Vikan - 08.08.1968, Page 28
Qxford Street er ein sú gata í
Lundúnum, sem íslendingar
kannast bezt viS; þar eru þessi
stóru og glæsilegu magasín,
sem er svo gott að verzla í, Og
aS sjálfsögðu áttu BJörk og
Anna Sigga þar leið um til að
sk ða og gera innkaup.
í litium bæklingi, sem fylgir hverjum farseðli
frá Flugfélagi Islands til London, eru upplýsingar
um það markverðasta, sem hægt er að skoða í
borginni. Þar er líka handhægt kort, með helztu
stöðum merktum inn á. Björk og Anna Sigga
leggja því af stað til að litast um. Þær komast
fljítt upp á að nota ncðanjarðarbrautirnar, sum-
ar lengst niðri í iðrum jarðar, aðrar næstum upp
við yfirborðið, en allar iðandi og ólgandi í mann-
mergðinni. Kerfið er stórkostlega fjölbreytt, en
þó einfalt, það kvíslast út um alla borgina og
einhvers staðar mætast ailar leiðir, þannig að
ekki er hægt að villast hættulega og sá sem
einu sinni er kominn inn, getur ferðast fram og
affur á sama farseðli þar til hann fer út og upp
í dagsbirtuna.
Lundúnabúar virðast kunna að njóta lífsins og slaka á, þótt
skarkali og hraði stórborgarinnar umlyki þá. Þeir nota hvern
friðsælan blett, hvar sem hann er að finna. I fögrum og víð-
áttumiklum skemmtigörðum borgarinnar er fólk eins og úti í
sveit, og á torgum situr fólk á stöllum og bekkjum og lifir fyrir
líðandi stund, eins og það sé eitt í heiminum. Trafalgar Square
ber af flestum torgum Lundúna, og þar eiga borgarbúar og
ferðamenn margar ánægustundir í leik við dúfurnar. Þvílík
mergð af dúfum! Það var ekki laust við að Björk og Önnu
Siggu þætti nóg um, þegar dúfurnar þyrptust á handleggi þeirra,
axlir og höfuð, til þess að komast að korninu, sem þær höfðu
keypt handa þeim í litlum pappaöskjum.
Gosbrunnarnir miklu á Trafalgar Square veita auganu óþrjótandi
tilbreytingu og unað, og þær Anna Sigga og Björk staldra við
í hressandi og svalandi úðanum af þeim. Þar gnæfir Nelson
gamli á himinhárri súlu og það veitir ekki af að vera vel fyrir
kallaður til að horfa alla leið upp til hans, en ekki dugir annað
en skoða allt, sem fyrir augu ber.
28 VIKAN 31; tbl-