Vikan


Vikan - 12.09.1968, Blaðsíða 37

Vikan - 12.09.1968, Blaðsíða 37
Sængur fatnadur sem ekki þarf ð strauja '"U'i' áj-'ij*r « Mjög athyglisverð nýjung, sem sparar tíma og erfiði. Höie Krepp er úr 100% bómull, litekta, þolir suðu og er mjög endingargott. Fæst sem tilbúinn sængurfatnaður eða sem metravara. Viðurkenndar gæðavörur, sem fást í helztu vefnaðarvöruverzlunum landsins. EINKAUMBOÐ: MATS WIBE LUND jr. HRAUNBÆ 34, REYKJAVÍK, SÍMI 81177 Eusebio.... Framhald af bls. 27. breytt verulega um leikaðferð. Á fyrstu árum sínum með Benfica var hann fyrst og fremst einstaklingshyggju- maður. Hann gat allt sjálfur. ITann tók aukaspyrnur hvar sem var á vellinum og horn- spyrnur beggja megin frá. Með auknum þroska skyldi hann ])ó, að því meiri sam- vinna, sem væri milli leik- mannanna, þeim mun meiri árangurs væri að vænta. Sigur liðsins varð sigur hans. Upp úr þessum sinnaskiptum Eu- sebios spratt hið frábæra sam- starf hans og hins hávaxna miðherja Benfica, Torres. Þeir urðu, er stundir liðu, sem einn maður. — Torres stekk- ur upp ur þvögunni og skall- ar knöttinn fyrir fætur Euse- bios, og þá er ekki að sökum að spvrja, knötturinn liggur í netinu. Nú er svo komið að sagt er, að hvorugur geti án hins vegar. Eigi annar þeirra slæman leik, sé hinn eins og vængbrotinn fugl. E<r efast ekki um að hcr er of djúpt tekið í árinni, en fátt er á- nægjulegra að sjá á knatt- spyrnuvelli, en fúllkominn skilníng leikmanna á hreyfing- mn hvers annars. Eusebio er 173 cm á hæð og vegur 75 kíló. Af þessum tölum má sjá, að hann er þéttur á velli. Þrátt fyrir þreldcika sinn er hann ekki svifaseinn. Hann er eldsnögg- nr, og bessi 75 kíló hans eru einungis bein og vöðvar. Það er ekki tilviljun að Eusebio er líkt við pardusdýrið. Eusebio er kvæntur fallegri stúlku frá heimbæ sínum, sem heitir Flora. Þau búa í nota- legri íbúð í úthverfi Lissabon. Þar eyðir Eusebio frístundum sínum með konu sinni, sem hefur vanið Eusebio af James Bond bókalestri og fengið hann til að lesa eitthvað upp- bvggilegra. Tekjur Eusebios hjá Benfica eru taldar vera um 350.000 ísl. krónur á mánuði, og að auki hefur hann drjúgar tekjur af auglýsing- um, ævisögu sinni og fleiru. Hann hefur sagt að auð sinn ætli hann fyrst og fremst að að nota til þess að mennta börnin sín. Þau eiga að njóta þess, sem hann fór á mis við í æsku. Helztu hátíðabrigðin á heimili Eusebios eru, þegar bezti vinur hans, Coluna, hinn aldni fyrirliði Benfica, kemur og snæðir með hjónakornun- um. Eitt síðasta afrek Eusebios var leikurinn við Varzim í port úgölsku meistarakeppn- inni núna í vor. Benfica vann leikinn 8—0. Eusebio skoraði sex af mörkunum, og meira að segja öll í röð. Benfica varð Pórtúgalsmeistari enn einu sinni og Eusebio varð markahæstur fimmta árið í röð! Að þessu sinni skoraði liann 42 mörk í 26 leikjum. Tilefni þessarar greinar er að sjálfsögðu væntanlegur Ieikur Benfica og Vals í Ev- rópukeppninni þann 18. sept- ember næstkomandi. Er það okkur ásjáendum mikið fagn- aðarefni, að fá tækifæri til að sjá Eusebio og Benfica leikn hér heima. Benfica mun, að sögn, koma með sitt sterkasta lið. og má eflaust fullvrða að aldrei hafi sniallari hómir knattspyrnumanna stigið fæti á Laugardalsvöllinn. Þetta segi ég minnugur bess. að hingað hafa komið lið eins og Táverpool og Ferencevaros. Um frammistöðu okkar manna skal engu spáð, en nú þarf ekki að afsaka sig eða skammast sín fyrir að tapa. ____________☆ vjff (ndhfsira ... Framhald af bls. 9 er bíónusta við ferðamenn rreysi- mikilh at.vi'nnuvcGur. Þá þvkia Barbadosbúar póðir siómenn; eipa margt vélknúinna fiskibáta og sækia á þeim langt út á At- lantsbaf. Þar veiða þeir nær ein- 'Tnn° u fluffisk, sem þarna er óhemiumikið af. en annar fiskur sést varla. Um bot.nfisksveiðar er okki að ræða sökum mikils dýp- is.■. Á erunnmið sækja þeir bins ve"ar á litlum kænum. tvegeia manna, og sækia fast. Þet*a’- við nálguðumst evna sn°mma morg- uns, mættum við þeim á þessum fleyt.um tuttusu mílur úti, í sex vindstigum. Sem gömlum s.ió- manni ofan frá íslandi þótti mér þetta allfast sótt. Hvað dregur ferðamenn þarna helzt að? Þarna eru langar og vin- sælar baðstrendur. Annars er það sérkennilegt við þessa eyju, að vestan á eynni, móti stað- vindinum, er hitinn um átián stig, en þrjátíu og tvö austan megin. Staðvindurinn er þarna allhvass, sex til sjö stig. Svo er þarna gömul flotahöfn, byggð af sjálfum Nelson, og haldið við eins og hún var þegar hann gekk frá henni. Þeir eru mjög hrifnir af Englendingum þarna og líkja sem mest eftir þeim, enda hafa þeir ensku víst komið frekar vel fram við þá, trúlegast af því að lítið er af þeim að hafa. í glugg- um þinghússins í höfuðborginni, Bridgetown, sem er nokkru stærri en Akureyri, eru gler- málverk af öllum þjóðhöfðingj- um Bretaveldis til þessa dags, hvorki meira né minna. Brezk áhrif eru alls staðar augljós. verzlanir eru hér góðar, enda margar útibú frá stærstu Lund- únaverzlununum. Kvenfólkið lætur mikið að sér kveða þarna og virðist hafa algert jafnrétti við karla. Þær eru margar geysi- stórar og stæðilegar, og verða beinar í baki og tígulegar á að bera allt á höfðinu. Þær stjórna margar verzlunum og konur voru það sem sáu um móttökur við skipið. Á einum stað á Barbados hafa menn sér það til gamans að horfa á drengi, sem stinga sér fram af háum hamri í sjó niður fyrir íá- eina aura. Þetta er dálítið glanna- legt að sjá, en mér var sagt að aldrei hlytist af þessu slys. — Hvernig er svipurinn á fólkinu þarna, svona almennt? — Það sem er hvað mest ein- kennandi bæði á Barbados og fleiri eyjum þarna, er hvað fólk- ið virðist léttlynt og mikil mú- sík í því. Þessari glaðværð fylg- ir enginn æsingur, eins og til dæmis í Suður-Evrópu. Strax og hlé verður á einhverju verki, til dæmis uppskipun, er búið að koma upp hljómsveit, þótt ekki sé annað til að spila á en tómar tunnur, og svo er sungið. 36. tbi. VIKAN 37

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.