Vikan


Vikan - 29.08.1968, Side 8

Vikan - 29.08.1968, Side 8
Bílairéfun VIKINNAI GÆÐAMERKIÐ/Cfte^/ >encer vOTuSá ^HÖFLÉGU verði IÐUNN STRÆTl'I ms DriostamMuu.ii.i j^chiiiia± ÍSLENZKAN MARKAÐ Móltækið segir, að batnandi manni sé bezt að lifa, og eitthvað því líkt má segja um bíla. Við höf um nú þekkt Moskvitsinn frá 1955 og þeir eru ekki margir gangandi enn af þeirri órgerðinni, raunar ekki þeim næstu ó eftir heldur. Hins veg- ar má víða sjá jarðneskar leifar þeirra á ólíklegum stöðum ekki síð- ur en líklegum. Aftur á móti hefur margur mað- urinn verið ónægður með Moskvits- inn sinn meðan hann var og hét, og þeir eru enn og heita margir þeirra sem smíðaðir voru árið 1959 og síðan. Sumir hverjir gullfallegir bílar enn þann dag í dag — að svo miklu leyti sem hægt er að kalla Moskvits fallegan. Þau stórmerki urðu þó fyrir þremur árum, að mig minnir, að Moskvits breytti allt í einu um útlit og varð mun vest- rænni yfirlitum en hann hafði áður verið og má nú með sanni kallast laglegur smábíll. Hann fæst sem fólksbíll, station og sendiferðabíll. Sá sem ég prófaði um daginn var ekinn 71 kílómeter, þegar ég sett- ist fyrst undir stýri og er ekki að orðlengja það, að mér þótti mæta gott að sitja undir stýri í honum. Það fór einkar vel um mig og hvað snertir fjöðrun og vegarlegu og af- stöðu til allra 'stjórntækja, er ekki hægt annað en gefa Moskvits ágæt- iseinkunn. Og hvað sem öðru líður er rétt að taka það fram strax, að hann á skilið ágætiseinkunn á mörg- um sviðum öðrum. Hann er mátulega léttur í stýri og einkar auðveldur í stjórnun. Gír- skiftingin er ekki skemmtileg, en heldur ekki beint leiðinleg. Hann er fjögurra gíra með skiftingu á stýri og hún er að minnsta kosti á nýjum bíl heldur stirð. Kúplingin tók full ofarlega á prófunarbílnum fyr- ir minn smekk og bremsurnar voru of þungar. Sömuleiðis vantar stuðn- ing fyrir fótinn við bensíngjöfina; hún er af gaffaltýpu og þar til maður kemst upp á lag með að skorða jarkann út f gírkassastokk- inn verður bensíngjöfin skrykkjótt og fóturinn þreytist. Hins vegar ligg- ur bíllinn mjög vel, sem fyrr segir, og vel sést til allra átta. Hann er ekki beinlínis latur, en vinnslan gæti þó að skaðlausu verið heldur betri, kannski fyndi maður það síð- ur ef gírskiftingin væri í gólfinu og þar af leiðandi skernmtilegri. Það er ergilegt til þess að vita, að gólf- skifting í þessa bíla er til, en verk- smiðjurnar senda okkur þá ekki þannig frágengna. Nokkur hávaði frá vél og gírkassa er í þessum bíl, enda mun gírkassinn þvertenntur. Vélin er fjögra strokka 60 ha, hefur staðið sig all vel þótt óneit- anlega sé hægagangurinn nokkuð grófur. Rafkerfi vélarinnar er mjög gott og miðað við örugga gang- setninqu í miklum kulda; við kulda miðast líka svuntan fyrir kælinum. Þegar heitara er í veðri er hægt að setja sérstakan olíukæli f samband og þá stendur honum fátt fyrir þrif- um. Til gamans má geta þess, að á olíukerfinu er lika serstök hakkavel handsnúin, sem á að safna í sig trefjum og öðrum óhroða úr olíunni V S VXKAlN CUi.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.