Vikan


Vikan - 29.08.1968, Síða 9

Vikan - 29.08.1968, Síða 9
MISKVITS og síðan fínhakkar umsjórmaður bílsins þetta einu sinni ó dag og er það þar með úr sögunni. A hinn bóginn höfum við svo góðar olíur hérlendis, að hakkavélarinnar er ekki beinlínis þörf. Ymislegt er gert til þess að auðvelda leikmanni við- hald bílsins, t.d. er sérstakt fínstilli á kveikjunni mjög aðgengilegt, og í bók sem fylgir bílnum má lesa sér til um læknisráð við flestum þeim kvillum, sem fyrir kunna að koma. Þar við bætist, að verkfærin, sem fylgja Moskvitsinum, fara langt með að duga fyrir heilt verkstæði og nægja til allra viðgerða ó honum sjólfum — að kalla. Honum fylgir meira að segja dós með lakki því samlitu, sem utan ó honum er, og það kemur sér vel í grjótkastslandi sem okkar. Moskvitsinn er hár fró vegi og kemst drjúgum ófram yfir vegleys- ur. Mér hefur líka sýnzt, að hann sé all drjúgur í snjó og þoli sitt af hverju. Sænska tæknitímaritið Tekn- ikens Varld tók sér fyrir hendur í sumar að prófa, hvort Moskvitsinn væri raunverulega jafn þolinn og innflytjendur hans þar hafa haldið á lofti; þeir byrjuðu með að lói. yfirfara bílinn ó eftirlitsstöð konung- lega bílaklúbbsins sænska og fó vottorð um fullkomið ásigkomulag hans. Síðan var lagt af stað og eknir eitthvað um þrjú hundruð dlómetrar í lotu, aðeins skift um ökumenn við og við, og engu síður farnar vegleysur en vegir. A einu- um stað varð að fó kranabíl til hiólpar, það var á grýttum skógar- stíg ekki bílfærum, þar sem Mosk- inn sat á kviðnum og náði ekki nið- ur með hjólunum. í annan stað var honum ekið í öðrum glr ó fullri bensíngjöf 30 kílómetra vegalengd ón hvílda til að prófa kælinguna og hún rótaði sér ekki. Og þegar tækni- mennirnir höfðu útsett Moskvitsinn fyrir flest það harðrétti, sem þeim datt í hug, annað en beinlínis keyra hann ó eða velta honum, var aftur farið með hann ó eftirIitsstöð bíla- klúbbsins konunglega, þar sem bíll- inn var yfirfarinn á nýjan leik. Það eina, sem breytzt hafði, var að bremsurnar tóku nú um þumlungi neðar en fyrir ferðina, en voru þó fullkomlega löglegar. Sætin í Moskanum eru góð; það er gott að ferðast í honum. Þar að auki mó leggja framsætin niður og gera sér úr þeim þægilegt ból fyrir tvö. Kistan er líka mjög rúmgóð, þótt hún hafi þann leiða galla að opnast aðeins að ofan, það verður að lyfta öllu upp í og upp úr í mittishæð.. Mælaborðið er ekki beint fallegt, en þar eru allir þeir mælar sem eiga að vera í einum bíl: Hraða- mælir, olíuþrýstimælir, hitamælir, bensínmælir og rafmagnsmælir. Vinnukonurnar eru tveggja hraða og rúðusprauta er að sjólfsögðu á bíln- um. En því miður verður ekki ó móti mælt, að Rússinn ó mikið ólært í því, að láta fallega frágengna bíla- innréttingu frá sér fara. Spjöldin á hurðunum eru að vísu klædd, en þau eru fátækleg og ómerkileg, | Framhald á bls. 50. I ZANUSSI’ Zanussi þvottavélin er ein mest selda þvottavélin í Evrópu í dag, og er átta ára reynsla fyrir hendi á íslandi. Hagstætt verö og greiðsluskilmáíar. Umboösmenn um allt land. Snorrabraut 44 - Reykjavík Pósthólf 119 - Símar 16242 - 15470. 34. tbi. VIKAN 9

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.