Vikan


Vikan - 08.08.1968, Side 20

Vikan - 08.08.1968, Side 20
r Tfllf Krn-og fil tekin mel keisansknrði Þegar frú Katleen McGarry, sem býr í námunda við Glasgow í Skotlandi, átti von á fyrsta barni sínu, sögðu læknarnir henni, að hún yrði að vera við því búin að geta ekki fætt barn sitt með eðlilegum hætti. Að öllum líkindum yrði að taka það með keisaraskurði, þar sem mjaðmagrind hennar væri of þröng. Allt gekk samkvæmt óskum, og móður og barni heilsaðist vel. En frú Mc Garry langaði til að eignast fleiri börn. Læknarnir sögðu henni, að hún gæti í mesta lagi eignast tvö eða þrjú börn. Síðan yrði hún að hætta. En annað kom á daginn. Nú er McGarry orðin 44 ára gömul og tólf barna móðir, og öll börnin hennar hafa verið tekin með keisaraskurði! Hér mun vera um algert met að ræða. Hingað til hefur keisaraskurður verið álitinn svo umfangsmikil og erfið aðgerð, að ekki hefur verið talið ráðlegt, að konur gengju undir hann oftar en tvisvar eða þrisvar sinnum. Eftir að kunnugt varð um McGarry og börnin hennar tólf, hefur hins vegar komið í ljós, að keisaraskurður hefur verið gerður oftar en þrisvar sinnum á konum víða um heim. Bandarískur fæðingarlæknir, dr. Paquin að nafni, lét taka saman skýrslu um fjölda keisaraskurðaðgerða á spítala sínum. Skýrslan lítur þannig út: ☆ 2 konur 8 sinnum, ☆ 12 konur 5 sinnum, ☆ 1 kona 7 sinnum, ☆ 38 konur 4 sinnum. ☆ 4 konur 6 sinnum, Keisaraskurður er elzta skurðaðgerð í sögu læknisfræðinnar. Ekki eru menn sammála um, hvernig nafnið er til komið. Sumir eru þeirrar skoðun- ar, að það stafi einfaldlega af því, að þetta hafi verið mestá aðgerð sem hægt var að gera í langan tíma, og þess vegna hafi menn kennt hana við þann mann, sem hæstur er í mannfélagsstiganum. Hins vegar eru til heim- ildir um, að Scipio Africanus, keisari, sem fæddist árið 165 fyrir Krists burð, hafi verið tekinn með keisaraskurði. Ýmsir halda því fram, að hér hafi í fyrsta sinn verið framkvæmd skurðaðgerð við fæðingu, og þar sem verið var að bjarga lífi verðandi keisara hafi aðgerðin fengið þetta virðu- lega nafn. ☆ V____________________ 20 VIKAN »•tbl'

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.