Vikan - 29.08.1968, Qupperneq 48
BRÚÐKAUP HÁRGREIBSLUKONUNNAR
,Nýlega fór fram í litlu þorpi í námunda við
Paris brúðkaup, sem mikla athygli vakti.
Ekki stafaði það af því, að brúðhjónin væru
heimsfræg, heldur húsbændur brúðarinnar.
Ilún heitir Claudia Ettori og er 24 ára göm-
ul. Hún er hárgreiðslukona Elizabethar Tay-
lor og hefur verið það í þrjú ár.
Eins og gefur að skilja er frægri leikkonu
eins og Liz lífsnauðsyn að vera vel tilhöfð
um hárið. Lengi vel átti hún í erfiðleikum
í þessum efnum. Loksins réði hún í þjónustu
sína ítalska stúlku, sem hárgreiðslustofa þar
í landi útvegaði henni og mælti eindregið
með. Og Liz varð ekki fyrir vonbrigðum.
Hún segir, að líf sitt hafi stórum batnað
siðan Claudia Ettori kom til þeirra hjóna.
„Hún er ekki aðeins hárgreiðslukonan mín,“
segir Liz, „heldur einnig fóstra barnanna
okkar. Mér finnst hún alltaf vera litla systir
mín.“
Þegar þau hjónin dvöldust á eynni Sardin-
48 VIKAN 34- tbl-
íu við töku nýrrar kvikmyndar í fyrrasum-
ar, varð Claudia ástfangin af ljósmyndara,
Gianni Bozzacchi. „Þið giftið ykkur bara
strax,“ sagði Liz við Claudiu. „É'g skal sjá
um það allt saman. Það skal verða stórfeng-
legt brúðkaup. En þú veröur að lofa að fara
ekki svo langt frá mér, að þú getir ekki
komið og lagað á mér hárið!“
Liz stóð svo sannarlega við loforð sitt.
Ekkert var til sparað. Brúðarkjóllinn kost-
aði hvorki meira né minna en 120.000 krón-
ur og var teiknaður af frægum tízkuteikn-
ara í París. Brúðhjónunum var ekið í dýr-
asta Rolls Royce-inum, sem Burton á. Þau
hjónin voru sjálf svaramenn og dætur þeirra
brúðarmeyjar.
En líklega reynist Claudiu erfiðara að
halda sitt loforð, því að maðurinn hennar
er frægur ljósmyndari á Ítalíu og vill helzt
setjast að þar. ☆
A cfri myndinni cr hárgreiðslukonan, Claudia Ettori,
í bniðarkjólnum, seni kostaði 120 jtúsund krónur.
I.iz Taylor hcldur í slörið. Að neðan sjást hrúð-
hjónin og svaramennirnir, Liz og Burton.