Vikan - 29.08.1968, Síða 36
Kona forsetans
Framhald af bls. 25
hún vann þar daga og nætur í
átta mánuði, meðan maður henn-
ar var í sjóhernum á Kyrrahafi.
Fram að þessu hafði Lady Bird
verið frekar ósjálfstæð. En nú,
þegar hún þurfti sjálf að taka
allar ákvarðanir, aflaði hún sér
töluverðrar þekkingar og sjálfs-
trausts. Hún var 28 ára, og átti
engin börn, svo hún fór að hugsa
að það gæti verið gott að skapa
sér einhverja atvinnu, svo þau
gætu lifað áhyggjulausara lífi.
Svo var það að faðir hennar
borgaði henni út móðurarfinn,
tuttugu og eitt þúsund dollara.
Ef til vill hefir það verið
breyttum lifnaðarháttum og
meira sjálfstrausti að þakka, að
hún nú eignaðist lifandi barn;
eldri dóttirin, Lynda Bird fædd-
ist 19. marz 1943, og aldrei hefir
sézt hamingjusamari faðir í
Washington en Lyndon B.
Johnson.
Nú hefir útvarpsstöðin, sem
Lady Bird keypti endanlega fyr-
ir 30.000 dollara, líka sjónvarps-
sendistöð, og andvirði hennar er
nú 4 milljónir dollara.
1949 var Johnson kjörinn öld-
ungardeildarþingmaður, og þar
með var stjórnmálaferill hans
innsiglaður.
Yngri dóttirin, Luci Baines,
fæddist í júlí 1947.
Lady Bird var hamingjusöm,
henni fannst sem erfiðu árin
væru nú að baki, en í rauninni
voru þau ekki byrjuð.
Eisenhower var forseti, Kóreu-
stríðið var að enda og Johnson
var á kafi í störfum. Þegar Lady
Bird var bent á að hann ætlaði
sér ekki af, þá svaraði hún því
til að hann væri aldrei ánægður,
nema hann sæi ekki út úr því
sem hann hefði að gera.
Hálfum mánuði eftir að hún
sagði þetta, var sjúkrabíl ekið
með ofsahraða til Bethesda
sjúkrahússins; — Johnson hafði
fengið kransæðastíflu. Þegar
Lady Bird kom til hans á spítal-
ann, þar sem hann lá í súrefnis-
tjaldi, rétti hann henni búnt af
peningaseðlum, sem hann hafði
undir koddanum, og sagði:
— Taktu þetta, ástin mín, þú
veizt hvernig þeim er bezt var-
ið. Ég vona að ég komist fljótt
yfir þetta, — en ef ekki, þá er
erfðaskráin mín á skrifborðinu
heima í Austin. En gerðu það
fyrir mig að ná í góðan hjarta-
sérfræðing.
Lady Bird grét ekki, en flýtti
sér að símanum.
Meðan á veikindum hans stóð,
fann Lady Bird það hve vinsæll
hann var. Allsstaðar að fékk
hún samúðarkveðjur, og alveg
jafnt vinir hans og mótstöðu-
menn í öldungardeildinni ósk-
uðu honum af heilum hug bata.
Ungur samstarfsmaður hans, öld-
ungadeildarþingmaðurinn John
F. Kennedy skrifaði: — Öll
Kennedy fjölskyldan biður fyrir
yður. En undir bréfið frá Eisen-
hower vantaði undirskrift. Eis-
enhower hafði sjálfur fengið
kransæðastíflu, áður en hann gat
sett nafn sitt undir bréfið.
Lady Bird segir: — Það var
varla mögulegt að halda honum
í rúminu. Hann vildi hafa mig
hjá sér 24 tíma á sólarhring, og
hann heimtaði að ég væri kát,
héldi mér til, og hann vildi ekki
heyra talað um sjúkdóminn.
Johnson lofaði konu sinni að
halda sér í skefjum í nokkur ár.
Hún hafði keypt lítinn búgarð
í Texas af frænku Johnsons.
Johnson hresstist fljótt, og gat
þá ekki setið á sér og vann enn-
þá meira. — Hvernig þetta var
hægt? sagði Lady Bird þá. —
Það var mjög einfalt. Hann fór
nákvæmlega eftir því sem lækn-
arnir sögðu. Honum var bannað
að reykja, og hann, sem áður
keðjureykti, hefir ekki reykt síð-
an. Hann hefir alveg ótrúlegan
sjálfsaga. Samverkamaður hans
bauðst til að fara í tóbaksbind-
indi með honum, en hann vildi
ekki heyra það nefnt. „Það eru
aðeins vesalingar sem þurfa á
slíku að halda,“ sagði hann. Hann
lét alltaf opinn sígarettupakka
liggja á náttborðinu sínu, og ég
vissi hve hart hann þurfti að
leggja að sér, til að reykja ekki
eina einustu sígarettu á dag.
Þegar Johnson, í árslok 1960,
fór fram sem varaforsetaefni
við hlið Kennedys, var Lady Bird
búin að fá mikla æfingu sem
eiginkona stjórnmálamanns.
— Það var mjög örðug ákvörð-
un, sem Lyndon varð að taka,
þegar hann fór í framboðið með
Kennedy, segir Lady Bird. —
Sem varaforseti þurfti hann að
sinna mörgum trúnaðarstörfum
og koma fram fyrir forsetans
hönd. Venjuleg, dagleg störf voru
eiginlega úr sögunni.
Lady Bird segir: — Þegar við
stóðum samhliða í flugvél for-
setans, hinn hræðilega dag í nóv-
ember 1963 — og ég sá Lyndon
sverja hollustueiðinn, varð ég
hrædd í fyrsta sinn.
Ég varð ein af þeim fáu kon-
um sem fá innsýn í það hve störf
forsetans eru margþætt. Lyndon
fann til með Kennedy, þegar
hann þurfti að taka örlagaríkar
ákvarðanir. Nú er hann sjálfur
í þeim vanda staddur. Ég ein
veit að hann óskaði ekki eftir
þessari stöðu.
Lady Bird hefir síðan, eins og
þá, staðið við hlið manns síns
og reynt að létta honum erfiðið.
Einn vinur forsetahjónanna
komst svo að orði: — Lady Bird
myndi hiklaust, ganga nakin eft-
ir Pennsylvania Avenue (sem
liggur að Hvíta húsinu), ef það
væri honum til hjálpar á ein-
hvern hátt.
Nýja
LADA
saumavélii 132-3 uu 132-4
Gerir saumaskapinn auðveldan og léttan. — Hefur frjálsan arm
og nýjan skyttuútbúnað. — Gerir meðal annars þetta:
MUNSTURSAUMAR
SIGG-SAGGSAUMAR
GERIR HNAPPAGÖT
og STOPPAR í
Er dýrasta vélin á markaðinum, tvær gerðir, kostar kr. 6.040,00
og 6.900,00 (með söluskatti). — Eins árs ábyrgð. — Kennsla. —
Góð varahluta- og viðgerðarþjónusta. — Hyggin kona velur LADA.
Umboð ó íslandi:
V
*
HVERFISGÖTU 37, SÍMI 18994.
— Fyrstu þrjú árin í Hvíta
húsinu, eru fyrir mér eins og
niðdimm þoka, segir forsetafrú-
in, frekar stuttaralega.
Hún hefir reynt að vera ó-
þvinguð, og talað við fólk um
þá hluti, sem hún hafði bezt vit i
á. (Ég er bara sveitakona, segirl
hún oft).
Það hefir verið skrifað margt j
óhagstætt um forsetafrúna í|
blöðunum, eins og þegar ein
kröfugangan út af Víetnam stríð- '
inu fór að hermálaráðuneytinu.
Þá var sagt að aðaláhyggjur frú-
arinnar hefðu verið út af rusl-
inu sem fólkið skildi eftir á göt-
unum, og hvað það myndi kosta
að hreinsa það.
Það eru aðeins illkvittnir
blaðamenn, sem slíkt láta frá
sér fara og það kom í ljós að
konur Bandaríkjanna höfðu
samúð með henni, því að í þrjá
daga streymdu samúðarbréfin til
hennar, eftir að þessi háðulegu
ummæli komu í blöðunum.
Lyndon Johnson leitar alltaf
til konu sinnar, þegar þreytan
þjáir hann. Hann treystir henni
og dáir hana, en hann talar ekki
mikið um það; hann er svo van-
ur umhyggju hennar, í þrjátíu
og fjögra ára hjónabandi.
— Það er ekki vegna óhóf-
legrar vinnu, sem Lyndon nú
dregur sig í hlé, það er frekar
vegna þess að hann hefir aldrei
fengið viðurkenningu fyrir störf
sín í þágu ríkisins, segir hún.
f 34 ár hafa Johnson hjónin
sofið í sama rúmi, og hún hefir
ekki dregið dul á það. Lady Bird
segir að maðurinn noti þá tæki-
færið til að segja henni það sem
á daginn hefir drifið, og spyrja
hana um álit hennar því við-
komandi.
Nú eru liðin þrettán ár, síðan
Johnson fékk bata eftir hjarta-
áfallið og hann verður sextugur
á þessu ári.
Fyrir Lady Bird hlýtur það
að hafa verið ákaflega mikill
léttir, þegar maður hennar gaf
ekki lengur kost á sér í forseta-
embættið. Nú telur hún dagana
þangað til hún kemst aftur heim
á búgarðinn í Texas ....
Hvíta húsið
Framhald af bls. 13
Hvíta húsið er ekki einungis
staðurinn, þar sem forsetarnir
fjalla um lands- og heimsmál.
Það er líka heimili hans og fjöl-
skyldu hans, en ekki hafa allir
forsetar kunnað jafnvel við það
heimili. Harry Truman líkti því
við stórt hvítt fangelsi. Theodore
Roosevelt sagði einu sinni að það
væri „ekki hægt að búa í Hvíta
húsinu, þar er manni stillt út.“
Kennedy tók búsetunni þarna
með jafnaðargeði og húmor: ,,Ég
á hér fallegt heimili, skrifstofan
er á næstu grösum og launin vel
lífvænleg." Og Lyndon B. John-
son hefur af dæmigerðri hrein-
36 VIKAN 34- tw-