Vikan - 29.08.1968, Síða 47
9 SÍTRÓNUSAFI lokar stórum og opnum svita-
holum. Notið annaðhvort hreinan safa úr sítrónu
eða blandið hann með soðnu, köldu vatni. Þeg-
ar þið hafið hreinsað húðina á venjulegan hátt,
er bómull vætt í sítrónusafanum og húðin nudd-
uðu eða klöppuð með honum í staðinn fyrir dýrt
andlitsvatn. Bezt er að búa til lítið af þessu vatni
í hvert skipti, svo að ekki þurfi að geyma það.
Góð hlutföll er t. d. V4 úr sítrónu og nokkrar
tsk. vatn.
9 SÍTRÓNUSAFI lagar gráleita húð kringum
munnvikin og á hálsinum. Notið þá sítrónusafa
sem andlitsvatn á kvöldin eftir að húðin hefur
verið hreinsuð, en sé húðin þurr eða meðalþurr,
þarf að nota töluvert af vökvakremi á eftir.
9 SÍTRÓNUSAFI gerir þreytta og gamla húð
ferskari. Þá á aðeins að nota olíuna úr sítrónu-
berkinum, því að safinn er of sterkur fyrir eldri
húð. Látið hálft sítrónuhýði, sem hefur verið
hreinsað vel að innan, liggja í bolla með olívu-
olíu yfir nótt. Kreistið börkinn dálítið, svo að
olían úr honum renni út. Berið vökvann svo á
andlitið með mjúkum bursta, en hann stífnar
ekki á andlitinu eins og andlitsgríma. Þvegið af
eftir 10 mínútur með volgu vatni. Bezt er að
gera þetta á kvöldin, áður en farið er að hátta,
því að þá er hægt að bera næringarkrem á strax
á eftir.
9 SÍTRÓNUSAFI út í baðvatnið heldur húðinni
hvítri og fallegri. Við þurra og meðalþurra húð
má blanda honum saman við venjulega bað-
olíu.
t
SÍTRÓNAN
NotiiO á 15 ve§u
til snyrtingar
þið notið ekki gúmmíhanzka. Nuddið neglurnar
með sítrónunni áður en hendurnar eru þvegnar.
9 SITRONUSAFI gerir hendurnar hvitar og
mjúkar, og flestum húsmæðrum veitir ekki af
einhverju slíku. Blandið sítrónusafa með salti og
olívu-olíu og nuddir hendurnar með því. Þvoið
hendurnar eftir 10 mínútur úr volgu vatni með
möndluklíði I.
9 SÍTRÓNUSAFI er heillaráð við hrjúfum, grá-
um og hrukkóttum olnbogum. Setjið hvorn oln-
boga ofan í hálfan sítrónubörk og haldið þeim
þar góða stund. Nauðsynlegt er að nota vökva-
krem á eftir, en olnbogarnir verða á stuttum
tíma mjúkir og fallegir.
9 SÍTRÓNUSAFI heldur höndunum hreinum.
Hafið alltaf sítrónuenda við eldhúsvaskinn, ef
9 SÍTRÓNUSAFI, sé hann blandaður með magn-
esiudufti tekur gráleitan lit af höndunum. Það
þarf 5 matsk. af duftinu og 1 matsk. af sítrónu-
safa, og þessu er smurt á hendurnar. Fjarlægt
eins og sagt var í næstu grein hér á undan.
9 SÍTRÓNUSAFI þurrkar feitt hár, og notið
hann í síðasta skolvatnið.
9 SÍTRÓNUSAFI lýsir líka skolleitt hár. Eftir
síðustu skolun er hárið nuddað með safanum af
1 sítrónu, meðan það er enn vott. Látið liggja á
í 5 mínútur og síðan skolað vel.
9 SÍTRÓNUSAFI lagar gráleitan glans á feitri
húð á nefinu. Nuddið með sítrónusneið og síðan
með bómull bleyttri í köldu vatni.
9 SÍTRÓNUSAFI gerir blakka og gráleita húð
hvítari. Sé húðin þurr má blanda svolítilli olívu-
olíu í sítrónusafann. Sett á eins og andlitsgríma,
en ekki farið of nærri augnaumbúnaðinum. Látið
liggja á í 10 mínútur og síðan þvegið af með
köldu vatni.
9 SÍTRÓNUSAFI lýsir freknur. Setjið þá dropa
af óblönduðum sítrónusafa á freknurnar. Við-
kvæm húð þolir ekki að þetta sé haft lengi á,
en það verður það helzt að vera, eigi árangur
að nást. Nóg af vökvakremi verður að bera á
húðina á eftir.
9 SÍTRÓNUSAF! jafnar lit húðarinnar, þegar
sólbruni og brúni liturinn er að hverfa af húð-
inni. Gerið andlitsgrímu þannig, að nokkrir sí-
trónudropar eru hrærðir út í eggjarauðu. Látið
grímuna stífna á andlitinu í 15 mínútur. Þveg-
ið af með volgu vatni, en gott er að nota vökva-
krem á eftir.
9 SÍTRÓNUSAFI hreinsar feita húð. Þá er hon-
um blandað í eggjahvítu og er því smurt á and-
litið með bursta. Stífnar á 15 mínútum og er
síðan þvegið af með ylvolgu vatni.
9 Þá hefur ekki verið minnzt á eitt mikil-
vægasta atriðið, en það er hve fegrandi sítrónan
getur verið, með því að borða nóg af henni.
Hún er óvenjulega auðug af C-bætiefni, en húð-
in verður ferskari og augun skærari, hárið meira
lifandi og margt fleira mætti telja upp, ef l(k-
aminn fær nóg af bætiefnum.
'
Hirzla
í sumarbústaðinn
Það er ekki víst að mikið sé af skápum í sumarbústaðnum,
en gott er að hafa allt samt á sínum stað. Allir eiga af-
ganga af bómullarefnum og geta með svolítilli smekk-
vísi búið til svona vasateppi. Það er aðeins hengt upp á
hornunum með litlum hringum. Stærð grunnstykkisins er
hér 60x80 cm og er það faldað með sterkum földum. Vas-
arnir eru gerðir úr afgöngum í þeim lit og munstri, sem
vel á saman, og eins og þið sjáið eru þeir sniðnir mis-
stórir og af ýmsri lögun, til að mynda tilbreytilega og
skemmtilega heild. Ef ekki er því þykkara efni í grunn-
stykkinu, má fóðra það með vliseline millifóðri af gróf-
ustu gerð.
34 tbl VTKAN 47