Vikan


Vikan - 29.08.1968, Side 7

Vikan - 29.08.1968, Side 7
rí gæöum samkvæmt þessu mati. Eftir þeim heimild- um sem ég hef við hend- ina yrði það sænska mynd- in „Ég er forvitin", og efa ég að aðdáendur „Sound of Musie“ séu því sam- þykkir. Séu þessar tvær myndir skoðaðar af raun- hæfum sjónarhóli fer hins vegar ekki hjá því að nið- urstaðan verður sú að sænska myndin sé mun frambærilegri, jafnvel þó svo hún sé ekki neitt lista- verk. Veldur það því, að tæpast verður komizt lægra í kvikmyndagerð heldur en með „Sound of Music“. Er það samhljóða álit t. d. allra kvikmynda- gagnrýnenda í Bretlandi að mynd þessi sé ekki hæf öðrum áhorfendum en börnum frá fimm til sjö ára og mjög vanþroska kerlingum. (Öðru hvoru birtast þar viðtöl við þann- ig vitfirringa sem hafa séð myndina 50—60 sinnum). Það er einkar fróðlegt að vita þannig á hvaða greind- arstigi meginþorri ís- lenzkra kvikmyndahús- gesta er, og hvernig fram- leiðsla er borin á borð í bíói æðstu menntastofnun- ar landsins, jafnvel geng- ið svo langt að neyða henni upp á vistmenn á heilsu- hælum og elliheimilum. Einnig tónlistin er með af- brigðum hugmyndasnauð og einföld og ofhlaðin við- bjóðslegri væmni í stíl við atriði myndarinnar, skástu stefin eru stolin úr klass- ískum verkum. Persónur myndarinnar eru hlægilega fjarstæðukenndar, t. d. þær postulínsdúkkur sem börn- in eru, eiga sér enga hliðstæðu í daglegu lífi, og tæpast getur leiðinlegri vellu heldur en nunnuat- riðin. Það eina sem verð- ur sagt myndinni til lofs er tækni hennar og lita- samsetning. Oft er talað um það geig- vænlega ástand sem ríkir í bókmenntum vorum, þar sem vitvana kerlingar eru mest lesnar. Aðsóknin að „Sound of Music“ sýnir að ástandið í kvikmynda- mennt þjóðarinnar er sýnu verra og kemst raunar ekki lengra niður á við. Með þökk fyrir birtingu. Kvikmyndaunnandi. UM PILLUR Kæra Vika! Mig langar til að spyrja þig að dálitlu. Ég er 17 ára og ótrúlofuð stúlka. Ég hef heyrt svo mikið talað um getnaðarvarnapillur sem einkum eru ætlaðar ólofuðum stúlkum. Það er ætlazt til að þær séu not- aðar þannig, að þær séu teknar inn daginn eftir að óheppilegt atvik hafi átt sér stað, en hvað satt er í þessu veit ég ekki. Ef þess- ar pillur eru til, mundirðu þá, kæri Póstur, vilja segja mér réttar notkunarreglur og hvernig hægt er að út- vega sér þær. Með fyrir- fram þökk! Jómfrú Tobba. Margar tegunðir af getn- að'arvarnapillum eru til, en hér á landi mun bannað að selja þær allar nema gegn lyfseðli. Til þess að fá hann verðurðu vitaskuld að leita til læknis, sem gefur þér þá upp notkun- arreglur á hverri þeirri tegund af pillum sem til greina kemur. TVÆR FREKJUR Akranesi 9-8-1968. Kæri Póstur! Okkur langar til þess að leita til þín með vandamál okkar. Okkur finnst leið- inlegt hvað frekar við er- um á heimilum okkar, og við viljum losna við þessa frekju sem fyrst. Og þess vegna, kæri Póstur, spyrj- um við þig, hvernig get- um við losnað við þessa frekju? Enga útúrsnúninga, - heldur viljum við svar sem við getum lært af. Með fyrirfram þökk fyr- ir birtinguna. Tvær frekar. Fyrst frekja ykkar er ykkur sjálfum ljós, ætti ekki að vera erfitt að vinna bug á henni. Við þess konar pest er víst ekkert öruggt lækn- islyf til, því miður, en þið getið bezt bætt úr þessu sjálfar með því að reyna að halda aftur af ykkur, þegar þið finnið að frekju- köstin eru í aðsigi. Þannig ætti þetta að venjast af smátt og smátt. Og bezt væri að geta vanið sig af frekjunni strax í heima- húsum, því hætt er við að annars staðar verði hún miður þoluð. ÚTVEGUM MEÐ STUTTUM FYRIRVARA WILTON OG AXMISTER GÖLFTEPPA- DREGLA. BREIDDIR: 70 cm. 90 cm. 274 cm. 366 cm. OG 457 cm. ÖNNUMST ÁSETNINGU. FILT FYRIR- LIGGJANDI. Greiðsluskilmálar FYRIRLIGGJANDI GÓLFTEPPI OG MOTTUR. STÆRÐIR: 70 x 130 cm, 81 x 160 cm, 137 x 198 cm, 230 x 275 cm, 275 x 365cm, 70 x 140 cm, 91 x 173 cm, 180 x 230 cm, 275 x 275 cm, 200 x 300 cm, 70 x 340 cm, 114 x 183 cm, 180 x 275 cm, 275 x 320 cm, 250 x 350 cm, Friörik Bertelsen LAUFÁSVEGI 12 - SÍMI 3662.0 34. tbi. viIvAN 7

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.