Vikan


Vikan - 29.08.1968, Side 39

Vikan - 29.08.1968, Side 39
hjónin haft allt að hundrað og fimmtíu gestum. í herbergi þessu hafa Banda- ríkjaforsetar skálað við keisara, kónga og forsætisráðherra og far- ið fögrum orðum um ævarandi vináttu hlutaðeigandi landa. En stundum hafa forsetarnir verið gestrisnir um of, að áliti þegn- anna. Martin van Buren, áttundi forseti Bandaríkjanna, tapaði endurkjöri fyrst og fremst vegna þess, að sagt var, að hann hafði orðið fyrir ákafri gagnrýni fyrir að gefa gestum sínum frönsk vín og franska rétti á gulldiskum. Johnson forseti þarf ekki að hafa áhyggjur af svoleiðis, nóg er víst samt. Yfirkokkur hans er franskur og bezti borðbúnaður hússins skartar bæði með gull og silfur. Enginn fettir fingur út í það. En frönsk vín eru ekki lengur drukkin í húsi þessu. Johnson reynir að hafa áhrif á landa sína með góðu fordæmi. Hann hefur hvatt þá til að drekka bandarísk vín og tilkynnti jafn- framt að svo væri gert í Hvíta húsinu. Johnson segir ástæðuna vera að minnkandi innflutningur franskra vína myndi gera greiðslujöfnuð ríkisins hagstæð- ari, og Bandaríkjamenn hafa hlýtt áskorun hans. En sumra manna mál er að hraðminnkandi vinsældir de Gaulles í landinu eigi hér nokkra sök á. Fleiri merkileg herbergi eru auðvitað í Hvíta húsinu. Á fyrstu hæð er eitt sem margir Banda- ríæjamenn þekkja, því þaðan var Roosevelt vanur að tala til þjóð- arinnar í stríðinu. Voru það köll- uð „arinkrókssamtöl.“ Þessi ar- inn er sérstakur að því leyti, að hann er sá eini í húsinu sem reykir svo illa að hann er ónot- hæfur. Annað herbergi sem hver Bandaríkjamaður þekkir er svefnherbergi Lincolns forseta. Raunar er hæpið að Lincoln hafi nokkru sinni dvalið þar nætur- langt, en hitt þykir efalaust að hér hafi hann undirritað lögin um afnám þrælahaldsins. Það kvað vera reimt í þessu herbergi, og á Churchill þessvegna að hafa flúið það, er hann gisti það einu sinni í stríðinu. Sögðu þjónar hússins svo frá, að hinn brezki stríðsleiðtogi hefði staðið upp um miðja nótt, klæddur rauðum morgunslopp og með vindil í munni og tvær litlar töskur sína undir hvorri hendi, og farið þvert yfir ganginn inn í svefnsvítu drottningarinnar. Þar festi hann svefn og var síðan látinn sofa þar, er hann kom í heimsókn síð- ar. Það eru óskráð lög að þau fjór- tán herbergi, sem skoðast einka- bústaður forsetafjölskyldunnar og staðsett eru á annarri hæð í austurenda hússins, skuli ekki sýnd opinberlega. Það er því sjaldgæft að birtar séu myndir úr þessari álmu eða frá gestaher- bergjunum sjö á þriðju hæð, en skrifstofu forsetans á fyrstu hæð þekkja flestir Bandaríkjamenn vel. Það líður naumast svo dægur að forsetinn sé ekki myndaður þar ásamt einhverjum hinna mörgu gesta, erlendra og inn- lendra, sem heimsækja hann dag hvern. Skrifstofa forsetans er spor- öskjulöguð með glugga út að garðinum. Þar er stórt skrifborð, margir hægindastólar, nokkrir sófar og einn ruggustóll. Johnson hefur nefnilega mikla elsku á ruggustólum, ekki síður en Kennedy. Á Kennedys tíð bar það oft við að inn til hans storm- uðu börn hans, Caroline og John, til að tala við pabba um hitt eða þetta. Johnson er mikið gefinn fyrir hunda og hefur einn þeirra alltaf hjá sér á skrifstofunni. Sá sem nú nýtur þeirrar náðar er kallaður Yuki, af óvissum upp- runa, því Luci forsetadóttir fann hann einan og yfirgefinn á ben- sínstöð í Texas. Truflanir af hálfu leikfullra barna og hunda er nokkuð sem tveir síðustu Bandaríkjaforsetar taka ekki alvarlega. Hver starfs- dagur þeirra er nógu alvarlegur samt. Tákn þeirrar alvöru er hvíti síminn sem stendur á skrif- borðinu þeirra. Kennedy lét setja hann þar og Johnson hefur ekki síður notað hann. Hvíti síminn fylgir forsetanum hvert sem hann fer. Með honum getur hann stöðugt staðið í sam- bandi við nánustu ráðgjafa sína í hermólum og stjórnmálum. Bandaríkjaforseti verður að vera viðbragðsfljótur, hvað sem í skerst. Með því að styðja á einn hnappinn í símatöflunni fær hann beint samband við skrifstofu for- sætisráðherra Sovétríkjanna í Kreml. Ekki er vitað hve oft hefur verið stutt á þennan hnapp, en vitað er að Hvíta húsið og Kreml töluðust við í fyrra, þeg- ar allt var að verða vitlaust fyrir Miðjarðarhafsbotni. Þegar forsetinn yfirgefur skrif- stofuna, er hvíti síminn borinn með honum. Hann er fluttur til svefnherbergis hans þegar hann fer að sofa og settur í þyrlu hans eða þotu þegar hann flýgur frá Washington. Hann er settur við hlið hans undir borðið þegar hann heldur gestum opinbera veizlu. Starfið yfirgefur aldrei forseta Bandaríkjanna. Hvíti síminn er orðinn tákn þess valds, sem gefið er og þeirr- ar ábyrgðar sem lögð er á herðar þeim manni, er kjörinn hefur verið leiðtogi bandaríska stór- veldisins. í hinum sögufrægu her- bergjum á annarri hæð Hvíta hússins geta Bandaríkjamenn og gestir forsetans í ró og næði kynnt sér sitt af hverju úr for- tíð landsins. Hvíta símann sjá flestir þeirra aldrei. ☆ Sæiuríki Framhald af bls. 17 út í herra Blossom. — Ég meina, hann er í verksmiðjunni allan daginn. — Hvað meinarðu? — Þessi tvö módel sem hann hefur. Þegar hann fer með þau inn í einkaskrifstofuna. Ambrose minntist þeirrar rauðhærðu, Amalíu, og svipsins á andliti Amalíu. Tvisvar hafði hún beint þessum svip að honum og hann hafði fundið til ákafrar freist- ingar til að svara; en í bæði skiptin hafði hann verið að lesa bækur um líkamsrækt og and- legar æfingar, svo það hæfði ekki eins og á stóð. Amalía, 4 A, skál númer þrjú. Og svo Ruby, sú ljóshærða, 32 W junior miss. — É’g meina, þegar þær eru hjá honum í þessari litlu skrif- stofu, sjáið þér til, ég meina — verðið þér aldrei afbrýðisöm? —> Það vill svo vel til að ég veit, svaraði frú Blossom freð- píulega, — að herra Blossom er öruggur með Kleópötru. Hún gekk hringinn í kringum Am- brose þar sem hann laut yfir saumavélina. — Hefurðu nokk- urn tíma séð herra Blossom ein- an með annarri hvorri þessara stúlkna? — Stundum — stundum, er ég hreinsa skrifstofugluggana — get ég ekki að því gert. — Kíkirðu á glugga? Það skal ég segja herra Blossom. — Fyrirgefið, sagði Ambrose. — Hvað sérðu, þegar þú kík- ir? — Hann er sannarlega örugg- ur. Hann horfði á fætur hennar. Hún var eins og fimur köttur er hnitaði hringa í kringum hann og nálgaðist stöðugt. Hann reyndi að einbeita sér að saumavélinni, en var orðinn skjálfhentur. — Hvað um þig, Ambrose? spurði hún ögrandi. — Ertu hrif- inn af stúlkum? — Ja, mér þykir gaman að horfa á þær. En ég get aldrei komið við þær. — Hversvegna ekki? Hann hafði ekki hugsað sér að segja þetta svona, en það rudd- ist fram: — Ég er of hræddur. Hún snarstanzaði. Hún gnæfði yfir honum. Hann leit upp. Hún brosti og gekk hægt aftur á bak í áttina að sófanum. — Komdu hingað, Ambrose. Hann hikaði. Hún benti. Nújæja, hún var kona hús- bóndans og skipanir eru skip- anir. Ambrose rétti úr sér og gekk að sófanum, svo settist hann aftur hjá henni. Hvar býrðu? spurði hún. — Hér og þar. Það er alltaf verið að reka mig út af því að ég er á eftir. — Eftir hverju? 34. tbi. VIKAN 39

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.