Vikan - 29.08.1968, Síða 6
HAGSÝN
HÚSMÓÐIR
NOTAR
r
HINAR
VIÐURKENNDU
ENGLISH ELECTRIC
SJÁLFVIRKU ÞVOTTAVÉLAR 2 GERÐIR
GERÐ 474 GERÐ 484
• Heitt eða kalt vatn til áfyllingar.
• Innbyggður hjúlabúnaður.
• 8 þvottastillingar — skolun — vindun
• Afkösl: 4,5 kg.
• 1 árs ábyrgð
• Varahluta- og
viðgcrðaþjónusta.
OO&Hl
ENGLISH ELECTRIC
^ Laugavegi 178 Sími 38000
þurrkarann má tengja
við þvottavélina (474)
að' gera? En hann á mcyj-
armerkið en ég dreka-
merkið. Segðu mér, hvern-
ig passa þessi merki sam-
an? Og hvernig á ég að
losna við gæsahúð á fótun-
um? Og svo eins og venju-
lega, hvernig er skriftin?
Ein 16 ára.
BOÐIÐ í LEIKHÚS
Kæri Póstur!
Ég hef oft skrifað þér
áður, og þú hefur alltaf
svarað mér fljótt og skil-
merkilega. Mér líður vel
um þessar mundir. Engin
alvarleg vandamál að
hrella mig. Þess vegna
ætla ég að senda þér pínu-
litla skopsögu, sem ég rakst
á um daginn í ensku blaði.
Mér finnst hún fjandi góð.
Hún hljóðar svo í lauslegri
þýðingu:
Nýgift hjón höfðu feng-
ið marga dýra og eigulega
gripi í nýja heimilið sitt.
Dag nokkurn fengu þau
bréf með morgunpóstinum.
f bréfinu voru tveir að-
göngumiðar á leiksýningu.
Auk þess fylgdi lítill miði,
sem á stóð:
„Reynið að gizka á, hver
sendir ykkur miðana!“
Ungu hjónin urðu frá sér
numin af hrifningu yfir
miðunum og fóru á sýning-
una um kvöldið. Þetta var
geysigóð leiksýning. Ungu
hjónin skemmtu sér kon-
unglega, en ennþá höfðu
þau ekki getað látið sér
detta í hug, hver hefði
verið svo indæll að senda
þeim miðana.
Þegar þau komu heirn,
hafði verið brotizt inn í
húsið og öllum dýrmætustu
mununum þeirra stolið.
Hið eina, sem þau fundu
var lítill seðill sem á stóð:
„Nú vitið þið það!“
Beztu kveðjur.
Ein hamingjusöm
(í bili).
HANN LANGAR EKKI
Á BÖLL OG BÍÓ
Kæri Póstur!
Svo er mál með vexti
að ég er með strák og okk-
ur kemur vel saman að
öllu leyti nema því að mig
langar á böll um helgar en
hann sjaldan. Hann vill
bara keyra og keyra þegar
bíllinn er í lagi en hittir
mig ekki annars, því stund-
um er hann að gera við
bílinn, og hann fer aldrei
í bíó með mig. Hvað á ég
Undarlegt má það heita
að þessi piltur þinn skuli
helzt vilja forðast að sjást
með þér opinberlega, en
til þess bendir eindregið
það hátterni hans að vilja
ekki fara með þér á böll
og bíó. Það gæti bent til
þess að hann ætti sér ann-
að viðhald og vildi leyna
þér fyrir henni, og líka
þess að hann hefði mjög
svo takmarkaðan áhuga
fyrir þér.
Ekki batnar útlitið er
við reynum að sjá í
stjörnumerkin. Samkvæmt
þeim fræðum eru jómfrúr
og sporðdrekar svo gerólík,
að mjög hæpið er að sam-
líf þeirra geti heppnazt.
Takist þeim hins vegar að
yfirvinna þá eðlislægu and-
úð, sem þau hafa hvort á
öðru, geta þau stundum
náð sæmilegum árangri
með því að bæta hvort ann-
að upp.
Að öllu samanlögðu sjá-
um við ekki fram á annað
en réttast sé að sú segir
drengnum upp.
Eitt handhægasta ráðið,
sem við vitum um gegn
gæsahúð, er að vera hlý-
lega klædd til fótanna. —
Skriftin er vel læsileg, en
skortir festu.
HVERT ER GREINDARSTIG
ÍSLENZKRA BÍÓGESTA?
Háttvirtur Póstur!
Ég leyfi mér að lýsa yf-
ir vanþóknun minni á bréfi
sem birtist í dálkum yðar
nýlega og jafnframt
ánægju minni yfir svari
yðar. Bréf þetta var varð-
andi kvikmyndina „Sound
of Music“ og var í því for-
dæmt það álit Þráins Bert-
elssonar, kvikmyndagagn-
rýnanda Vísis, að mynd
þessi væri hinn mesti
ófögnuður. Röksemdir þær,
sem bréfritari dró fram,
voru vægast sagt furðuleg-
ar. Vildi hann meina, að
það sannaði bezt ágæti
myndarinnar hve góða að-
sókn hún hlaut hér. Fróð-
legt væri þá að kynna sér
hver stæði næst henni að
G VIKAN 34- tbl-