Vikan - 08.08.1968, Page 8
Nýkomnii*
KARLMANNASKÖR
Mikið úrval. — Verð frá kr. 395.00.
KARLMANNASANDALAR
Nýtt úrval. — Verð frá kr. 249.00.
BARNASANDALAR
Stærðir: 28—38. — Verð frá kr. 212.00.
SKÖVERZLUN
(/2tUlSy4rtd/LC-S-S<>n43A.
Laugavegi 96.
Brezka bifreiðaverksmiðjan
Morgan Motor Co. í Malvern
Link, framleiðir níu bíla á viku.
f ár vonast þeir til að geta aukið
afköstin upp í tíu.
f 62 ár hefir Morgan Motor Co.
frgmleitt hina heimskunnu sport-
bíla, sem allir eru kenndir við
Morgan. Það hefir engin veru-
leg breyting orðið á þeim síðan
1936 — að því undanteknu að
kastljósum var komið fyrir í aur-
brettunum árið 1950, og bílarnir
eru ennþá framleiddir eins og
þeir voru í upphafi,
Fyrirtækið í Malvern Link er
svo lítið að þess er ekki einu
sinni getið í skýrslum yfir bíla-
framleiðendur i Bretlandi. En að-
dáendur Morgan bílanna vita vel
hvar það er staðsett og koma
þangað árlega til að láta yfirfara
þessar kerrur sínar. Morgan bill
vekur alltaf athygli, hvar sem
er í heiminum, jafnvel heima í
Englandi.
Verksmiðjan er í látlausu húsi
úr rauðum múrsteini, og er nú
stjórnað af þriðju kynslóð Morg-
an ættarinnar, hr. Peter Morgan.
Hann hefir 95 manns í vinnu, og
margir þeirra hafa unnið þarna
alla ævi, 40—50 ár. Þeir kalla sig
allir handverksmenn, ekki bíla-
smiði. Þeir fussa fyrirlitlega
þegar minnzt er á sjálfvirkni
og endurskipulagningu. Morgan
sjálfur, eða einhver af nánustu
samstarfsmönnum hans reyna
hvern einasta bíl, áður en hann
er afhentur.
Leyndarmálið sem liggur að
baki velgengni Morgan fyrirtæk-
isins er að svo mikil alúð er lögð
við hvern einasta bíl sem fram-
leiddur er. Boddíið er smíðað úr
eskitré. Það er ennþá notaður
fyrirstríðsmálmur, svo þykkar
plötur að það geta liðið áratugir,
án þess að ryðið vinni á þeim.
Það eru til 20 ára Morgan bílar,
sem ekki sézt á einn einasti ryð-
blettur. Af þeim 450 bílum, sem
Morgan framleiðir árlega, eru
400 til útflutnings, út um allan
heim. Herra Morgan viðurkennir
að níu bílar á viku sé ekki mikil
framleiðsla. — Eg myndi gjarnan
vilja framleiða tíu bíla á viku,
sagði hann í viðtali nýlega.
Allt leyfftlegt nema kyn-
þáltaæslngar
í áratugi hefir orðið verið
frjálst á hinu fræga horni í Hyde
Park í London, sem kallað er
„Speakers Corner“. Hver sem er
getur sagt álit sitt á hverju sem
er. Nú er sú tíð reyndar liðin.
Óeinkennisklæddir lögregluþjón-
ar eru nú þar á hverju strái og
hlusta á ræðumenn. Það er allt
í lagi að segja að Wilson for-
sætisráðherra sé skítur á priki
og að Heath, leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar sé úrhrak, en ef
einhver minnist á það að þel-
dökkt fólk ætti að hypja sig
sem fyrst til síns heima, til Vest-
ur-Indía eða Indlands, þá á hann
vísa vist í steininum.
Það eru ný lög sem harðbanna
Bretum að stofna til illinda um
kynþáttavandamál, bæði í tali og
á prenti, á opinberum stöðum.
Þar er líka átt við horn ræðu-
manna
Park. Brezku dómstólarnir hafa
ákveðið að koma í veg fyrir all-
ar kynþáttaóeirðir, og það á ekki
aðeins við um það hvað hvítir
menn hugsa og segja um þel-
dökka, heldur líka hvað hinir
þeldökku láta í ljós um hvíta
menn. Þeir vilja ekki að Bret-
land drottningarinnar lendi í
sömu vandræðum og Bandaríkin.
Ennþá hefir aðeins verið dæmt
þrisvar í slíkum málum, og í
öll skiptin var það í „öfuga“ átt.
Brezki svertingjaleiðtoginn Mic-
hael X var nýlega dæmdur í árs
fangelsi fyrir kynþáttaáróður
gegn hvítum mönnum, og þessi
dómur er mikið gagnrýndur
manna á meðal, á pöbbunum í
London, Hann hélt þó ekki hót-
unarræður sínar gegn hvítum
meðbræðrum á smjörlíkiskassa
eða tréstiga við Speakers Corner.
við Marble Arch í Hyde^PP^
8 VIKAN 31- tbl-