Vikan


Vikan - 29.08.1968, Page 27

Vikan - 29.08.1968, Page 27
Meymennin eru f eðli sínu fyrst og fremst andans fólk; mólshóttur Descartesar, ég hugsa, því er ég til, gæti vel verið þeirra lífsmottó. Þau eru heldur kaldlynd en sýna líka tilhneigingu til taugaóstyrks. Tauga- kerfi þeirra er ákaflega vel þróað, hvað ekki verður sagt um mörg önnur líffæri, t. d. vöðva og melt- ingar- og öndunarfæri. Tilfinningar þeirra eru næmar og fíngerðar, þau eru skarpskyggn og sýna á sér margar hliðar, bregðast við hlutun- um á breytilegan og oft óvæntan hátt. Þau kanna vandlega það, sem býðst, og velja úr því; jafnvel auka- atriði hafa mikla þýðingu í augum þeirra. En oft eiga þau í erfiðleik- um með að samlagast umhverfinu og eru fljót til að mikla fyrir sér erfiðleikana. Af engu stendur meymennum slík ógn sem eigin hvötum og eðlis- ávísunum og setja sér því yfirleitt þá meginreglu að breyta þvert gegn þeim. Þau óttast lífið í heild og líta á það sem ögrun við innri frið. Ekki geðjast þeim betur að ástinni, sem að þeirra dómi er árás á blygð- unarkenndina, og í tilfinningalífinu sjá þau ekki annað en þjáningar og óráðsíu. Eðlilegustu viðbrögð þeirra eru að hika, draga sig til baka, forðast ábyrgð og þátttöku. Þessháttar persónur verða vita- skuld sjaldan mjög frumlegar eða viðbragðsfljótar, en hinsvegar frem- ur hversdagslegar og smámunasam- ar. Þær taka ekki þátt í neinu fyrr en að mjög vandlega athuguðu máli og eru eldsnöggar að kippa sér til baka, ef horfurnar versna eitthvað lítilsháttar. Þær treysta á skýran og skynsamlegan þankagang og forð- Elísabet fyrsta Englandsdrottning, f. 7/9 1533, einhver dæmigerðasta jómfrú sem um getur. ast allt sem er óljóst og dularfullt. Þær eru raunsæismanneskjur í þess orðs fyllstu merkingu. Þar sem meymennið hefur slíka viðurstyggð á eðlishvötum sínum, er ekki nema eðlilegt að það tigni og tilbiðji allt sem tilheyrir fágaðri og slípaðri menningu og siðferðislegri fullkomnun, enda er það svo. Hin klassíska menning, hinn klassíski maður, maður sem hefur sigrað sjálfan sig, það er hugsjón mey- mennisins. Er bezt tekst til, gera þessi við- horf meymenni að fullkomnasta og hamingjusamasta fólki, sem til er. Ekkert kemur slíkum ofurmennum á óvart, þau hafa ráð undir rifi hverju, fitja upp á ótal smáatriðum til að fegra líf sitt og sinna og gefa hvöt- um og tilfinningaofsa gaum af góð- látlegum áhuga; þessháttar hafa þau fyrir löngu yfirrunnið. En því miður er langt frá því að öll meymenni komist á svo hátt plan. Skynsemisdýrkun þeirra og stöðug leit að andlegu jafnvægi er langt frá því hættulaus; þessu hef- ur meira að segja verið líkt við jafnvægisgöngu á barmi eldgígs. Hin stöðuga barátta þeirra við kroppinn á sér getur orðið til þess, að þau forðist að gera allt það, sem þau langar til. Þessi hræðsla við sjálfan sig getur alið upp í fólki vissa minnimáttarkennd og beina lífshræðslu. En ekki hindrar þetta meymennin að verði þjónustugóð, mannúðleg og skilningsrfk. Sem nærri má geta er þrá eftir hreinleika nátengd jómfrúnni, hinni hreinu mey. Gangi þessi hneigð út í öfgar, verða til fremur jafnvægis- lausar og sjálfri sér ósamkvæmar Greta Garbo, f. 18/9 1905. Þessi skarpgreinda, hlédræga filmstjarna sver sig líka í ætt við merkið. manneskjur. Reglusemi, sparsemi og þolgæði verður hjá þeim að smá- munasemi, nízku og þvermóðsku, í andlegum málum og trúarefnum verða þær þurrpumpulegar og oúrítanskar. Þar við bætast stund- um eiginleikar eins og óseðjandi ágirnd og ofstækisfull afstaða til flestra mála. Þetta getur komið fram í ýmiss konar sérvizku, svo sem þvottaæði hjá kvenfólki, söfn- unarfíkn og bindindisfrekju. Ósam- kvæmnin hjá þessu fólki getur til dæmis lýst sér þannig, að sjálft lifi það hönkralausu og borgaralegu lífi, en haldi á hinn bóginn fram skoðunum um stjórnleysi og frjálsar ástir. Það er nokkuð gjarnt á að íaka gönuskeið, sem í einu vet- Fangi eyðileggja allt, sem þeim hef- ur áunnizt f lengri tíma. En kímni- gáfu hefur það góða; það er kald- hæðið og getur ævinlega gert grín að sjálfu sér, hversu illa sem það er statt. Önnur gerð meymenna er líka til, sem er allfrábrugðin hinum venju- legu, „klassísku" meymennum. Þessi týpa verður til við áhrif frá Marz og Plútó og er heldur óróleg. Hún er algerlega laus við hreinleika- tilfinningu annarra meymenna, er herská, ágeng, agalaus, uppreisnar- gjörn og æsir sig jafnvel upp í gróft og hroðalegt framferði, þegar verst lætur. Þetta fólk hefur mikinn á- huga á töfrum og hverskyns dul- speki. Margir trúa naumast eigin eyrum þegar þessi mannskapur er kenndur við jómfrúna; segja sem satt er að það minni miklu meira á sporðdrekann. Segja má að greind og gáfur séu meymennanna sterka hlið. Öryggis- leysi þeirra skerpir athyglisgáfu og Agatha Christie, f. 15/9 1890. Þessi frægi glæpasagnahöfundur er ógætt dæmi um „ósamkvæmu" týpuna. forvitni, enda eru þau oft góðir gagnrýnendur. Þau ná ósjaldan langt á sviði vísinda og rannsókna. En sérfræðingum og vísindamönnum, sem fæddir eru í jómfrúarmerkinu, hættir líka nokkuð til einsýni og þröngsýni. Þessháttar hindranir á meymennið af „ósamkvæmu" gerð- inni bezt með að yfirvinna. Oft verður meymennið fórnardýr sinnar eigin skynsemi. Vísindaleg samvizkusemi þess getur orðið að hræðslu við nýjungar og þar af leið- andi blindri íhaldssemi. Auðvitað fer því fjarri að útlit allra meymenna sé á eina bók, og ætti varla að þurfa að taka fram að hið sama á við um öll önnur merki dýrahringsins. En hinar dæmi- gerðu „jómfrúr" kváðu yfirleitt vera grannvaxnar, smábeinóttar og hold- skarpar. Andlitsdrættirnir eru skýr- ir, augun liggja djúpt og tillitið er 34. tbi. VIKAN 27

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.