Vikan - 12.09.1968, Blaðsíða 48
1 u Lll U
i LIEJLJU
í LILUU
1 □Luu
Líljubindi eru betri
Fást í næstu búS.
hans full af vatni. Honum hafði
verið byrlað inn eitur, sem átti
að vera nóg til að drepa fjölda
manns; fimm skot höfðu hæft
hann og Jusupov hafði meira að
segja slegið hann í höfuðið með
kylfu í örvæntingu sinni, til
þess að vera nú alveg öruggur.
Þrátt fyrir allt þetta var
dauðaorsökin druknun.
Sögunni um sambandið milli
keisarafjölskyldunnar og Ras-
puins lauk ekki með dauða hans.
Tengdasonur Rasputins, Solovj-
ov, átti óljósan en óvéfengjan-
legan þátt í að reyna að bjarga
keisarafjölskyldunni úr klóm
bolsévikka, eftir októberbylting-
una 1918. Hann kvaðst hafa kom-
ið hluta af auðæfum fjölskyld-
unnar undan og undirbúið flótt-
ann rækilega. Keisaradrottningin
bar mikið traust til hans og konu
hans, en ýmislegt bendir þó til
þess, að Solovjov hafi verið í
slagtogi við bolsévikka. Og hálfu
öðru ári eftir dauða Rasputins,
var keisarafjölskyldan skotin í
kjallara kaupmannshúss í Jeka-
terinburg, sem nú heitir Sverdl-
ovsk.
☆
Margot Fonteyn . . .
Framhald af bls. 11.
hai. Margot gekk í ballettskóla frá
því hún var fjögurra ára, og hafði
alltaf fyrsta flokks kennara, mest-
megnis Rússa. Þegar hún var 13
óra fluttist hún heim til Englands,
og þá þegar var framtíð hennar
ráðin. Hún var ákveðin í þvi að ná
langt í list sinni, og varð fljótlega
ein af fremstu stjörnum Londonar-
ballettsins. Hún var ekki nema tutt-
ugu og tveggja ára, þegar nafn
hennar stóð í „Wha is who", og
árið 1956 aðlaði Elísabet drottning
hana.
Um þetta leyti sagði Margot: —
Ég ræð ekki yfir lífi mínu, það til-
heyrir dansinum. Svo bætti hún við:
— Allar óskir mínar hafa rætzt.
En þetta var auðvitað ekki rétt.
Þegar hún kynntist Roberto Arias
var hún fögur kona. Hún hafði
skæran hörundslit, sem einkennir
brezkar konur, kolsvart hár og
dökkbrún augu. Kunnáttumaður um
dans lýsti vexti hennar þannig: —
Líkami hennar er dásamlegur, fjað-
urmagnaður, limir hennar guðdóm-
lega fagurlega formaðir. .
Hún bjó rétt hjá Covent Garden
óperunni, sem var vinnustaður
hennar, safnaði gömlum kopar-
stungum, lifandi köttum og postu-
línsköttum, og umgekkst aðeins
móður sína og vinnufélaga. Hún
dáðist líka að fatnaði frá Dior, og
hún varð fljótlega svo fræg að
Dior klæddi hana endurgjaldslaust.
Þetta var konan sem Roberto
varð ástfanginn af við fyrstu sýn.
Hann var mjög glæsilegur maður,
minnti helzt á glæsilegar hetjur
þöglu myndanna, mjög greindur,
our 'ar9® c0nta\ning
PStTv"u n'tunw/^nler '?,e the \ead\h9
.11 read ^e’ íor auwm QUeWe>nU on
Ue9eO^'o^°0.000
X^XPP**** -
tiS“^of9°0118' _____
tað®■,e/2.
i9e ’ ic/2.
dfSsssssss
ata\o9ue t0
r\nt nar00"
\se Pr'n
adress....
IIAN1LJÍIA8 HDSMJEBUR
IE1JA IIALS
SULTUR - ÁVAXTAHLAUP
MARMELAÐI - SAFTÍR
MATARLÍTUR - SÓSULITUR
EDÍKSSÝRA - BORÐEDIK
TÓMATSÓSA - ÍSSOSUR
VALUR VANDAR VÖRUNA
- Sendum um allt land
VALUR - efiaoerO
Box 1313 - Sími 40795 - Reykjavík
48 VIKAN 36- tbl-