Skiptu um dvalarstað
e£ þess er kostur. Á laugardag verðurðu þátttakandi
í stórkostlegri samkomu.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þú dáist i laumi að atorkusemi ákveðinnar persónu.
Nágranni þinn ber fram furðulega uppástungu. Þú
fœrð tækifæri til að drýgja tekjurnar. Vertu vand-
látari í vinavali.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Vertu árvökull og einbeittur í starfi þínu. Varastu
lausmælgi og bera áfram óstaðfestar æsifregnir.
Heilladagar vikunnar eru fimmtudagur og sunnu-
dagur. Þú festir kaup á langþráðum hlut.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Þú starfar í skemmtilegum félagsskap með dugmiklu
fólki. Láttu starfsemina njóta krafta þinna eins og
kostur er. Vanræktu samt ekki fjölskylduna, sér-
slaklega ekki yngstu meðlimi hennar.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Yfirleitt má segja að heildarútkoma vikunnar verður
jákvæð, þótt allt gangi ekki eins og þú vonaðir. Þú
verður að taka sjálfstæðar ákvarðanir til að bjarga
heiðri þínum.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Farðu varlega í viðskiptamálum. Þú festir kaup á
fögrum hlut, sem verður þér að litlu gagni. Kynntu
þér betur starfið sem þú ætlar að hefja, það eru til
margar bækur um það efni.
Vogarmerkið (24. september — 23. október)
Einþykkni þín hefur fælt frá þér persónu sem þér
þykir mikið til koma. Haltu aftur af kreddum þín-
um, sérstaklega ef þeim er beint til persónu undir
tvítugu. Boð nokkurra kunningja gæti bjargað miklu.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Þú verður að bíða nokkuð lengur en þú ætlaðist til,
en útkoman verður mjög hagstæð, ef þú situr ekki
auðum höndum. Sýndu vini þfnum samúð og lið-
sinntu honum ef þú mögulega getur.
Bogamannsmerkið (23. nóv. — 21. desember):
Þú verður mikið heima á kvöldin og lætur þér ekki
leiðast, því áhugi þinn á vissri söfnun er endurvak-
in. Þú sýnir ákveðinni persónu mikla móðgun er þú
svarar eklci spurningum hennar.
Því miður verður margt til að spilla tíma þínum og
er ekki allt í þínu valdi að koma í veg fyrir það.
Verkefni þín eru fjölbreytt svo þú situr sjaldnast
auðum höndum.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Nokkrir fjárhagsörðugleikar gera vart við sig á
heimilinu. en þeir greiðast vonum framar. Fjölskylda
þín er aðdáunarlega samhent f ákveðnu máll. Þú
tekur að þér verkefni sem gæti skapað þér óvild.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Ýmislegt óvænt skeður f kunningjahóp. Þú skemmtir
þér mjög vel um helgina. Varastu fjölmennar sam-
komur. Láttu ekki eftir þér að vera óþolinmóður,
þótt þú verðir fyrir nokkrum töfum.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
32 VIKAN 31- tbl-