Vikan - 29.08.1968, Page 46
VIKAN OG HEIMILIÐ
ritstjóri:
Gudridur Gisladóttir.
MARQSKONAR
PÖNNUKÖKUR
HERRAGARÐSTERTA
Bakið þunnar pönnukökur úr grunndeiginu
og setjið á eldfast fat með marmelaði eða
sultu ó milli. Gerið marengsdeig úr 2 eggja-
hvítum, 4 matsk. fingerðum strósykri og 1
tsk. kartöflumjöli. Þeytið eggjahvíturnar stífar
og bætið sykrinum og kartöflumjölinu var-
lega í. Smyrjið yfir pönnukökutertuna og bak-
ið í meðalheitum eða lítið heitum ofni (175
st.) í 5—8 mín., eða þar til eggjahvfturnar eru
gulbrúnar.
KARTÖFLUKÖKUR
8 meðalstórar kartöt1--" eða ca. 600 gr, 1
egg, 5 dl mjólk, 1/2 tsk. salt, IV2 dl hveiti,
feiti til að steikja úr.
Þeyt:ð saman egg, mjólk, salt og mjöl í
STEIKTAR PÖNNUKÖKURÚLLUR
3 egg, 1V2 tsk. salt, 4 dl hveiti, 1 I mjólk,
feiti til að steikja úr. Pönnukökurnar bakað-
ar á venjulegan hátt. Fylling: 200—300 gr
hakkað kjöt, 2 harðsoðin egg, 1 gulur lauk-
ur, 2—3 matsk. smjörlíki, salt, pipar. Til að
velta upp úr egg, rasp. Steikt í smjöri, smjör-
líki eða olíu.
Flysijið og saxið laukinn smátt og sjóðið í
feitinni ó pönnu, myljið kjötið ofan í og brún-
ið saman. Saxið eggið og bætið því i þegar
kjötið er fullsteikt, kryddið með salti og pip-
ar. Setjið farsið á pönnukökurnar og rúllið
þeim sarnan. Skerið í sundur í miðju, ef þær
eru óþægilega langar. Penslið með léttþeyttu
eggi og veltið upp úr raspi. Djúpsteikið þær
síðan í feitinni,
Flestir eiga sína pönnukökuuppskrift, og yfirleitt eru þær
allar góðar. Það er uppskrift af íslenzku pönnukökunum
okkar, mismikið borið í þær eins og gengur, en allar svip-
aðar og bornar fram á svipaðan hótt, annaðhvort upprúll-
aðar með sykri eða brotnar saman með þeyttum rjóma og
sultu. Hér á eftir eru nokkrar uppskriftir af kökum, sem
bakaðar eru á pönnu, sumar likar okkar kökum, sem kall-
aðar eru crepes, aðrar þykkari og sumt lummur.
PONNUKOKU-
RÚLLA
Grunndeig úr 2
eggjum. Fylling 1
stór pakki fryst spín-
at, salt, múskat, eða
1 dós niðursoðnir tó-
matar, 6 sneið'ar
harðsteikt bacon, 2
matsk. smásöxuð
púrra eða graslauk-
ur, salt, svolítið tím-
ían.
1. Þeytið saman
deigið eins og sagt er
í grunnuppskriftinni.
Látið smjörbita f
ofnskúffuna og látið
hann brúnast, heliið
deiginu í og bakið
við 225 st. hita. Hell-
ið kökunni síðan á
flatt fat eða málm-
pappír.
2. Smyrjið fylling-
una á. Spínatið þarf
bara að þiðna og
kryddast áður, tóm
atfyllingin er gerð
þannig að öllu er
blandað saman og
látið sjóða nokkrar
mínútur við lítinn
h;ta.
3. Kökunni rúllað
saman eíns og rúllu-
tertu, sett aftur í
ofninn og gegnhituð
eða gratineruð með
rifnum osti ofan á.
4. Skerið heita
pönnukökurúlluna
inni á borðinu, svo
að stykki kólni ekki.
Kalt salat er gott
með.
CREPES, EÐA ÞUNNAR PÖNNUKÖKUR
Þessar pönnukökur má fylla ó ýmsan hátt,
en þetta er grunnuppskriftin: 2 egg, 2 dl
þunnur rjómi (blanda af mjólk og rjóma), 2
dl vatn, 1 dl hveiti, 1/2 tsk. salt, 1 matskeiS
brætt smjör eða smjörltki.
Þeytið saman eggin og helminginn af vökv-
anum, bætið hveitinu í og saitinu og haldið
ófram að þeyta þar til deigið er jafnt. Setjið
þó afganginn af vökvanum og brædda smjör-
ið saman við. Bakið þunnar pönnukökur á
lítilli pönnukökupönnu. Setjið fyllinguna ó
hverja köku og annaðhvort rúllið þeim sam-
an eða brjótið. Síðan má baka þær með osti,
en það fer eftir því hvað er ( þeim, eða bera
þær logandi fram sem eftirrétt. Góðar fyll-
ingar í þessar pönnukökur, ef þær eiga að
notast sem forréttur er t. d. skelfiskjafningur,
sveppajafningur, kjötjafningur með mjög smó-
skornu kjöti, reyktur lax skorinn í lengjur
með söxuðu eggi og nægu dilli. í eftirrétt
mó nota alls konar óvexti, bæði blandaða eða
eina sér, t. d. banana og alls konar ber. Séu
þær bornar fram logandi eru þær brotnar
saman tvisvar eftir endilöngu og setar ó eld-
fast fat og fíngerðum strásykri stráð yfir.
Annaðhvort inn í þær eða ó milli þeirra má
setja jarðarberjasultu eða heil ber í sykurlegi.
Síðan er 2 matsk. af bræddu smjöri hellt yfir
og þetta hitað yfir litlum hita, helzt á spritt-
lampa, sem síðan er borinn inn með kökun-
um á. 1 dl hvítvín og ca.. 10 cl koníak er
blandað saman og hellt yfir kökurnar þegar
þær eru heitar á pönnunni og um leið og þær
eru bornar fram (sem verður að vera fljótt)
er kveikt í víninu og látið loga þar til slokkn-
ar, en þá eru kökurnar borðaðar.
ÞYKKARI PÖNNUKÖKUR
Úr þessu degi má baka pönnukökur, lumm-
ur og ofnpönnukökur.
2 egg, 8 dl mjólk, 4 dl hveiti, 1/2 tsk. salt,
1 matsk. brætt smjör eða smjörllki.
Þeytið saman eggin og helminginn af mjólk-
inni, bætið hveiti og salti í og þeytið þar til
deigið er jafnt. Þá er hinn helmingur mjólk-
urinnar settur i og brædda smjörið. — Látið
standa í 5 mín. áður en bakað er ur deiginu.
pönnukökudeig. Flysjið kartöflurnar og rífið
á rifjárni í deigið rétt áður en bakað er úr
því, hrærið vel. Brúnið feitina á pönnunni og
setjið ca. 3 matsk. af deigi í hverja köku,
brúnið á báðum hliðum. Bornar fram strax
með „tyttuberjasultu" eða steiktu bacon.
KARTÖFLULUMMUR UR DUFTI
4 dl kalt vatn, 1 dl kartöflumós úr pakka,
1 tsk. salt, e. t. v. rifið múskat, 3 matsk. brætt
smjör eða smjörlíki, 2V2 dl hveiti, 4 dl mjólk.
Þeytið kartöflumósuduftið út í vatnið, bæt-
ið saltinu í og síðan hveitinu, brædda smjör-
inu og mjólkinni til skiptis. Bakið lummur
eða meðalþunnar pönnukökur, og notið svo-
lítið af feiti á pönnuna svo að betri litur verði
á kökunum. Gott að bera fram með bacon,
skinku, pylsum, brúnuðum lauk, sveppum,
kjötfarsréttum, eða með berjum eða eplamósi.
BLINI - RÚSSNESKAR LUMMUR
15 gr ger, 2 dl mjólk, 1 egg, V/2 dl heil-
hveiti, 1 dl hveiti, 1 tsk. salt, 1 dl pilsner.
Hrærið gerið út í svolitlu af mjólkinni,
blandið eggjarauðunni, hveitinu, saltinu og af-
ganginum af mjólkinni i. Hrærið deigið slétt
og bætið pilsner í. Þekið deigið og látið lyfta
sér í klukkutíma. Setjið þá stífþeytta eggja-
hvítu saman við. Bakið eins og lummur, og
hafið hitann ekki of mikinn, svo að liturinn
verði Ijósbrúnn. Setjið lummurnar á heita
diska með svolitlu af kaviar á hverja. Súr
rjómi og smásaxaður laukur borinn með.
AMERÍSKAR PÖNNUKÖKUR
1 egg, 21/2 dl súrmjólk, 2V2 dl hveiti, 1
tsk. lyftiduft, 1 tsk. sykur, 1/2 tsk. salt, 2 mat-
skeiðar brætt smjör eða smjörlíki.
Þeytið saman egg og mjólk. Blandið þurru
efnunum í og hrærið, bætið brædda smjörinu
í, en látið það kólna aðeins áður. Smyrjið
venjulega steikarpönnu og hitið, bakið svo 3
litlar pönnukökur í senn á pönnunni, ca. 1
matsk. deig í hverja. Bakið gulbrúnar og
haldið þeim öllum heitum, þar til á að nota
þær. Bornar fram með steiktum pylsum eða
bacon, eða með sýrópi.