Vikan


Vikan - 12.09.1968, Blaðsíða 18

Vikan - 12.09.1968, Blaðsíða 18
Um þessar mundir birtist í vikublöðum um allan heim úrdráttur úr bókinni SAGA BÍTLANNA eftir Hunter Davis, sem kemur út í næsta mánuði. VIKAN hefur fengið einkarétt á birtingu SÖGU BÍTLANNA hér á landi og hefst hún í næsta blaði. Þetta er í fyrsta skipti sem saga Bítlanna birtist almenningi, skráð eftir þeim sjálfum. Fjórmenningarnir frá Liverpool lögðu undir sig heiminn á örskömmum tíma og hefur síðan tekizt aö halda vinsældum sínum, hvað sem síðar verður. Þeir hafa öðlazt meiri frægð en nokkrir aðrir einstaklingar. Saga þeirra er í rauninni ótrúlegt ævintýri, sem óvíst er að endurtaki sig í bráð. Bítlaæðið svonefnda, sem þeir voru upphafsmenn að, er með einkennilegri fyrirbærum, sem gerzt hafa á okkar dögum. í fyrsta hlutanum segir frá heimaborg Bítlanna, Liverpool, — jarðveginum, sem þeir eru sprottnir upp úr. Síðan eru rakin bernsku- og uppvaxtarár Johns Lennons, en hann ólst upp við mjög erfiðar aðstæður. Fylgizt með SÖGU BÍTLANNA frá upphafi. 18 VIKAN 36-tbl

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.