Vikan


Vikan - 08.08.1968, Page 34

Vikan - 08.08.1968, Page 34
PER SPARID MEDÁSKRIFT ÞÉR SPARIÐ TÍU KRÖNUR Á HVERJU BLAÐI MEÐ ÞVÍ AÐ VERA ÁSKRIFANDI AÐ VIKUNNI OG ÞÉR ÞEKKIÐ EFNIÐ VIKAN ER HEIMILISBLAÐ OG í ÞVÍ ERU GREINAR OG EFNI FYRIR ALLA Á HEIMILINU, — UNGA OG GAMLA, SPENNANDI sögur OG frásagnir, fróðleikur, fastir þættir o. fl., o. fl. KLIPPIÐ HÉR-----------------------------------------KLIPPIÐ HER r i i i L Vinsamlegast sendiö mér Vikuna í áskrift □ 3 MÁNUÐIR - 13 tölubl. - Kr. 400,00. Hvert blað á kr. 30,77. □ 6 MÁNUÐIR - 26 tölubl. - Kr. 750,00. Hvert blað á kr. 28,85. Gjalddagar: 1. febrúar — 1. maí — 1. ágúst — 1. návember. SKRIFIÐ GREINILEGA NAFN HEIMILI PÓSTSTÖÐ VIKAN SKIPHOLTI 33 PÓSTHÖLF 533 REYKJAVlK SlMAR: 36720 - 35320 n i i i j 34 VIKAN »■ tbl- Bisniss kammerat Framhald af bls. 11 loð'a eins og steinsugur við aum- ingja alþýðulýðveldin, eða hvað maður á nú að kalla þetta, þá verður að segja sovézkum það til lofs að þeir hafa ýmsa tilburði til gottgjörelsis við aðkomna sæ- fara. í hverri hafnarborg hafa þeir sjómannaklúbb, sem allir heita Interklúb, og þar eiga menn þess kost að líta í bækur, eign- ast póstkort og minjagripi, fá sér hressingu og snúning við nokkr- ar dömur, sem ráðnar eru á stað- ina til þess, en vel að merkja einskis annars. Einnig ordna klúbbarnir hópferðum fyrir sjó- menn, og eru þeim þá sýndir hinir og þessir merkilegir staðir í borginni og nágrenni. Leið- sögumenn klúbba þessara eru venjulega prýðilega mæltir á ein- hverja vesturlandatungu, til dæmis var sá, sem kom frá Inter- klúbb niðrað Dettifossi að þessu sinni, frábær í sænsku. Hann heitir Alexandr og kalla skip- verjar hann Nevskí eftir nafna hans, sem eitt sinn réði ríkjum hér um slóðir og er frægur úr sögu Rússa og kvikmynd um hann sem Eisenstein gerði. Annars er svo að heyra, fljótt á litið, að kunnátta almennings hér í málum Vesturlanda megi varla minni vera. Burtséð frá þessu góða fólki hjá Interklúb varð ég ekki var við nema eina manntegund aðra, sem séns væri að gæti bjargað sér í viðræðum við gesti vestan úr heimi, en það eru ungmenni þau, sem stunda ólögleg verzlunarviðskipti við út- lendinga. Sú stétt manna er all- fjölmenn í sovézkum hafnarborg- um og er mér þó sagt af kunnug- um, að hún sé ekki svipað því eins aðgangshörð núorðið og fyrr- meir, meðan vöruskortur var meiri í Sælunni. Þessir piltar hafa sjálfsagt tekið í arf hina næmu athyglisgáfu feðra sinna og afa, náttúrugreindra bónda- karla einhversstaðar suður á steppum eða austur í skógum, ef dæma má af því hve fljótir þeir eru að þekkja erlenda frá heima- mönnum. Aldrei skal aðkomu- maðurinn hafa látið berast nema fáa tugi metra með fólksstraumn- um á Nevskí próspekti þegar hugleiðingar hans um líf og til- veru þessa staðar truflast við að allt í einu er farið að tala við hann á ensku eða þýzku: Bisniss kammrat? YouEnglish? Swedish? Anything to sell? Þeir sem uppá þessum viðskiptum fitja eru yf- irleitt á ungum aldri, þokkaleg- ir í útliti og framkomu og heims- mannslega klæddir á sovézkan mælikvarða. Talsverðan vöru- smekk hafa þeir líka, því að mér var sagt að vonlaust væri að pranga inná þá fötum frá ákveðn- um íslenzkum framleiðendum, Framhald á bls. 39

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.