Vikan - 31.10.1968, Blaðsíða 8
'
■
— Það var rigning þegar við
komum til Taípei en þó lending-
arfært. Það var eins gott, því að
Formósa er aðeins 22.000 ferkíló-
metrar og venjulega sama veður
á eynni allri. Þegar því ekki er
hægt að lenda þar, verður að
fljúga til Ókínava eða Hongkong,
sem er æðispölur til hvors stað-
arins sem er. Auðvitað væri
stytzt að bregða sér yfir sundið
til Kína — það er hundrað og
fimmtíu mílur þar sem það er
mjóst — en flugmenn China Air-
lines, sem er flugfélagið þeirra
á Formósu, myndu víst telja öllu
skárri kost að steypa sér beint í
sjóinn.
Það er Ólafur Agnar Jónasson,
yfirflugvélstjóri Loftleiða, sem
hefur orðið, en í vetur dvaldi
hann um sex vikna skeið á For-
mósu, í ríki generalissimo Síang
Kaí-séks. Ólafur hefur starfað
hjá Loftleiðum síðan 1947, en
gegnt núverandi stöðu síðan
1962. Því starfi heyrir til margt,
eftirlit með að flugvélstjórar
haldi við tæknilegri þekkingu
sinni, þjálfun nýrra vélstjóra,
milliganga í samstarfi flugliða og
flugvirkja og fleira og fleira. Þá
dvelst Ólafur oft tímunum sam-
an erlendis í sambandi við við-
gerðir, breytingar og eftirlit með
flugvélum Loftleiða. Til Formósu
fór hann af hálfu Loftleiða til
að fylgjast með breytingum á
STEIKTIR
ÍNAMABKAR
r hatídamat
BÆTT IIID
OIAF AGNAR JÓNASSON
UM DVÖL HANS f RÍKI
SJANG KAI-SÉKS
TEXTI:
DAGUR ÞORLEIFSSON
flugvél, sem félagið hafði fest
kaup á en China Airlines tekið
að sér að breyta.
Vélin er af gerðinni CL-44
D-4, segir Ólafur. Sama gerðin
og á þeim sem við keyptum áð-
ur af Canadair, en það eru þeirra
verksmiðjur sem framleiða þess-
ar flugvélar. Þessi síðasta er eins,
nema við létum ekki lengja hana;
hún tekur hundrað og sextíu far-
þega en hinar hundtað áttatíu
og níu. Þessa keypti Loftleiðir
af Flying Tiger Line, en það mun
vera stærsta flugflutningafélag
Bandaríkjanna. Það flytur til
dæmis mikið fýrir herinn til
Víetnam og einnig milli stranda
heimafyrir. Vélin var auðvitað
byggð sem flutningaflugvél, en
það var sem sagt breytingin í
farþegaflugvél, sem fór fram á
Formósu.
— Hversvegna þar?
— Nú, þeir hjá Flying Tiger
höfðu áður látið breyta flugvél-
um þar og líkaði vel að skipta
við Kínverjana. Bandaríkjamenn
eru yfirleitt beztu drengir í biss-
niss og þeir buðust til að koma
okkur í samband við þá á For-
mósu. Þetta varð því að ráði. En
Loftleiðir þurftu að senda mann
þangað austur bæði til að semja
við Kínverjana og fylgjast með
viðgerðinni, og þessvegna varð
það úr að ég fór í þennan leið-
angur.
8 VIKAN 43-tbl'